Traustabrestir

Líf bíleigandans er aldrei dauflegt - í það minnsta ef bíllinn er hálfgerður skrjóður. Ferðin með Volvoinn í smurninguna kallaði á ófyrirséð hliðarútgjöld, en þó ekki nema smotterí miðað við það hvað sumir eru að borga af bílalánunum sínum um hver einustu mánaðarmót.

Vitaskuld ákvað litla dósin hennar Steinunnar að Blái draumurinn væri búinn að fá alla athyglina og ákvað að sprengja dekk. Það er afar taugatrekkjandi að tjakka þennan bíl upp, því hann er svo ryðgaður að neðan. Þorði að lokum ekki öðru en að nota tvo samliggjandi tjakka sem ég sneri upp til skiptis.

Þessir bílar skulu þó endast í það minnsta út árið 2005 og Volvoinn verður tekinn (amk. tímabundið) af númerum í vor.

# # # # # # # # # # # # #

Leit við í kennslustund í MH í dag að ræða um SHA. Fínn hópur sem hélt athyglinni. Það segir sitt um það hvað framhaldsskólanemar eru að hugsa um þessar mundir að allar umræðurnar snerust um heimsmálin: Írak, Íran, Júgóslavíu, kjarnorkuvopn o.s.frv. - enginn spurði út í störf á Keflavíkurflugvelli eða greip til aronskunnar. Það er gleðileg tilbreyting, því í flestum svona hópum eru 2-3 sem spá bara í því hvað við “græðum” eða getum haft upp úr hernum.

Til upplýsingar fyrir kennara sem lesa þessa síðu, t.d. sögu- eða stjórnmálakennarar, þá reynum við að bregðast vel við öllum beiðnum um að mæta í tíma og spjalla um friðar- og afvopnunarmál. Á sínum tíma voru efni sem þetta reglulega tekin fyrir á málfundum í framhaldsskólunum, en í seinni tíð ganga málfundafélög víst einkum út á að borga 1-2 háskólanemum laun fyrir að þjálfa MorfÍs-lið.

# # # # # # # # # # # # #

Á morgun er kennsla í vísindasögukúrsinum. Einn nemandinn spurði í síðasta tíma hvort kvikasilfur (e. Mercury) héti eftir plánetunni Merkúr. Ég lofaði að grennslast fyrir og mér sýnist að svo sé - en að sú nafngift sé frá miðöldum og tengist gullgerðarmönnum. Fyrir þann tíma hafi efnið heitið “fljótandi silfur” eða eitthvað álíka. Eina ferðina enn eru Íslendingar með svölustu fræðinöfnin og elta ekki asnalegar tískusveiflur.

14 Responses to “Traustabrestir”

  1. Hildigunnur Says:

    beint úr dönsku - kviksølv…

  2. Hildigunnur Says:

    beint úr dönsku - kviksølv.

  3. Hildigunnur Says:

    (æ, strokaðu þetta komment og annað hinna út, smá mistök…)

  4. BIRD Says:

    En nefna nú svosem ennþá “quicksilver” og gefa jafnvel upp “hydrargyrum” (úr grísku) í uppsláttarritum þótt mercury sé náttúrulega aðalorðið. www.etymonline.com er skemmtilegur staður.

  5. pallih Says:

    Mér þykir eðlilegt að hver meðlimur heimilsins hafi sinn einkabíl. Kaupa einn enn.

  6. Vésteinn Says:

    “hydrargyrum”? Þú meinar væntanlega “hydrargentum”. Þaðan kemur lotukerfisskammstöfunin “Hg”. Argentum er vitanlega sama og silfur, sbr. Argentína.

  7. S.Wonder Says:

    Ég minni í þessu kviksilfraða samhengi á hina “mögnuðu” mynd Quicksilver með Kevin nokkrum Bacon í aðalhlutverki. Þroskasaga verðbréfasala… Aldeilis ljómandi della.

    “Jack Casey used to be a hot-shot stock market whizkid. After a disasterous professional decision, his life in the fast lane is over. He loses his nerve and joins a speed delivery firm which relies on bicycles to avoid traffic jams of New York City. He soon is attracted to a fellow bicycler, Terri, and befriends Hector, a budding entrepreneur. Can Jack regain his nerve and his self-respect, and rebuild his life on a more sound basis?”

  8. Þorbjörn Says:

    Hvernig er það Stefán? Veistu nokkuð hvar ME-MA keppnin verður haldin?

  9. Birkir Says:

    Ég man ekki betur en að Quicksilver hafi verið hágæða mynd, jafnvel “the defining movie” á ferli K. Bacon.

  10. BIRD Says:

    Merkilegt nokk þá er þetta hydrARGYRUM, Vésteinn, en vissulega er rótin sú sama og í argentum, sbr. lo. argyraspis, sem merkir silfraður eða í þá áttina.

  11. beggi dot com Says:

    Heldurðu ekki að hvorutveggja heiti eftir Merkúri, sendiboða guðana?

  12. # Says:

    Þetta er spurning um hænuna og eggið - hvort guðinn sem var fyrirmynd Merkúrs hafi tekið nafnið af plánetunni eða plánetan af guðinum.

    Hvað tengslin milli Merkúrs og kvikasilfurs varðar skiptir hins vegar máli í þessu sambandi að sú tenging er tilkomin löngu eftir að kristni var kominn til sögunnar, þannig að nafngiftin hafði ekki beina trúarlega merkingu heldur var í samræmi við hefð - líkt og þegar 20.aldarmenn völdu nafnið Plútó á nýfundna plánetu.

    Ef tengingin væri eldri, þá mætti lesa miklu meira í hana um samhengi efnafræði og heimsmyndar.

  13. Finnbogi Says:

    Ástæðan fyrir muninum á nöfnum silfurs og kvikasilfurs í lotukerfinu er sú að argentum er silfur á latínu, en á grísku er silfur argyros (ef ég man grískuna mína rétt).

    Hydrargyros er því samsett úr hydor (vatn) og argyros (silfur).