Reagan á toppnum

Les á net-Mogganum að Ronald Reagan hafi sigrað Lincoln í skoðanakönnun um merkasta Bandaríkjamann sögunnar. Getur ein þjóð lýst frati á sjálfa sig með afdráttarlausari hætti?

Hvern hefði maður sjálfur valið? Líklega Thomas Edison.

# # # # # # # # # # # # #

Fréttablaðið upplýsir að Jóhannes Páll II muni á næstunni verða dýrðlingur. Búið er að fá í gegn reglubreytingu og setja á stofn nauðsynlegar undirbúningsnefndir. Það eina sem karlinn á eftir að gera er að framkvæma 1-2 kraftaverk, t.d. með því að lækna krabbamein eða gefa blindum sjón.

Sem sagt: allt það erfiða er búið, núna er bara að ganga frá nokkrum lausum endum.

# # # # # # # # # # # # #

Dyralúgan á heimili mínu er ónýt. Hún gafst endanlega upp einn daginn, þar sem vöndullinn með öllum auglýsingapóstinum og dagblöðunum sem ég hef aldrei beðið um reyndist óvenju þykkur.

Nú spyr ég löglærða lesendur þessarar síðu: get ég átt einhvern kröfurétt á hendur 365 miðlum eða Karli Garðarsyni, fyrir spellvirki og eignaspjöll? Ég er sanngjarn maður og bið ekki um mikið - bara að þeir komi hingað og lagi dyralúguna eða setji upp nýja og fjarlægi blaðabunkann sem ég trassa alltaf að fara með í næsta endurvinnslugám.

10 Responses to “Reagan á toppnum”

  1. Þorbjörn Says:

    Farðu á pósthúsið og fylltu út beiðni um að þiggja engan ómerktan póst. Þá færðu límmiða sem þú límir á næstu póstlúgu. Hún ætti þá að endast miklu lengur.

    Ef þú blikkar bréfberann næst þegar þú sérð hann geturðu kannski afþakkað Blaðið.

  2. hugrún Says:

    hvernig er það, er ekki hægt að frábiðja sér þvílíkan póst, ef póst skyldi kalla?

  3. pallih Says:

    Hugrún, farðu á pósthúsið og fylltu út beiðni um að þiggja engan ómerktan póst. Þá færðu límmiða sem þú límir á næstu póstlúgu. Hún ætti þá að endast miklu lengur.

    Ef þú blikkar bréfberann næst þegar þú sérð hann geturðu kannski afþakkað Blaðið.

  4. hugrún Says:

    takk, pallih, við póstuðum kommentum okkar samtímis, við þorbjörn. gott að vita af þessu.

    reyndar er ég með slíkan límmiða á lúgunni minni hér í trektarborg, en hann virkar ekki sem skyldi á auglýsingapésaútburðarmanneskjurnar.

  5. Raggi Says:

    Það er eitt að fá ómerktan póst og svo sem alltílagi. En ef maður fer í frí þá vandast málið. Það er ótrúlegt hvað reynt er að troða í póstkassan eftir að hann er að allra heilbrigðra mati troðfullur. Svo standa Fréttablöðin og Hagkaupsbkælingarnir út eins og gosbrunnur.

    Ekki það, að þetta er náttúrulega atvinnuskapanid því þetta auðveldar innbrotsþjófum rannsóknarvinnuna sína talsvert.

  6. Fröken Ásta Says:

    Ég setti nú bara svona home-made miða á kassann minn og hann virkar þokkalega. Þurfti að vísu að hringja og frábiðja mér Fréttablaðið sérstaklega.

  7. Gúrúinn Says:

    Ég stend einmitt í stríði við Blaðið þessa dagana. Þeir hafa fyrirskipað Íslandspósti sem ber Blaðið út að hunsa fjölpóstsmiðann (sem heitir ruslpóstsmiði hjá öllum nema Íslandspósti). Þá ber þeim að hafa einhvern hátt á að bjóða upp á afþökkun Blaðsins. Flokkist Blaðið hins vegar sem ruslpóstur á téður miði að nægja. Flokkunin er sem stendur í athugun hjá Póst og fjar að mínu undirlagi.

