Veðurfræðingar
Björn veltir vöngum yfir veðurfræðingum og kröftugri innkomu Þórs Jakobssonar inn í töffaraheim veðurfræðinnar. Ég er ekki sannfærður.
Held samt að flestir eigi sér uppáhalds-veðurfræðing. Þannig sé hægt að skipta öllum Íslendingum upp í Þórs-fólk; Trausta-fólk; Einars Sveinbjörnssonar-fólæk og svo framvegis. Held að allir þessir eftirlætisveðurfræðingar þjóðarinnar séu hjá Sjónvarpinu - þrátt fyrir ámjátlegar tilraunir Stöðvar 2 til að kynna “Sigga storm” til sögunnar eins og hann sé Filmstjerne.
Hverjir eru uppáhaldsveðurfræðingar þeirra sem lesa þessa síðu? Ég gef Haraldi Ólafssyni mitt atkvæði. Hann er veðurfræðitöffari nýrrar aldar.
Greiðið atkvæði í athugasemdakerfinu hér að neðan.

January 28th, 2005 at 11:07
Eyfi frændi fær mitt atkvæði þótt hann sé kominn á eftirlaun!
January 28th, 2005 at 11:12
Var það ekki Haraldur, sem átti “Viðrar vel til loftárása” kommentið? Allavegana, sá gaur fær mitt atkvæði.
Annars hata ég veðurfréttir í sjónvarpi einsog pláguna.
January 28th, 2005 at 11:12
Það er erfitt að gera upp á milli þeirra Þórs Jakobssonar og Haraldar Ólafssonar. Ég hef hins vegar átt meiri samskipti við Þór sem er hinn mesti öðlingur og eins má líta á það þannig að prik Haraldar hafi hann ekki síður fengið fyrir að reyna að halda aftur af vitleysu í stærðfræðikennslu.
Þór fær því atkvæði mitt!
Hvað annars með Pál Bergþórsson? Hann er líka svalur þótt hann verði seint talinn veðurfræðingur nýrrar aldar!
January 28th, 2005 at 11:17
Páll er nú reyndar uppáhaldið mitt, hann hafði svo notalega nærveru á skjánum.
January 28th, 2005 at 11:25
Borgþór var flottastur. Enginn annar en hann sem talað um “lagð fyrir ustan Granland”. Það var töff.
Haraldur er fínn en vegna verkfallsbrota hans í kennaraverkfallinu getur enginn góður maður stutt hann.
Þór fær því atkvæðið, þó ekki væri nema fyrir viðleitni hans til að leiðrétta aldamótamálið fræga. Notaði m.a.s. kerti til þess ef ég man rétt.
January 28th, 2005 at 11:26
Má kjósa fyrrverandi veðurfræðinga? Þá er Borgþór alltaf maðurinn.
January 28th, 2005 at 11:29
Reyndar er rétt að taka fram að þegar ég var smápjakkur hélt ég alltaf mest upp á Knút gamla í veðurfréttunum, enda var hann víst frændi minn.
En Knútur er löngu látinn.
January 28th, 2005 at 11:41
Eru allir búnir að gleymi Unni Ólafsdóttur?
Annars verð ég að segja að Þór er í uppáhaldi hjá mér af þeim sem eru á skjánum núna. Það er bara eitthvað svo frábært þegar hann veifar…
January 28th, 2005 at 12:14
Þór er flottastur.
January 28th, 2005 at 13:18
Ég kýs Þór Jakobsson enda mikill öðlingur þar á ferð.
January 28th, 2005 at 13:24
Trausti veðurfræðingur. Altalað sjálfsmorð hans á 9. áratugnum gefur honum iconic-status í mínum augum og hefur hann yfir alla hina. Skemmtilegur leikur hjá þér Stefán!
January 28th, 2005 at 14:19
1. Þór
2. Haraldur
3. Trausti
January 28th, 2005 at 14:20
1. Þór
2. Haraldur
3. Trausti
January 28th, 2005 at 15:26
ó, knútur!!! síðan hann hætti (og síðar lést) eru varla veðurfréttir fyrir mér. veðurfréttir með knúti og frétti með lúðvíki jóseps! það voru mínar ær og kýr hér fyrir áratugum!
seinna komu reyndar borgþór og þóranna … einstök bæði tvö.
en þar sem ég er nútímakona verð ég að nefna sigrúnu karls! hún er flott.
January 28th, 2005 at 15:45
Hef lengi verið áhugamaður um veðurfréttir. Lét mér detta í hug fyrir nokkrum árum að Þór væri flottur forseti. Handarkveðjan hans er alls ekki ný. Búinn að heilsa honum svona í nokkra mánuði.
