Mætingarstjórnun
Á morgun fer ég á mámskeið. Ekki í fyrstu hjálp eða notkun tölvukerfa - heldur mætingarstjórnun! Við millistjórnendurnir í Orkuveitunni erum allir skikkaðir á námskeiðið, þar sem ég býst við að einhver mannauðsstjórnunarfræðingur útskýri fyrir okkur að ef starfsmaður mæti seint og illa eigi ekki að öskra á hann, heldur setjast niður og ræða málin.
Illu heilli verður námskeiðið fyrir utan bæinn og ekki hægt að komast þangað nema mæta tímanlega. Hefði maður annars getað stillt sig um djókinn - að koma of seint á mætingarstjórnunarnámskeið?
Annars brá mér illilega þegar ég fattaði að námskeiðið - sem ég hélt að væri klukkutíma fyrirlestur - tekur heilan dag, frá 9 til 17. Fyrir vikið missi ég af tímanum hjá Ásu ljósmóður - þeim fyrsta frá því að við Steinunn fengum sónarmyndina af gríslingnum…

November 29th, 2004 at 15:37
Það er svívirðilegt þegar vinnan spillir svona fyrir lífi manns!
November 29th, 2004 at 16:04
Þið ættuð að geta platað Ásu ljósmóður til að flutt tímann til svo þið getið bæði mætt… Btw, til hamingju með óléttuna!
November 29th, 2004 at 16:04
Til hamingju með tilvonandi erfingja
November 29th, 2004 at 19:51
Núnú. Frændi á leið til jarðar. Til hamingju.
November 29th, 2004 at 21:39
Ég hefði nú haldið að það nálgaðist að vera fullkomin mætingarstjórnun að skrópa á þessu námskeiði til að fara í ljósmóðurtímann. Þetta námskeið hlýtur að snúast um að kunna að velja og hafna.
November 30th, 2004 at 10:03
Til hamingju með þetta!
December 1st, 2004 at 08:45
til hamingju!
Alveg held ég að þetta námskeið sé dæmi um ofstjórnun. Heill dagur í að læra nokkra punkta um hvernig eigi að taka á slæmri mætingu,