Skatturinn

Jæja, þá er maður búinn að skoða álagningarseðilinn á netinu. Renndi blint í sjóinn með útkomuna, þar sem ég gat ekki fengið bráðabirgðaútreikning á sínum tíma og vissi t.d. ekki hvernig samsköttunin hjá okkur Steinunni kæmi út.

Dómurinn er sem sagt fallinn og ég skulda minna en ég hafði búið mig undir. Nú er gaman!

Þetta þýðir jafnframt að við munum gera alvöru úr því að kaupa nýja tölvu á Mánagötuna, til viðbótar við gömlu Toshibuna mína sem er orðin rúmlega fimm ára, en það jafngildir víst sjötugu í tölvuárum - að mér skilst.

Þegar tölvan kemst í hús, er næsta skrefið að verða sér út um almennilega nettengingu heima. Við erum raunar búin að vera netlaus þar í óratíma.

Þá er bara spurningin, hvernig tölvu er best að kaupa? Hvað þarf maður að setja mikinn pening í þetta? Og hvaða nettengingakostir eru bestir?

- Annars á ríkið ennþá möguleika á að skjóta þessar áætlanir okkar niður. Óðinn má vita hversu mikið þarf að greiða í stimpilgjöld o.þ.h. í tengslum við þessi helv. íbúðarkaup…

* * *

Luton og Charlton taka æfingarleik í vikunni. Það er kominn glímuskjálfti í mann.

7 Responses to “Skatturinn”

  1. JBJ Says:

    Hversu öflug þarf greyið að vera?

    Þú getur fengið fínustu tölvu á um 100þ krónur. Ef þú hins vegar vilt nota hana í hljóð/myndbandagerð/spila nýjustu tölvuleiki muntu þurfa að bæta nokkrum tugum við.

  2. Inga lesandi Says:

    Tölvukaup…

    Þú færð bara einhvern kunningja (t.d. JBJ ef þú þekkir hann) sem hefur vit á þessu til að hjálpa þér að velja íhlutina, verslanirnar geta svo sett þetta saman fyrir þig ef þú treystir þér ekki í það. Þetta á víst að vera hagkvæmara en að kaupa “tilbúna” vél.

    www.vaktin.is sýnir verð á því helsta.

  3. Þorbjörn Says:

    Neineinei, ekki láta þér detta í hug annað en að kaupa þér almennilega tölvu. Mæli með Dell. Þú gætir þurft að borga nokkrum þúsundköllum meir en þú lendir þá ekki í vandræðum með neitt, átómatískur stuðningur við alla íhluti, viftusuð er í algjöru lágmarki o.s.frv.

    Í skólanum þar sem ég vinn eru keyptar margar tölvur og ýmsir framleiðendur hafa verið prófaðir. Fujitsu = drasl, Compaq = aðeins betra drasl HP voru góðar en eru ófáanlegar eftir sameiningu við Compaq, Tulip voru bestar hér einusinni…..

  4. Höf ók Says:

    Gríðarleg vonbrigði með sjónvarpsfréttir kvöldsins. Hræðilegt. Annar dagurinn í röð þar sem ekkert er um Hrafn Jökulsson í sjónvarpsfréttum. Hvað er að hjá íslenskum fréttamönnum? Á að gera útaf við mann? Ekkert um að hann sé að selja bækur. Ekkert um að hann sé með stjórnarfund í Hróknum. Ekkert um að hann sé að opna vefsíðu til að fá yfirlýstan gyðingahatara og viðurkenndan geðsjúkling til Íslands til að bæta á álagið á geðdeildum hér. Þetta er ferlega léleg fréttamennska. Maður verður að vita hvað Hrafn er að gera í dag. Meira að segja Badabing klikkar á þessu líka því þar, eins og hér er heldur ekkert um hvað Hrafn er að gera í dag. “I want my HJ TV”

  5. Steiner Says:

    Meira tölvubesserviss. Þú ætlar væntanlega ekki að fara að klippa vídeó eða keyra veðurlíkön á henni, þannig að ef þú vilt hafa þetta sem ódýrast kaupirðu þér turn fyrir 40-50 þúsund kall, jafnvel minna. Þú getur svo keypt þér notaðan 17 tommu skjá á partalistanum (http://www.molar.is/listar/partalistinn/2004-07/)fyrir innan við 10 þúsund kall.

    Ef þú vilt vera flottur á því geturðu auðvitað splæst auka 100 þúsundkalli í Dell vél. En þú ert lítið betur settur með slíkan grip.

  6. Daníel Says:

    Ég verð að taka undir með síðasta ræðumanni. Þú skalt kaupa þér turn í Tölvulistanum og svo notarðu mús, lyklaborð, tölvuskjá, forrit o.s.frv. áfram úr gömlu tölvunni. Þeir hjá Tölvulistanum setja þetta meira að segja ódýrt inn fyrir þig (forrit, stýrikerfið o.s.frv.). Þú getur m.a.s. sparað enn meir ef þú notar drif o.þ.h. áfram úr gömlu tölvunni og kaupir bara turn og móðurborð. Þegar tölvan mín fór hér um árið keypti ég bara nýtt móðurborð sem mágur minn setti í fyrir mig og þannig fékk ég í raun nýja og öflugri tölvu fyrir smotteríspening. Þetta er að sjálfsögðu ekki jafn fínt og ný Dell tölva en kostar um 20-40 þús. í Stað 150 - 250 þús.

  7. Elías Jón Says:

    Þar sem ég er lagður af stað í krossferð (lesist eplaferð) til að útbreiða boðskap Makka legg ég til að þú hugleiðir að fá þér makka.