Þór fyrir forseta!
January 28th, 2005 at 16:58
Halli hefur verid svalur sidan hann passadi mig i gamla daga. Og hvada helv. verkfallsbrot? Ef thetta var verkfallsbrot ta skulu kennarar haetta ad setja krokku fyrir heima og aetlast til ad foreldrar adsodi tau. Bittenu!!!
January 29th, 2005 at 00:51
Úffffffffffffffffffffff…
Mikið djö… er ég orðin þreytt á þessu foreldra/kennara skaki. Hvað er að fólki? Af hverju eru ekki allir í sama liði? Hversu lengi á þetta að ganga svona?
Svo held ég að fólk skilji ekki alveg hvað Haraldur Ólafsson er að tala um varðandi stærðfræðikennslu. Hann vill hverfa aftur til fortíðar og taka upp reikningskennslu. Uppsett dæmi og endalausar æfingar. Stærðfræðikennsla á að byggja á æfingum en ekki skilningi. Umdeilanlegt ekki satt?
En varðandi veðurfræðinga þá…
Finnst mér Trausti bestur.
Svo kemur Þór
og svo kemur Unnur Ólafsdóttir.
January 29th, 2005 at 01:58
Ég get nú vel tekið undir það með Haraldi Ólafs að sennilega sé fátt gagnlegra í stærðfræðinámi en að reikna fullt af dæmum. Það er erfiðara að takast á við og skilja flókin verkefni ef maður er ekki svo þaulæfður í þeim einfaldari að maður geti leyst þau umhugsunarlaust.
Engu að síður er Trausti minn uppáhaldsveðurfræðingur.
Ég held líka að það sé sama hvað Stöð 2 reynir að hæpa Sigga Ragg upp, Lægðabrandur verður alltaf flottasta viðurnefni veðurfræðings.
January 29th, 2005 at 07:02
unnur. uden tvivl. var thad ekki hun sem skreytti solina eins og paskaunga? annars er thad haraldur.
January 29th, 2005 at 11:44
Sá sem mun hafa dug og dáð að koma aftur með snúningskassan.
January 29th, 2005 at 20:12
Knútur er lifandi í barnsminninu. Ég kunni alltaf vel við hann eftir gagnrýnina sem veðurfræðingar fengu fyrir að heilsa fólki sérstaklega í sjónvarpinu. Eftir það sagði Knútur með sérstökum áhersluþunga “komið þið öll margblessuð og sæl”.
January 29th, 2005 at 20:26
Trausti er beztur! Haraldur Ólafsson talar einsog geimvera og þessi skóli hans (verkfallsbrot) er fáránlegur. Siggi stormur er alltaf hress og mér fannst gott hjá honum að spá hvítum jólum mörgum vikum fyrir jól! Þó það hafi ekki staðist. Handarkveðjan hans Þórs er líka ansi skemmtileg!
1 Trausti
2 Siggi Stormur
3 Þór
January 30th, 2005 at 16:16
Trausti veðurfræðingur! Tilvistarangistin er svo dásamlega augljós.
February 1st, 2005 at 01:03
Halli hefur mikið til síns máls með stærðfræðikennsluna, maður fær ekki tilfinningu fyrir tölum ef maður reiknar ekki fullt af dæmum og vinnur upp rútínu. Svona eins og að bara vita án þess að hugsa sig um að einhver tala sem endar á þrem, sinnum önnur tala sem endar á fjórum hlýtur alltaf að verða tala sem endar á tveim.
Hann vill ekki leggja niður nýjungar í stærðfræðikennslu heldur bæta þeim við það sem hefur reynst vel (þó það sé hundleiðinlegt)
Með veðurfræðingana - ég virðist vera sú eina sem fílar Einar Sveinbjörns, en ég geri það nú þrátt fyrir undarlegar stjórnmálaskoðanir hans…
Annars er allt þetta íslensku sjónvarpsveðurlið óttalegir kettlingar miðað við Henrik Voldborg í danska sjónvarpinu.
February 2nd, 2005 at 10:25
Það má reyndar til sanns vegar færa að Lægðabrandur þjáist af tilvistarangist eins og Trausti; Það er örugglega ekkert grín fyrir mann sem hefur skilning á áhrifum mengunar á jörðina og lofthjúpinn (og leggur m.a.s. sitt af mörkum til að draga úr útblæstri með því að ferðast með strætó) að vera framsóknarmaður.