Teknir í bakaríið
Úff, við Framarar vorum rækilega kjöldregnir að Hlíðarenda. Valsmenn eru með hörkulið í ár.
Leikskrá Valsmanna vakti annars sérstaka athygli mína. Hún er átta síður í A5-broti. Þar af fóru tvær síður í auglýsingar, forsíðan í að segja hvaða leikur væri, ein síða í stöðuna í deildinni og tvær síður í að birta leikmannahópa liðanna.
Þá stóðu eftir tvær síður - einu textasíður leikskrárinnar: önnur með ávarpi formanns knattspyrnudeildar - hin með ávarpi umsjónarmanns leikskrár, Framsóknarmannsins Guðjóns Ólafs Jónssonar… með mynd af sjálfsögðu.
Myndi einhver annar en ungur stjórnmálamaður á framabraut skrifa ávarp með ljósmynd í pésa sem inniheldur c.a. eitt A4-blað af eiginlegum texta?
Annars fannst mér Guðjón Ólafur alltaf vera Fylkismaður - og minnti að ég hefði séð hann með Fylkishúfu á vellinum, en það hlýtur að vera misminni hjá mér…
(Leiðrétting, sett inn 1.6. kl. 12:30: Guðjón Ólafur var ekki Fylkismaður - hann var Skagamaður og það gallharður.)

June 2nd, 2005 at 10:20
Merkilegt að sjá framsóknarmenn skipta um uppáhaldslið í fótboltanum eins og hendi sé veifað.
Það sannar að hentistefnan er ekki bara pólitík hún er lífsskoðun.
June 2nd, 2005 at 19:45
Guðjón er búinn að starfa fyrir VAL til fjölda ára og hefur mætt á flesta leiki Vals undanfarin ár