Bók í pósti
Í gær fékk ég senda í pósti nýútgefna bók, sem ég minnist hvorki að hafa pantað né að hafa lagt til að öðru leyti. Enginn gíróseðill fylgdi með og ekkert bendir til að tekið hafi verið af Visa-kortinu mínu fyrir henni.
Eitthvað segir mér að á næstu dögum verði hringt í mig og ég beðinn um að ritdæma bókina.
# # # # # # # # # # # # #
Er ég eini maðurinn sem botna ekkert í því hvers vegna Chelsea vinnur alla leikina sína? Þegar Arsenal og Man. Utd. voru langbestu liðin í ensku, þá skildi maður alveg í hverju yfirburðirnir lágu. Ég átta mig alls ekki á því með þetta Chelsea-lið. Jújú, ágætis mannskapur - en að þeir vinni hvern einasta leik fyrirhafnarlítið er furðulegt.
Stórleikur á laugardag. Luton - Tranmere. Mikilvægasti leikur liðsins í 5-6 ár segja menn á spjallþræði stuðningsmanna. Það er hreint ekki svo ótrúlegt.

January 27th, 2005 at 09:44
Ég hélt að það væri bloggið þitt sem væri spjallþráður stuðningsmannanna…
January 28th, 2005 at 01:02
það skiptir engu höfuðmáli hvað óléttar konur borða mikinn ís… Það sem þú þarft að hafa áhyggjur af er hve mikinn ís verðandi feður geta borðað. Það er hinn sanni leyndardómur.
Annars er þetta enginn leyndardómur með Chelsea. Þetta liggur allt í agaðri vörn og frábærum markverði. Það segir sitt að einn þriðji af mótinu er að verða búið og þeir eru bara búinir að fá á sig 8 mörk.
January 30th, 2005 at 16:03
Það er ekki bara öguð vörn heldur er málið að þeir verjast á hverjum þumlungi vallarins. Þeir spila það sem mætti kalla Suður-Kóreskan fótbolta, vera í toppformi og vera alltaf á hlaupum og þannig brjóta niður andstæðinginn.
Annars þá hef ég ekki séð nógu marga Chelsea leiki til að fullyrða svona nokkuð, en þetta var tilfinningin sem ég fékk.
P.S. Heyrðu, þér hefur örugglega verið bent á þetta, en þú talaðir um sjö ára kjörtímabil Frakklandsforseta í einni GB-spurningu, en 2000 var því breytt í fimm ár. Mér fannst aldrei taka því að sérstaklega commenta til að segja þér það, en þar sem ég er á annað borð að því…