Nýr dagur kemur með póstinum…
…söng Bubbi.
Bara rokkstjörnur gætu notað póstinn sem viðmiðun varðandi það hvenær nýr dagur byrjar. Í Norðurmýrinni kemur pósturinn um hádegisbilið. Að þessu sinni var Austurglugginn með í sendingunni. Þar ritar Guðmundur Karl Jónsson sína hundruðustu grein um jarðgangamál. Meira að segja jarðganganördið ég á erfitt með að taka undir ítrustu kröfur hans í þessum efnum. En Mjóafjarðargöng verða að koma fyrr en síðar…
# # # # # # # # # # # # #
Rölti niður í bæ til að póstleggja bréf. Náði í leiðinni í Símaskránna. Mig minnir að við höfum ekki einu sinni haft fyrir að hirða Símaskránna 2004. Notar maður nokkuð pappírsskránna lengur? Er ennþá að finna upplýsingasíðuna um hvað gera skuli í kjarnorkuárás (skríða undir borð og breiða yfir sig dagblað)?
# # # # # # # # # # # # #
Liverpool-menn hreykja sér hátt yfir Evróputitli, sem vonlegt er. Ekki botna ég hins vegar í þessu væli þeirra yfir að “fá ekki að verja titilinn” að ári. Með þessum barlóm eru þeir bara að beina athyglinni að eigin aumingjaskap í deildinni.
Heimsmeistarar Brasilíu þurfa að taka þátt í forkeppni til að komast á HM. Hvers vegna ættu labbakútar frá Liverpool að fá sérmeðhöndlun?

May 26th, 2005 at 12:33
Kalda stríðinu lauk árið sem þeir tóku kjarnorkukaflann úr Símaskránni. Hvaða ár var það nákvæmlega? Það gæti verið góð spurning í Gettu betur.
May 26th, 2005 at 12:34
Kalda stríðinu lauk árið sem þeir tóku kjarnorkukaflann úr Símaskránni. Hvaða ár var það nákvæmlega? Það gæti verið góð spurning í Gettu betur.
May 26th, 2005 at 13:21
Já, að heimta að Liverpool fái átómatískt þáttökurétt að ári er svona eins og að heimta að Halldór Ásgrímsson verði í næstu ríkisstjórn bara af því að hann var aðal þar síðast…
May 26th, 2005 at 14:43
Ég styð tillögu Halls; Liverpool fái átómatískan þátttökurétt að ári og að Halldór Ásgrímsson verði í næstu ríkisstjórn. Hallur er maður að mínu skapi.
May 26th, 2005 at 15:57
Hvílíkt ábyrgðarleysi hjá Símanum! Hvað gerum við þegar kjarnorkusprengjan springur? Deyjum?
Tja, þau okkar sem rámar eitthvað í leiðbeiningarnar í símaskránni 1991 og árin þar áður náum kannski að bjarga okkur.
En þið hin munuð öll deyja! eins og Bubbi söng.
May 26th, 2005 at 17:53
Frakkar grenjuðu ægilega yfir því að sem ríkjandi heimsmeistarar með atómatískan keppnisrétt á HM 2002 spiluðu þeir ekki alvöruleik í tvö ár. Núverandi fyrirkomulag er nýtt af nálinni á HM en hefur verið við lýði á EM eitthvað lengur. Annars er ég búinn að finna lausnina á þessu máli.
May 26th, 2005 at 19:27
Auðvitað á liverpool að fá að keppa að ári sbr. þegar real madrid varð meistari og lenti í fimmta sæti í Spænsku. Hver vill svo sem sjá littlu naggana frá Everton spila sinn hundleiðinlega varnarbolta.
May 27th, 2005 at 00:35
Halldór Ásgrímsson ER með þátttökurétt í næstu ríkisstjórn! Var það allavega um síðustu kosningar. Á Íslandi kýs fólk hvaða flokk það vill sjá í stjórn með Framsóknarflokknum.
En hvað um það, alveg er nú dæmalaus þessi sjálfstortíming þín í formi jarðagangaæðis, Stefán. Mikið er gott að þú ætlir ekki á þing! Hver þyrfti óvini með Reykjavíkurþingmann sem þig
Annars má skemmtilega mynd hérna af Mjóafirði: http://www.skip.is/hafnaskra/hofn/133/
Einsog sést á myndinni væri nauðsynlegt að setja þarna flugvöll líka, með beinu flugi á Fuglafjörð til að flytja hingað inn færeyska sérfræðinga í afdalagöngum.
May 27th, 2005 at 16:54
http://www.ismennt.is/not/jonasg/mjoifjordur/
Hvernig dirfast menn að gera grín að Mjóafirði.
May 28th, 2005 at 18:21
Blessaðir allir þið ágætu vinstrisinnuðu ofurheilar!
Er ég aleinn um að sjá mótsögn í því að rölta sér niður í bæ til að póstleggja bréf og sjá um leið í hendi sér að símaskráin sé orðin úrelt?
Kveðja,
Jakob
June 2nd, 2005 at 08:41
Skil ekki hvernig þú kemst að þeirri niðurstöðu að Liverpool-menn séu að beina athyglinni frá eigin aumingjaskap í deildinni. Get ekki séð annað að þeir séu með þessari kröfu að undirstrika og minna á eigin aumingjaskap í vetur.
Reyndar ætti Everton að verða dæmt niður um sæti, ef ekki tvö, eingöngu vegna 7-0 taps gegn Arenal. Svoleiðis aumingjaskap hefði maður aldrei séð hjá Evrópumeisturunum!