Áfram heldur keppnin

Jæja, þá er Fréttablaðið búið að plögga keppnina. Býst við að sjoppustjórar landsins fari nú að pestera mig og reyna að væla og skæla sínar lúgur inn á listann.

Úrslit eru fengin úr síðustu viðuregnum:

Þjóðvegurinn:

Brú 18 : Staðarskáli 26

KHB Egilsstöðum 13 : Varmahlíð 25

Þéttbýlið:

Hamraborg 13 : Bogga Bar 9

Hallinn 19 : Skalli 14

En þá er komið að næstu viðureignum.

Þéttbýli:

BSÍ gegn kaffistofunni í Árnagarði.
Hér takast á hinar talandi og vinnandi stéttir. Hvort tveggja er þjóðlegt út í ystu æsar. Árnagarður hýsir menningararfinn, en BSÍ er spegill þjóðarsálarinnar. Jafnframt mun nú koma í ljós hversu stór hluti lesenda síðunnar eru Árngerðingar gamlir eða nýir.

London Austurstræti gegn Draumnum Rauðarárstíg.
London er gömul yfirstéttarsjoppa, eins og nafnið gefur til kynna. Var reyndar ennþá svalari meðan hún var á horninu, en eftir sem áður er ljóst að hún er engin bensínstöð.
Draumurinn er, tja - stofnun í íslensku samfélagi. Júlli í Draumnum á sér fáa líka í sjoppubransanum. Þar getur fólk sem misst hefur fótana í lífinu fengið að ylja sér og má drekka kardimommudropana sína, svo lengi sem ekki eru viðskiptavinir í búðinni. Mæli samt ekki með því að kaupa neit án þess að lesa um síðasta söludag.

Dreifbýlið:

Hlíðarendi á Hvolsvelli gegn Víkurskála, Vík í Mýrdal.
Uppgjör Sunnlendinganna. Nánast allir stoppa í Vík og velflestir á Hvolsvelli (nema Hellu-liðið). Hér hljóta allir að hafa skoðun.

Essó-skálinn á Blönduósi gegn Borgarnesi.
Eftir nokkra umhugsun var ákveðið að fallast á að skilgreina Borgarnes sem eina stóra sjoppu. Í samræmi við þá skilgreiningu er Borgarnes eina sjoppan á Íslandi sem hefur sundlaug, skemmtigarð og grunnskóla. Essó-skálann á Blönduósi ætti heldur ekkiu að þurfa að kynna. Eflaust hörkuviðureign.

60 Responses to “Áfram heldur keppnin”

  1. Óli Njáll Says:

    BSÍ - Arnagarður: Tvímælalaust hefur Árnagarður vinninginn þó að ill öfl hafi reynt að eyðileggja sjoppuna með skelfilegum nútíma mötuneytishúsgögnum.

    London - Draumurinn: London fær mitt atkvæði enda er Draumurinn daunill rónasjoppa.

    Hlíðarendi - Víkurskáli: Þó ekki væri nema vegna nafnsins fær Hlíðarendi mitt atkvæði. Áfram Valur!

    Blöndós - Borgarnes: Ekki sanngjarnt að láta Essóskálann keppa við heilt Bæjarfélag. Ég kýs Borgarnes enda hlýtur Geirabakarí að vera hluti af þessari sjoppu og það er snilld.

  2. Gunni Says:

    Árnagarðurinn kýs Árnagarðinn að sjálfsögðu.

    Hann dreymir háleita drauma - Draumurinn.

    Eru ekki Land og Synir frá Hvolsvelli? - Víkurskálinn.

    Er ekki lögfræðingurinn Villi Vill lögreglustjóri á Blöndósi? - Bograrnes.

    Dúnmjúk og bleik flauelisbylting!!!

  3. Leedsarinn Says:

    BSI - Árnagarður: Aldrei hef ég komið í Árangarð, en hef fengið mér nætursnarl á BSÍ!!!! Árnagarður fær því mitt atkvæði

    London - Draumurinn: London

    Hlíðarendi - Víkurskáli: Víkurskálinn vinnur þessa á sjónarmun.

    BLönduós - Borgarnes: Mér finnst nú að Blönduós skálinn ætti að vera skráður sem sveitarfélag líka. ÉG held að 99% íslendinga viti ekkert um staðinn en stoppa alltaf í sjoppunni (sumir virða fyrir sér geimskipið sem er kallað kirkja). Fyrir mér er Essó skáli Blönduóss sjoppan sem ég stoppa í milli Reykjavíkur og Akureyrar og fær því öll mín atkvæði.

  4. Skarpi Says:

    BSÍ - Árnagarður: Ja, er opið um nætur í Árnagraði? Eða um Jólin? BSÍ, enda er ég djöfuls verkamaður.

    London - Draumurinn: Draumurinn. Júlli er fínn kall, kom alltaf mjög vel fram við ömmu mína heitina, mætti meirað segja í jarðarförina hennar. Svo seldi hann sígarettur í stykkjatali á 25 kall, okkur litlu strákunum. Haha.

    Blöndós - Borgarnes: Hmmm. Borgarnes. Það er bara ofmikil snilld að kalla heilt bæjarfélag sjoppu. Sem Borgarnes náttúrulega er. Hefur einhvern skoðað fólkið sem býr þarna? Damm.

    Hlíðarendi - Víkurskáli: Víkurskáli. Þó Hlíðarendi heilli alltaf, útaf sögunni sko! Er það á Hlíðarenda sem þeir eru með Ríkið? Það er auðvitað plús. En Vík er fín, vondur en spennandi matur þar!

    Takk fyrir mig.

  5. Kjartan Says:

    Boggabar úr leik? O tempora! O mores!