  8. Fyrrverandi bréfberi Says:

    Beri að meti það starfsmanni Íslandspósts til gáleysis að hafa sett póst í bréfarifuna á þann hátt, sem raun ber vitni, er ljóst að fyrirtækið ber ábyrgð á því tjóni, sem af því hlaust, samkvæmt meginreglu skaðabótaréttar um húsbóndaábyrgð.

    Ekki er þó víst að Íslandspóstur beri fulla ábyrgð á tjóninu, enda skiptir það máli hvort frágangur bréfarifu hafi verið í samræmi við reglur þar að lútandi. Í 4. málsl. 1. mgr. í grein 80.2 í byggingarreglugerð nr. 441/1998, sbr. reglugerð nr. 133/2002, sbr. 37. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, segir: „Bréfarifur skulu vera minnst 25×260 mm að stærð og staðsettar þannig að fjarlægð frá gólfi (jörðu) að neðri jaðri bréfarifu sé ekki minni en 1000 mm og ekki meiri en 1200 mm.“

    Hafi bréfarifan ekki fullnægt þessum kröfum kann hluti sakarinnar að hvíla á þér, Stefán, fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að bæta úr því ástandi. Samkvæmt meginreglu skaðabótaréttar um eigin sök tjónþola verður þú þá að bera tjónið sjálfur að hluta – og jafnvel að öllu leyti ef eigin sök þín er stórfelld og bréfarifan og frágangur hennar gjörsamlega ófullnægjandi.

    Þannig að nú skalt þú draga upp tommustokkinn og mæla þetta út.

  9. Fyrrverandi bréfberi Says:

    Að úgefendur blaða eða ritstjórar þeirra beri ábyrgð á því að bréfarifur verði fyrir hnjaski, þ.e. að það verði talið stafa af gáleysislegu framferði þeirra, veltur á tvennu: (a) því hvort orsakasamband sé milli háttsemi þeirra og hnjasksins og (b) hvort hnjaskið sé sennileg afleiðing af háttseminni, þ.e. eitthvað sem þeir máttu sjá fyrir.

    Þessum skilyrðum er varla fullnægt um 365 miðla, enda er Fréttablaðinu dreift sér og er það því ekki hluti af þykkum vöndli þegar það er sett inn um bréfarifu. Hins vegar má segja að skilyrðinu um orsakasamband sé fullnægt um Karl Garðarsson, enda á Blaðið, sem Íslandspóstur dreifir, ábyggilega sinn þátt í umræddu tjónsatviki. Hitt er hins vegar meira vafamál hvort 365 miðlar og Karl Garðarson megi gera ráð fyrir því að bréfarifur fólks skemmist vegna dreifingar þeirra á dagblöðum, þ.e. hvort það geti talist sennileg afleiðing af blaðadreifingunni.

    Ef þú ætlar að hafa uppi kröfur á hendur þeim – jafnvel fara í skaðabótamál neiti þeir að bæta tjónið – er betra að hafa þessa hluti á hreinu.

  10. Már Says:

    Heimaskrifaður miði límdur á hurðina (eða lúgulokið sjálft) virðist næstum alltaf duga. Þó eru brögð að því að fréttablaðið og ruslpóstur sem tilheyrir því berist áfram þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um (bæði með skýrari miða, og símtölum) en líklega er þar um að kenna láglaunastefnu dreifingaraðilans sem veldur því að í blaðberastarfið velst fólk sem ýmist kann ekki að lesa, eða kann enga íslensku - nema hvoru tveggja sé. Ég hef vissa samúð með þessari stétt.

    Mig grunar að ástæðan fyrir því að símtöl duga jafnvel ekki alltaf, sé tvíþætt. Annars vegar er Fréttablaðinu nett sama hvort fólk vill fá blaðið til sín (”þú veist þér finnst það gott, lufsan þín” mentalitetið), og í annan stað þá veit ég að flest tilmæli og ábendingar til einstakra blaðbera koma á útprentuðu blaðsnifsi með blaðabunkanum á morgnana. (Í starfi meðal blaðberans felast engin bein samskipti við annað fólk hjá dreifingarfyrirtækinu.)