Ólína farin að blóta

Ólína hélt upp á tveggja mánaða afmælið sitt með því að mæta á sumarblót Ásatrúarfélagsins á Þingvöllum. Hún virtist bara kunna þessu vel og drakk mjólk hin kátasta, alsherjargoðanum til samlætis, þegar hann drakk heill hinna og þessara goða.

Móðirina grunar þó að hefði Ólína sjálf fengið að ráða heill hvers hún hefði drukkið, þá hefði snuddan hennar orðið fyrir valinu. Eða kannski óróinn.

Að ári liðnu verður Ólína kannski orðin nógu stór til að drekka úr blótshorni. Það er þó óvíst hvort foreldrar hennar leyfa henni að bragði á miðinum góða. En það má náttúrulega bara alveg eins drekka mjólk úr horninu. Varla færu goðin nú að reiðast því.

4 Responses to “Ólína farin að blóta”

  1. Kristján Says:

    Þú veist hvað Norðmennirnir segja: “Hvis du heller melk i et ølglass, kan du like godt kaste det etterpå!” Nú er ekki alveg ljóst hvort sömu reglur gildi um blótshorn en það verður þó að teljast líklegt.

  2. Steinunn Þóra Says:

    Það var semsagt ég sem skrifaði þessa færslu. Ekki veit ég alveg hvernig mér tókst að birta hana í síðu Stefáns, þar sem ég veit hvorki aðgangsorðið né lykilorðið að síðunni hans.

    Stefán kom ekkert nálægt þessari Þingvallaferð. En hann tók fótbolta fram yfir það að kynna barnið fyrir menningararfinum og trú forfeðranna.

  3. Hildigunnur Says:

    hann hefur bara gleymt að logga sig út, ekki satt :-)

    uss, það má pottþétt drekka mjólk úr blótshorni, eða þá vatn. Vatn er gott…

  4. Vésteinn Valgarðsson Says:

    Ef mig misminnir ekki beit Egill Skallagrímsson stykki úr horni vegna þess að honum brá svo að það væri mjólk í því … en þá voru reyndar kringumstæðurnar aðrar, svo kannski að barnið léti það eiga sig þótt því væri fært mjólk í horni…