Leonardo blásinn af

Ekkert varð úr fyrirlestrinum mínum um vísinda- og uppfinningamanninn Leonrdo da Vinci í Ráðhúsinu í dag. Ég var beðinn um að flytja þetta í tenglum við 10 ára afmælishátíð Leonardo-áætlunar Evrópusambandsins. - Í Tjarnarsalnum eru sömuleiðis skemmtileg sýning á listaverkum íslenskra listgreinanema sem vísa í feril Leonardos.

Nema hvað, það var ekki kjaftur mættur á auglýstum tíma - utan skipuleggjendurnir. Kannski ekki skrítið - það er ákaflega erfitt að draga fólk á málþing eða fyrirlestra á þessum árstíma.

Nú sit ég sem sagt uppi með ónotað erindi. Spurning hvort ég láti ekki til leiðast og svari einhverjum Leonardo-tengdum spurningum fyrir Vísindavefinn. Eftir útgáfu Da Vinci lykilsins hefur víst allt fyllst af spurningum tengdum sögu karlsins þar.

# # # # # # # # # # # # #

Svekkjandi tap í boltanum í kvöld. Framarar hefðu átt skilið jafntefli í það minnsta, en mörkin telja víst.

5 Responses to “Leonardo blásinn af”

  1. Ágúst Says:

    Geri samt ráð fyrir því að þú látir analæseringu Freuds á samkynhneigð karlsins vera :)

  2. Óli Njáll Says:

    Þetta var nú leikur sem gat dottið fyrir hvort liðið sem var en nágrannar mínir voru heppnari en þeir bláklæddu. Ekki hægt að tala um neina ósanngirni í sambandi við úrslitin.

    Annars var þetta ömurlegur leikur, afleitur rokrassbolti af verstu gerð. Eina skemmtilega við leikinn var 17 ára kr-senterinn sem hljóp á allt sem fyrir var.

  3. Steingrímur Says:

    Ertu búinn að tala við frænda þinn Stefán? Svona framkoma á ekki að eiga sér stað á knattspyrnuvellinum.

  4. HSE Says:

    Mér þætti gaman að varpa hér fram spurningu sem tengist Leonardo da Vinci. Hún er þannig: Oft er sagt að ef Mozart væri uppi nú um stundir þá væri hann að spila popptónlist (nokkuð sem popparar lepja hver upp eftir öðrum), og svo var einu sinni sagt (þegar myndin Shakespeare in Love kom út – og oft síðan), að ef Shakespeare væri uppi á okkar tímum þá væri hann í Hollywood að skrifa kvikmyndahandrit (!!). En hvar væri þá Leonardo da Vinci núna, ef hann væri maður okkar tíma? Nú vil ég ekki fá neinn dólgarpóstmodernískan hálfkæring framan í mig, heldur hnífbeitt svör sem vita til vísinda. Ekki slíkar einfaldanir einsog hafðar eru eftir hér að ofan um Mozart og Shakespeare! Og þótt vissulega sé spurt í gríni, þá vænti ég merkilegra svara.