Klámhundar
Gísli hefur síðustu daga velt vöngum yfir árshátíðarlagi MRinga, sem er á harla lágu plani. Menntskælingarnir reyna að bera hönd fyrir höfuð sér og segja textann hafa átt að vera ádeilu. Það er skrítin ádeila.
Menntskælingar eru klámhundar. Sú staðreynd ætti ekki að þurfa að koma neinum á óvart.
Einu sinni fékk ég bágt fyrir skólablað sem við Palli og Úlfur Eldjárn skrifuðum. Það var ekki á háu plani. Einkahúmor og aulabrandarar í bland - sem sagt, dæmigert menntaskólablað.
Forsíðumyndin var þessi mynd eftir Lichtenstein, með textanum: “So it´s true. We´re all prostitutes!” Þessu hnupluðum við úr einhverju Mail-Art blaði sem Palli keypti á þessum árum.
Eins og búast mátti við vorum við kallaðir til konrektors sem húðskammaði okkur fyrir lágkúru, smekkleysu og subbuskap. Hótaði öllu illu ef næsta blað yrði eins og raunar mættum við þakka fyrir að það væri eitthvað næst…
Hápunktur skammarræðunnar var þegar konrektor tók upp blaðið, benti á myndina í horninu og hrópaði: “Og úr hvaða klámblaði tókuði svo þessa mynd?”
- Við svöruðum því til að þetta væri málverkið “Chic” eftir Larry Rivers sem héngi á Metropolitan, að okkur minnti, en að við hefðum fengið hana úr Nútímalistasögu Fjölva. - Þá henti konrektor okkur út.
Við áttum svo sem alltaf von á því að verða teknir á teppið fyrir blaðið, en ekki að það yrði Larry Rivers-myndin sem færi fyrir brjóstið á skólastjórnendum. Mér finnst ekkert ljótt við myndir Rivers, þvert á móti finnst mér þær fallegar og hann einn flottasti popplistamaðurinn. En svona geta menn séð ljótleikann í fallegustu hlutum.
Læt fylgja tengil á tvær myndir eftir Larry Rivers - þó ekki þá sem birtist í SKólatíðindum.

November 28th, 2004 at 17:46
Voru nemendur flokkaðir í lambakjöt og nautakjöt á ykkar árum?
November 28th, 2004 at 18:49
Stebbi og Palli eru grísakjöt.
November 28th, 2004 at 21:58
Nei. Ekki minnist ég þess að talað hafi verið um lambakjöt og því síður nautakjöt. Það er seinni tíma siðspilling. Kenni sjónvarpinu um.
November 29th, 2004 at 01:21
Þessi árshátíðarlagsumræða virðist algerlega einskorðast við “umheiminn” (þ.e. allt annað en samfélagið innan skólans).
Í MR vita fæstir að árshátíðarlagið hafi komið út. Það var tilkynnt að sökum lélegrar þáttöku yrði ekki gefinn út árshátíðardiskur í ár. Bæði í fyrra og hittífyrra var gefinn út árshátíðardiska, afar vandaðar tónsmíðar og eigulegir gripir.
Svo virðist vera sem að einhver lög hafi þó verið sett inn á vefinn. Það var ekkert auglýst og því fór það alveg fram hjá mér (þ.e. allavegna þangað til núna). Hingað til hefur þó ekki tíðkast að velja eitt lag af disknum og kalla árshátíðarlag. Þetta lag sem er til umræðu er því víst ekkert opinbert árshátíðarlag. En nafn lagsins er Árshátíðarlagið, væntalega vegna þess að upphaflega var því ætlað að rata inn á árshátíðardiskinn. Get ég vel skilið að nafngiftin sé ruglandi. Það ber þó að hafa í huga að þó lagið heiti Árshátíðarlagið þá er það ekki árshátíðarlagið.
Texta lagsins þekki ég aðeins af afspurn. Mér sýnist hann vera fíflaskapur. Einhver einkahúmor. Léleg satýra á það hroðalega tónlistaumhverfi sem popptívikynslóðin virðist búa við. Kannski dálítið misheppnað. ÞAð skiptir ekki öllu.
Það sem mér finnst skipta máli eru viðbrögð rektors og fjölmiðla. Hræsni og tvöfeldni.
Fyrravetur var ég ritstjóri Skinfaxa. Með mér í ritnefnd voru tvær knáar stelpur sem tóku það að sér að búa til auglýsingar fyrir væntalega útgáfu. Þær völdu sér þemað “ögrandi”. Svo klipptu þær út (á einstaklega smekklegan hátt) stórar klámmyndir af körlum og konum og límdu á plaggöt.
Rektor flippaði. Ég var kallaður á teppið og ásakaður um kvenfyrirlitningu. Karlgarmurinn vændi mig um rótgróinn perraskap og fordóma og hafði í hótunum í krafti einhverrar jafnréttisáætlunar sem skólinn státar af. Ég gerði það sem ég gat til að verja verk stúlknanna. Hann trúði því ekki að stelpurnar bæru ábyrgð á þessu. Og einhverra hluta vegna agnúaðist hann ekkert út í karlplaggötin.
Lýsir það ekki best hans eigin fordómum?
Er það þetta sem jafnrétti snýst um?
Er þetta ekki í hnotskurn það sem háir jafnréttisumræðu í þjóðfélaginu?
November 29th, 2004 at 13:14
Hættir klám að vera klám þegar það er hengt upp á vegg á Metropolitan safninu?
November 29th, 2004 at 14:11
Það hlýtur að vera. Á sama hátt og klámmyndir hætta að vera klámmyndir þegar þær komast inn á kvikmyndahátíð…
November 30th, 2004 at 01:13
Ertu að meina belgísku klámmyndina sem kom á kvikmyndahátíðinni um árið?
Ég slysaðist á hana. Í hlénu horfðu velklæddir sýningargestir hver á annan og voru greinilega allir að reyna miðla sömu boðum með augunum:
Ég vissi ekki að hún væri svona.
En kannski vissu það allir og voru að vona að klámið væri nú hressandi.
En myndin var raunar foxleiðinleg.