Bruni SP
Jæja, þar kviknaði í kofanum. Um það má fræðast í Sjónvarpinu í kvöld og öllum prentmiðlum á morgun.
Bót í máli að ég er gefinn fyrir vel-reykt viský.
(Reyndar brann ekkert annað en eldhúsið - hitt er bara á kafi í sóti og dufti.)
Öllum heilsast vel og það er fyrir öllu.

May 30th, 2005 at 18:38
Úff, þetta er rosalegt!
Ég vona að hreinsunarstörfin gangi vel, maður er þó feginn að allir hafi sloppið ómeiddir!
May 30th, 2005 at 21:14
En skelfilegt. Samt gott að vita að enginn skaðaðist og að persónulegir munir hafi sloppið. Það eru oft myndaalbúmin og erfðagripirnir sem fólk saknar mest eftir svona eldsvoða. Vonandi eruð þið vel tryggð.
May 30th, 2005 at 22:00
Það verður bara að koma í ljós hversu miklar reykskemmdirnar eru.
Við erum með F+ tryggingu frá VÍS. Líklega er það fullnægjandi í þessu tilviki.
May 30th, 2005 at 22:51
Það var leiðinlegt að heyra þetta. Ég vona bara að skaðinn sé sem minnstur.
Ef ég get eitthvað aðstoðað vegna þessa, þá veistu hvar hægt er að ná í mig
May 30th, 2005 at 22:53
Það var virkilega leitt að heyra um þetta tjón hjá þér og vona ég að tjónið sé sem minnst.
Ef það er eitthvað sem ég get aðstoðað þig vegna þessa, þá hringdu í mig. Þú finnur númerið hjá OR.
May 30th, 2005 at 23:37
já…ég fékk nett sjokk að sjá þetta í sjónvarpinu, gott að allt fór vel. Ef eitthvað þarf að gera þá sakar ekki að reyna hringja og biðja um hjálp.
May 30th, 2005 at 23:39
Gott að öllum heilsist vel. Svaðalegt samt. Ekkert sakar við að hringja ef einhverja hjálp þarf.
May 31st, 2005 at 00:42
Leitt að heyra. Gangi ykkur vel við hreinsunarstörfin.
kv.
Rexa
May 31st, 2005 at 07:26
Leiðinlegt að heyra með íbúðina.
Skemmtilegt að heyra að engan sakaði.
Gangi ykkur vel!
May 31st, 2005 at 10:54
Gott að heyra að engan sakaði. Núna þarftu bara að beita þínum völdum sem stjórnarmaður í FFR og færð leikmenn mfl. Fram í hreinsunarstörf einnig geturðu fengið liðsstyrk frá hægri bakverði Þróttar.
May 31st, 2005 at 12:13
Leiðinlegt að heyra þetta. Gott að öllum heilsast vel þó.
May 31st, 2005 at 14:28
Þetta er mjög óskemmtileg lífsreynsla.
Það veit ég því ég hef lent í svipuðu sjálfur.
Ég sendi þér og þinni litlu fjölskyldu
stuðningskveðjur í þessum raunum ykkur.
May 31st, 2005 at 15:17
Þetta er hitinn frá funheitu FRAM liðinu líklega. Afleitar fréttir en nú þarf VÍS að sanna að auglýsingin á búningi FRAM er ekki tilviljun. Fyrir mestu er að allir séu heilir og að iðgjöldin hafi verið greidd.
gangi ykkur vel