Afsal - hjálp!
Hvar finnur maður standard afsals-eyðublað fyrir íbúðaviðskipti?
Starfsfólk einnar fasteignasölu benti mér á Íbúðalánasjóð eða bókaverslun.
Bókaverslunin kannaðist ekki við að eiga svona pappír.
Íbúðalánasjóður sagði að þetta væri bara til á fasteignasölunum.
Og önnur fasteignasala sagði að útilokað væri að fá standard afsalsblað útprentað frá þeim og að hver fasteignasala og lögmannsstofa gerði sín eigin blöð og þeim væri ekki útbýtt.
Samt líta nánast öll afsöl eins út, þannig að einhver er fyrirmyndin.
Er einhver vefsíða eða annar staður þar sem ég get nálgast afsalseyðublað?
Hjálp!

August 30th, 2004 at 15:12
Prófaðu t.d. þennan link: http://www.sumarhus.is/samningar/index.htm
Ef þú átt síðan gamalt afsal frá fyrri fasteignaviðskiptum þá getur þú vel púslað þessu saman sjálfur. Muna að það á að koma fram fastanúmer eignarinnar.
August 31st, 2004 at 08:38
Svo var gefinn út bók/diskur fyrir nokkrum árum sem heitir “Samningar og skjöl” - kannski er afsalsblað þar.
August 31st, 2004 at 08:38
Svo var gefin út bók/diskur fyrir nokkrum árum sem heitir “Samningar og skjöl” - kannski er afsalsblað þar.
August 31st, 2004 at 11:00
Fyndið að frægasti Frammari landsins sé ekki búinn að commenta á leikinn. Hefði ekki getað verið betri úrslit fyrir mig og mitt lið Fimleikafélagið, vona bara að Fram séu ekki komnir í of gott stuð, FH verður að eiga smá möguleika í næsta leik.
September 2nd, 2004 at 08:46
Þú átt frænda er heitir Steinþór og hann ætti að geta reddað þessu