Tilvitnanir

Þrjóturinn hann Sverrir ætlar að halda mér vakandi í alla nótt. Með þessu síðasta bloggi sínu er hann búinn að kveikja áhuga minn rækilega. Þar segir:

Þennan dag árið 1879 fæddist Jósef Stalín. Hann er líklega frægasti maðurinn sem á þennan afmælisdag.
Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir honum: „Dauði eins manns er harmleikur, dauði milljón manna er tölfræði.“
Þetta er oft haft eftir Stalín en ekki er alveg ljóst hvenær hann á að hafa sagt þetta eða af hvaða tilefni. Ég reyndi að finna heimildina fyrir þessu í dag en tókst ekki.
Líklega er þetta flökkusögn og væri gaman að vita hvenær hún kom fyrst fram.

Nú hef ég heyrt þessa tilvitnun margoft og aldrei séð ástæðu til að draga hana í efa. Ég fór svo í sömu netrýni og Sverrir og kemst eiginlega að sömu niðurstöðu - það er sláandi að hvergi virðist hægt að finna neina haldfasta heimild fyrir því að Stalín hafi látið þessi orð falla. Það bendir ansi margt til að tilvitnunin hafi verið eignuð honum síðar.

Þetta grúsk eyðilagði fyrir mér fleiri flottar tilvitnanir. Þannig virðist Voltaire aldrei hafa sagt hin margtilvitnuðu orð um að hann væri ósammála skoðunum e-r manneskju en til í að deyja fyrir rétt hennar til að hafa þær. Því er amk. haldið fram að 20.aldar ævisöguritari hafi búið setninguna til og lagt í munn Voltaires.

Merkilegast þótti mér þó að lesa vangaveltur um Armena-vísun Hitlers: “Hver man nú eftir Armenunum!” - Sem sögð hefur verið sönnun á þeim ásetningi nasista að hefja Helförina. Afar erfitt virðist vera að finna frumheimildina fyrir þessum ummælum og að þau er víst hvergi að finna í málsskjölum Nurnberg-réttarhaldanna. Þess utan kom mér á óvart að orðin eiga að hafa verið látin falla í ræðu í tengslum við innrásina í Pólland, en ekki varðandi gyðingamálin sérstaklega - sem eyðileggur áhrifamátt hennar gjörsamlega.

Hér er þó enn margt á huldu og hver veit nema að snjallari gúgglari en ég geti fundið vísanir í frumheimildirnar og sýnt fram á að rétt sé eftir Stalín, Voltaire og Hitler haft - þrátt fyrir allt.

8 Responses to “Tilvitnanir”

  1. Gúrúinn Says:

    Þetta finnst mér merkilegt því ég var einmitt í gær að komast að því að aldagamla kínverska bölvunin “megirðu lifa á áhugaverðum tímum” er alls ekki kínversk, heldur að öllum líkindum skosk! Sjá nánar hér: http://sighar.guru.is/2004/12/hugaverir-tmar.html og hér: http://sighar.guru.is/interestingtimes.html.

    Það er greinilegt að maður á ekki að taka allt trúanlegt…

  2. Einar Örn Says:

    Ég heyrði einhvern tímann að Stalín hefði sagt þetta við Churchill í Potsdam. Þá í því samhengi að það væri slæmt hve menn gerðu lítið úr því gríðarlega mannfalli, sem Rússar urðu fyrir í Seinni Heimsstyrjöldinni.

    Ég held þó að flest fólk mistúlki þetta samt í dag sem að hann hafi verið að gera lítið úr því hvernig hann svo sjálfur sá til þess að milljónir Sovétmanna létust.

    En ég hef svosem enga sérstaka heimild fyrir þessu.

  3. Örn Úlfar Says:

    Wikipedia er sammála Einari Erni

    “A quote popularly attributed to Stalin is “The death of one man is a tragedy. The death of millions is a statistic.” (possibly said in response to Churchill at the Potsdam Conference in 1945).”

    http://en.wikipedia.org/wiki/Stalin

  4. Sverrir Says:

    Það er samt dálítið grunsamlegt að ekki skuli koma fram í hvaða verki Churchills (og nóg er nú til af þeim) hann hefur þetta eftir Stalín.

    Fróðlegt að sjá að þetta „kínverska spakmæli“ skuli ekki vera eldra en raun ber vitni.

  5. beggi dot com Says:

    Á Wikipedia eru einmitt talsverðar umræður um þessa tilvitnun.

    http://en.wikipedia.org/wiki/Talk:Famous_non-quotation

    Ég hafði reyndar séð, eða heyrt, áður að Stalín ætti að hafa sagt þetta í Potsdam sem komment á eitthvað sem Churchill sagði. Nú verð ég að viðurkenna að ég veit ekki hvort til er niðurskrifað hvert einasta orð sem hraut af vörum þeirra er þarna voru viðstaddir, leyfi mér reyndar að efast um það, svo erfitt verður að sanna, eða afsanna, að Stalín hafi sagt þetta.

  6. Bergsteinn Says:

    Stalín hefur ábyggilega sagt þetta í kaffiboði með Truman (Truman fannst nefnilega bara helvíti fínt díla við Stalín - engar refjar sko).

    Og pínulitla póstmóderníska tilgerð í ofanálag:

    Hún er ansi merkileg þessi lífsspeki nútímamannsins að ef við finnum ekki eitthvað á netinu, þá getur það ekki verið að það hafi gerst eða verið sagt o.s.frv; að sýndarveruleikinn segi okkur hvað er satt og rétt í raunheimum en ekki öfugt. Hmmm….

  7. Sverrir Says:

    Scire ubi aliquid invenire possis, ea demum maxima pars eruditionis est.

  8. Einar G. Pétursson Says:

    “The worst story I can ever tell you about Aldof Eichmann,” says Simon Wiesenthal, “took place during the time he was in Budapest. In the fall of 1944, a group of high-level SS offiecers were sitting in the SS casino there. And one of them asked Eichmann how many people had been exterminated already. Eicmann said: “Over five million.” Well, because he was among comrades and they all knew it was only a matter of months before they would lose the war, one of them asked whether he was worried about what would happen to him. Eichmann gaave a very astute answere that shows he knew how the world worked worked: “A hundred dead people is a catastrophe,” he said. “Six million dead is a statistic.”

    Þetta er úr bók eftir Alan Levy: Nazi hunter. The Wiesenthal File. s. 124 til 5.

    PS. Hvað merkir