Gervilimir

Er Live and Let Die lélegasta Bond-myndin? Svei mér þá, ef það er ekki bara svo!

Margar hafa Bond-stúlkurnar verið slappar, en blökkustelpan Rosie er fer nærri því að vera sú verst leikna. Tarot-spilalesarinn lék betur, en það var ekki hægt annað en að fá kjánahroll yfir afmeyjunarsenunni þar sem hún glataði spádómsgáfunni í bælinu með Bond.

Hvernig stendur á því að í James Bond-myndum er söguþráðurinn hiklaust látinn fara um þekkt nafngreind ríki í Evrópu og Asíu, en í Rómönsku Ameríku eru búin til bullnöfn á eyjum og heilu ríkin eru diktuð upp? Hvers vegna mátti Live and Let Die ekki gerast á Haiti? Óttaðist kvikmyndaverið mótmæli frá sendiráðinu?

Ekki var kvikmyndaframleiðandinn í það minnsta hræddur við málsókn frá réttindasamtökum bandarískra blökkumanna. Var einhver bandarískur svertingi í myndinni sem ekki var klæddur eins og melludólgur? Annars var óborganlegasta sena myndarinnar þegar flókið njósnakerfi glæpakóngsins fylgist með ferðum Bonds í leigubíl fram og aftur götur Harlem. Öll fyrirhöfnin verður þó kjánaleg þegar í ljós kemur að sjálfur leigubílsstjórinn er á snærum vonda kallsins.

Um persónu heimsku sveitalöggunnar undir lokin vil ég sem fæst orð hafa. Sömuleiðis fimm mínútna brandarann í byrjun myndar sem gekk út á það eitt að Bond væri með hálfberrassaða stelpu falda inni í fataskáp og fúli stjórinn mátti ekki sjá hana… tíhí!

En við að horfa á Bond-myndirnar í striklotu kemur í ljós að handritshöfundarnir þjást af þremur fóbíum, sem sífellt skjóta upp kollinum. Þeir eru hræddir við:

i) Hákarla - alltaf skal Bond þurfa að kljást við þær grimmu skepnur.

ii) Lestarklefa - magnað hversu oft kemur til átaka í lestarklefum í þessum myndum.

iii) Fólk með gervilimi - skyldu manneskjur með króka í stað handa eða stálskolta í stað tanngarðs vera illa innrættar frá náttúrunnar hendi eða er það fötlunin sem breytir þeim í ófreskjur? Skiptir ekki máli, en eftir stendur að ótrúlega hátt hlutfall af illvirkjum í Bond-myndum er fatlað fólk.

# kveður að sinni.

8 Responses to “Gervilimir”

  1. Óli Says:

    Jú, svei mér ef það er ekki rétt hjá þér að þetta sé slappasta Bond-myndin. A View to a Kill er reyndar annar sterkur kandidat. Það má virða það myndinni til vorkunnar að hún er gerð á tímabili þegar meira en venjuleg vitleysa réð ríkjum í kvikmyndaheiminum. Eins voru svartir menn skyndilega komnir í tísku og það kom vægast sagt ekki vel út í þessari mynd.

  2. Helgi Briem Says:

    Mig grunar að Shaft, Dolomite, Black Belt Jones og aðrar ámóta blaxplo myndir hafi haft mikil áhrif á þessa Bond-ræmu.

  3. Örn Úlfar Says:

    Staðreynd: The Black Stuntmen Association fær sérstakt kredit í lok myndarinnar.

  4. Arngrímur Says:

    Nei, kommon. Hvað um Moonraker?

  5. Baldvin Says:

    A View to a kill er sú allra versta ásamt octopussy og die another day. Live and let die er mun betri en þær og hefur líka besta bond lagið

  6. Sverrir Says:

    Það má nú ekki gleyma því að Bond-myndirnar endurspegla heimsmynd hægrimanna.

    Það þarf því ekki að koma á óvart að öryrkjar hafi komið í stað Rússa sem aðalóvinurinn. Kannski merkilegt hversu snemma það virðist hafa gerst!

  7. thors Says:

    Æ, hversu lítil innsýn, hve mikill vilji?

    Hér er leitað langt yfir skammt í flestum tivikum. vélar vs menn er greinilega í hávegum haft. Þar koma gerfilimahugsanir hvergi nærri enda enginn össur á svæðinu.

    Í HVERRI EINUSTU BONDMYND ER HAMRAÐ Á HVÍTUM YFIRBURÐUM. Hættu því að staglast á þessum maður. Í þessari mynd er aðaláhersla lögð á vúdúhrylling og þ.a.l. verður til ákv. birtingarmynd svartra.

    Pepper, löggan suðuríska, er augljóslega einhver sterkasta aukapersóna Bondmyndanna, frábærlega leikinn og kómískur. Þetta liggur ljóst fyrir ef að horft er með réttu hugarfari og vondi kallinn (vúdúkonungurinn) er einn af fáum vel leikum í seríunni.

    Ekki orð um þetta meir. Og hagaðu þér svo eins og maður!