Krítískt

Ræddi við bifvélavirkjann áðan. Hann segir að stýrið sé í skralli og að ég muni varla fá það í gegnum skoðun eftir stendur vandamálið með sætið og fleira smálegt.

Við urðum sammála um að hann myndi láta bílinn vaða í skoðun í fyrramálið og svo myndum við sjá til hversu miklar athugasemdir væru gerðar. Í kjölfarið ætti þá að vera hægðarleikur að meta hversu dýrt þetta dæmi yrði. Krossleggjum fingur.

# # # # # # # # # # # # #

The Last of the Famous International Playboys er frábært lag. Ég er búinn að eiga Bona Drag lengi í diskasafninu, en er fyrst núna að átta mig á snilldinni. Þetta gerist stundum með plötur. Þannig var ég búinn að eiga The Queen is Dead í nokkur ár áður en ég uppgötvaði hana fyrir alvöru.

In our lifetime those who kill
the newsworld hands the stardom
and these are the ways
on which I was raised
these are the ways
on which I was raised
but I never wanted to kill
I am not naturally evil
such things I do
just to make myself
more attractive to you
Have I failed?

Snilld

# # # # # # # # # # # # #

Steinunn er á aðalfundi Öryrkjabandalagsins. Kemur eftir dúk og disk. Nenni ég að elda? Nenni ég að skella í þvottavélina? Nenni ég að henda fiskafgöngunum sem eru búnir að liggja alltof, alltof lengi í ísskápnum?

Njah, varla.

4 Responses to “Krítískt”

  1. Guðbrandur Says:

    Já, Morrisey er ansi góður, þó hann solo slái ekki við The Smiths. Ég sá hins vegar heimildaþátt um The Smiths í fyrra, þar kom fram að hann kemur fremur illa fram við fyrrum félaga sína í hljómsveitinni (sér í lagi Rourke og Joyce ) og virðist hann hvað það varðar vera hinn versti púki. Það eru til að mynda stöðug málaferli í gang vegna greiðslna. Mér þótti miður að sjá hve forpokuð aurasál hann virðist vera og Morrisey-ímynd mín beið hnekki.

  2. Moz Says:

    Morrissey er hinn mesti hrokagikkur en samt búinn að vera í miklu uppáhaldi hjá mér. Heimildarmyndin the importance of being Morrissey er mikil snilld.

  3. Moz Says:

    Morrissey er hinn mesti hrokagikkur en samt búinn að vera í miklu uppáhaldi hjá mér. Heimildarmyndin the importance of being Morrissey er mikil snilld.

  4. payday loans Says:

    Thanks for that insightful comment! It makes interesting reading, especially when I need a payday loans.