Deilt á dómarann

Úff. Grindvíkingar voru betri en við í kvöld. Framarar fengu nokkur færi en náðu ekki upp neinu spili að viti meðan Gringvíkingar léku mjög skynsamlega.

Eftir stendur samt að Jóhannesi Valgeirssyni tókst að klúðra dómgæslunni eftirminnilega. Ég minnist þess ekki að hafa séð stuðningsmenn Fram jafn reiða í garð dómara. Undir venjulegum kringumstæðum láta margir sig hverfa á lokamínútunum, til að losna út af bílastæðinum á undan ösinni en að þessu sinni biðu flestir - að því er virtist til þess að ná að baula á dómarann þegar hann gekk út af vellinum.

Dómarar geta átt vonda daga eins og aðrir. Þetta var vondur dagur hjá Jóhannesi.

4 Responses to “Deilt á dómarann”

  1. Sverrir Says:

    Þessi dómari var slakur, en mér fannst Framarar láta hann fara of mikið í taugarnar á sér. Liðið hefði átt að herða róðurinn eftir að Gunnar varði vítið og bætti þannig fyrir slaka dómgæslu.

  2. Steingrímur Says:

    Hafi einhverjir hryðjuverkamenn verið á vellinum í gærkvöldi, þá voruð það ekki þið Sverrir ;-) Tek undir hvert orð um frammistöðu dómarans. FRAM tapaði hins vegar ekki vegna hans en auðvitað hjálpaði það ekki til.

  3. Andrés Says:

    Sammála.

    Ég held að Framarar hafi farið í leikinn með það í huga að taka þá eins og IBV og Þrótt, sem er ekkert annað en vanmat. Grindavík komu hinsvegar til að sækja stig og börðust eins og ljón út um allan völl. Þannig að 0-1 var sanngjarnt.

    Áhorfendur (óvenju góðir) voru hinsvegar vel með á nótunum enda fengu þeir mikið aðhald frá afmælisbarni gærdagsins og Framara númer eitt.. Dómarinn var sjæt..