Karlmennska
Áðan skellti ég óheyrilega þungri snittvél í skottið á Volvonum við annan mann. Þetta er í það minnsta 55 ára gamall gripur og í þá daga voru menn ekkert að spara pottjárnið í svona maskínur. Vissulega hefði það þó verið sterkur leikur að vera í vettlingum við svona flutninga í frostinu.
Þegar ég fæ svona gripi á safnið og ræði við gömlu eigendurna, þá fæ ég alltaf mikið karlmennskukikk. Maður grípur um stykkin kæruleysislega og segir svo eitthvað eins og: þetta er helvíti góðir klúbbar! Þetta hefur nú varla farið mikið út úr húsi, var karlinn með verkstæðið sitt hérna í skúrnum? Maður sér að það hefur verið almennileg þykkt í rörunum á þessum tíma - ekki plastdrasl og svona…
Svona getur maður nú verið stór karl. Samt gæti ég ekki snittað með svona maskínu fyrir mitt litla líf.

November 18th, 2004 at 16:17
Margir myndu eflaust halda að snittvél hefði eitthvað með smurt brauð að gera!
November 18th, 2004 at 16:19
Margir myndu eflaust halda að snittvélar hefðu eitthvað með smurt brauð að gera!
“Djöfull eru þeir með öflugar snittvélar þarna hjá Júmbó, já, eða Sóma…”
November 19th, 2004 at 14:12
Getur maður verið “í vettlingum” (nema maður sé Tumi þumall)? Er maður ekki “með vettlinga/trefil/húfu” - og svo auðvitað “rauðan skúf” (eitthvað fleira?) en “í sokkum/buxum/skyrtu/úlpu” o.s.frv.?
Ekki misskilja mig, mér er alveg sama, enda alkunnur reiðareksmaður. Ég bara fór að velta þessu fyrir mér. Svona er nú gaman að vera málfræðingur.
November 19th, 2004 at 16:54
Mér langar líka að vita hvað snittvél gerir, en ákvað þó að falla ekki í smurbrauðsgryfjuna augljósu.
Hvað er málið með forsetningabesservissið?
Lágmark að láta a.m.k. regluna um ,,í” og ,,með” í klæðaburði fylgja.
Persónufornafnið í byrjun er ætlað sem rauð dula.
November 20th, 2004 at 17:04
Aldrei er nú íslenskan rökrétt það má hún eiga. Það er t.d. ekki auðvelt að sjá muninnn á því að vera “í sokkum” eða “í vettlingum”. Í báðum tilvikum er fremsti hluti útlimanna hulinn. Hvers vegna þarf maður ekki að vera “Tumi þumall” (eða ætti kannski að segja “Tumalína tá” til að geta verið í sokkum?
November 20th, 2004 at 21:21
Hi Stebbi..
..komment a kommentid um murpistilinn fra Sverri Jakobs sem var vel tharfur reidipistill:
sammala sammala sammala
..tjekkadu a Dahr Jamail. Hann veblogar fra Bagdad a hverjum degi, slodin er: http://www.dahrjamailiraq.com/weblog/