Krítar(póst)kort

Það var ekki bara ruslpóstur sem beið mín á Mánagötunni í gær, heldur tvær bitastæðari sendingar.

Annars vegar var um að ræða Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar, sem innihélt grein sem sýnir fram á að and-hraðakstursauglýsingar virka. Þá voru myndir frá Fáskrúðsfjarðargöngum og gangur Almannaskarðsganga rakinn. Áhugavert.

Hins vegar var póstkort - frá Krít, stimplað fyrir viku. Það var frá spurningaliði Verslunarskólans sem fór þangað í vinningsferð sína. Þeir sögðust hlakka til að hitta mig í keppninni næsta vor.

* * *

Barmmerkjagerðartímabilið er hafið. Sat við yfir sjónvarpinu í gær og þrykkti út SHA-barmmerkjum (klassíska: Ísland úr NATO, herinn burt-merkið). Síðar í vikunni gerum við eitthvað nýtt í tilefni af þingsetningu á föstudaginn. Ég verð illa svikinn ef það verður ekki nokkur mannsöfnuður á Austurvelli þá - af ýmsum tilefnum.

4 Responses to “Krítar(póst)kort”

  1. Björn Friðgeir Says:

    Ha? Var ekki Moggi að segja að þetta virkaði *ekki*? Frétt í blaðinu í dag?

  2. Herra X Says:

    Og ég sem hélt að Coventry myndi rífa dolluna?

  3. Geir Guðjóns Says:

    Hvað? Geta menn verið langt fram í fertugsaldurinn og verið að keppa í gettu betur?

  4. Sverrir Guðmundsson Says:

    Það má ekki láta hjá líða að minnast á aðalgreinina í Framkvæmdafréttum - um malbikunarráðstefnu í Ameríku. Útlagning á risaskjá!

    Við verðum að drífa okkur í það, að skipuleggja hópferð á næstu ráðstefnu.