Gvendur og félagar

Sú var tíðin að Skjár einn reyndi að halda úti kvöldþáttunum “…og félagar”. Þar var reynt að herma eftir amerísku spjallþáttunum. Fyrst var Axel og félagar.

Axel var gömul MorfÍs-kempa að norðan og fyrrum dagskrárgerðarmaður á FM957. Hann notaði sömu takta og svívirkuðu í MorfÍs í gamla daga og henti blýöntum. Félagarnir voru Villi Goði og hljómsveitin Buff ef ég man rétt.

Síðar fór Axel í viðtal í blaði sem dreift var á flest heimili landsins. Þar sagðist hann senn mundu verða milljóner á pýramídaviðskiptum og því væri hann ekki í sjónvarpi fyrir peningana heldur af hugsjón. Í viðtalinu lofaði hann að forvitnilegar breytingar á þættinum væru framundan.

Forvitnilegu breytingarnar voru þær að Axel var rekinn og Björn Jörundur ráðinn. Vinirnir sátu sem fastast og þátturinn nefndist þá Björn og félagar. - Björn var um þessar mundir allt í öllu á Skjá einum og stýrði m.a. hinum stórskrítna þætti Út að borða með Íslendingum ásamt Ingu Lind.

Björn varð ekki langlífur sem íslenski Letterman og Gunnar Helgasona - þá nýbúinn í hlutverki Nonna sprengju (íslenski Jerry Springer) tók við. Gunni og félagar voru í einhvern tíma í loftinu. Allt er þá þrennt er og vinirnir fengu ekki fleiri leikfélaga - enda hljóta menn að hafa verið farnir að setja spurningamerki við trygglyndi þeirra…

Nema hvað - í kvöld var frumsýndur þátturinn Gvendur og félagar á nýju sjónvarpsstöðinni. Ég hefði getað svarið það að Axel væri kominn aftur á skjáinn, nema ég þekki bæði hann og Gumma Steingríms í sjón. MorfÍs-taktarnir voru eins, en það vantaði trixið með að henda blýöntum. Og hvar eru vinirnir? Hvers konar kvöldþáttur er ekki með húshljómsveit? Ein nikka kemur ekki í stað vinabandsins.

En eitt heilræði til þáttarstjórnandans: Guðmundur, þegar Sigtryggur Magnason tekur þið í forsíðuviðtalið í nýja Sirkus-tímaritinu - ekki, ALLS EKKI lofa forvitnilegum breytingum á næstunni. Það er koss dauðans.

13 Responses to “Gvendur og félagar”

  1. Geir Says:

    Þetta var rosalegt. Ofleikur dauðans, vona að þetta verði eini þátturinn.

  2. VaGu Says:

    Djöfulsins snilld ég var að horfa á þáttin og þvílíkur disaster… Ég vissi ekki hvað hann heitir Dennason gæti verið svona stressaður, ekki alveg að meika það. Skari þó helvíti hress.

  3. Frammarinn Says:

    Fyrst var Axel, svo kom Gunni. Björn var síðastur af þeim þremur. Nonni sprengja kom eftir Gunna og félögum.

  4. Bjartur Says:

    Verð að segja að frammistaða Guðmundar Steingrímssonar var einhver sú lélegasta sem sést hefur í íslensku sjónvarpi. Greyið er afleitur.

  5. hermann Says:

    Ég missti af þessu, kæri forveri, en þetta er rétt með loforð um forvitnilegar breytingar sem koss dauðans. Hinsta andvarp er svo líklega þegar þættir taka að sýna eftirminnileg skot úr gömlum þáttum.

    Bo Nadal

  6. Ágúst Says:

    Hemmi Gunn er kominn með mikla samkeppni þarna, sem versta sjónvarpsefni landsins!

  7. Kjartan Says:

    Það er ekkert sem sannar betur áhrifamátt sjónvarpsins umfram aðra fjölmiðla en æsingurinn sem verður af einum hikstandi sjónvarpsþætti. Öllum er sama þótt vond blöð séu gefin út í tugþúsundum eintaka a degi hverjum.

  8. Jósi Says:

    Rétt skal vera rétt:

    okt. 1999 - jan 2000 eru bæði “Axel og félagar” og “Nonni sprengja” í loftinu. Svo hætta þeir báðir.

    feb 2000-maí 2000 er “Gunni og félagar” í loftinu

    veturinn 2000-2001 er “Björn og félagar” svo í loftinu. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum var sá þáttur sífellt færður til í dagskránni þar til hann fékk ekker áhorf og dó.

  9. Frammarinn Says:

    Ókei, rangt hjá mér þá :)

    Vissi þó að Gunni var á undan Bjössa og félögum.

    Biðst afsökunar.

  10. Gisli Says:

    Einu sinni var Björn Jörundur kallaður konungur íslensku spjallþáttanna í kynningarefni frá S1.

  11. Gisli Says:

    Einu sinni var Björn Jörundur kallaður konungur íslensku spjallþáttanna í kynningarefni frá S1.

  12. gunnare Says:

    Hvernig er það, var Björn Jörundur ekki einhvern tímann kallaður konungur íslensku spjallþáttanna? Gott ef það var ekki í kynningarefni frá S1 sjálfum.