  6. gunnare Says:

    1: BSÍ

    2: Draumurinn

    3: Víkurskáli

    4: Essó á Blönduósi

  7. bergsteinn Says:

    Árnagarður, slétt sama um aðra staði.

  8. Kristín Says:

    BSÍ - Árnagarður: BSÍ. Kaffistofan í Árnagarði er engin sjoppa og þar að auki er augljóst að verkfræðisjoppan í VR-II er eina alvöru sjoppan á háskólasvæðinu. Aftur á móti hefur BSÍ reynst mér vel í gegnum tíðina enda nauðsynlegt að fjárfesta í ópal fyrir rútuferð.

    London - Draumurinn: London. Ég vil helst sleppa við það að versla með rónum þó það sé reyndar líka erfitt að forðast þá í Austurstræti.

    Hlíðarendi - Víkurskáli: Hlíðarendi. Það er auðvitað það eina rétta að hafa ríkið inni í sjoppu, maður getur þá skolað pulsunni niður með bjór.

    Blönduós - Borgarnes: Blönduós. Ég er fædd og uppalin á Akranesi og þá er algjört prinsipp mál að vera á móti öllu sem er kennt við Borgarnes!

  9. Halldór Berg Says:

    BSÍ

    Pass

    Víkurskáli

    Borgarnes

  10. Nanna Says:

    BSÍ. Það eru slétt tuttugu ár síðan ég kom á kaffistofuna á Árnagarði síðast en ansi hefur hana sett mikið niður ef hún er orðin að sjoppu.

    London. Ekki síst út af kápunni sem ég keypti mér þar þegar þetta var London Dömudeild.

    Víkurskáli.

    Esso-skálinn á Blönduósi. Borgarnes er bara tú möts. Og svo á ég minningar um rómantíska hamborgaramáltíð í Esso-skálanum .

  11. SverrirJ Says:

    1: Árnagarður. Sannkölluð tímavél.

    2: London, af heilbrigðisástæðum.

    3: Víkurskáli.

    4: Borgarnes. Sjoppa með sundlaug, beat that!

  12. Beria Says:

    Draumurinn rúllar London upp - enda Ketill ekki lengur meðal okkar. Árnagarður er ónýtur og því sigrar BSÍ en það er meira vegna lélagrar mótspyrnu. Víkurskáli er með sveitta og góða borgara og Hvolsvöllur of nálgægt Selfossi til þess að eiga séns. Blónduós er of nálægt Brú til þess að eiga séns og Borgarnes líka en Essó í Borgarnesi er skárri.

  13. Birkir Says:

    1. BSÍ. Reyndar eru kleinurnar í Árnagarði magnaðar. Hins vegar er BSÍ miklu sjoppulegri og hefur oft reynst mér vel þegar ég verð tóbakslaus eftir miðnætti. Auk þess eru háskólasjopppurnar hættar að selja tóbak…

    2. Góður Draumur maður… Engin spurning hér.

    3. tja… nokkuð sama, vel Hlíðarenda nafnsins vegna.

    4. Borganes er það sem að Tyler Durden hefði sennilega kallað Single serving town. Einum of mikið að hafa sjoppufílingin yfir heilu byggðarlagi. Ég vel Blönduós, þó það sé hallærissjoppa, þá er hún allavega vel staðsett.

  14. Björn Friðgeir Says:

    BSÍ-Árnagarður: Úr vöndu að ráða. Hvorug er sjoppa í mínum huga þó 10 ár séu síðan ég kom á kaffistofuna í Árnagarði. Pass.

    London-Draumurinn. Aldrei í Drauminn komið, og sjaldan í London. Pass.

    Hlíðarendi - Vík. Nú uppveðrast gamlir Hvolsvellingar. Baráttan var blóðug í denn milli Bjarkarinnar og Essósjoppunnar og Essósjoppan vann í mínum huga. Þar liggja minningarnar. Hlíðarendi er orðið hálfgert veitingahús og ekki sjoppa. En auðvitað fær Hlíðarendi hér atkvæði.

    Essó Blöndósi vs Borgarnes. Aldrei í essóblöndós komið og hlýt að kjósa Borgarnes, enda Vestlendingur að ætt.

  15. Hreinn Hjartahlýr Says:

    Ég ætla að velja BSÍ enda keypti ég mitt fyrsta Samúel-blað þar. En þá var sjoppan svona lítill skúr úti á miðju gólfi.

    Svo vel ég London enda er hann Júlli stundum of harðhentur við geðsúklingana sem versla við hann.

    Um dreifbýlið get ég ekkert sagt.

  16. Erna E. Says:

    1. Árnagarður - að sjálfsögðu. Samt aðallega gamla kaffistofan (sem hlýtur að vera óskoraður sigurvegari í nostalgíuflokknum þegar keppni þar hefst.

    2. London - ég vinn svo nálægt. Hefði samt frekar viljað fá að kjósa Texas snakkbar - hafði því miður ekki rænu á að tilnefna þá ágætu sjoppu þegar færi gafst.

    3. Pass. Ókunnug sjoppunum og hef litla skoðun á sunnlenskum þorpum.

    4. Essó-skálinn á Blönduósi.

  17. Sv1 Says:

    BSÍ/Árnagarður: Árnagarður fær mitt atkvæði þó ég hafi aldrei átt viðskipti þar, en (næstum) einu viðskipti mín við BSÍ einkenndust af þeim fáránleika að ALLT er lokað í Reykjavík á páskadag (nema BSÍ) og BSÍ makar þá krókinn á því með því að selja hrikalega vonda borgara með sérstöku 30% stórhátíðarálagi - sem er auðvitað bara skandall.

    London/Draumurinn: Draumurinn, það er aðdáunarvert að standa í standa í sjoppurekstri á þessum forsendum og svo hefur London aldrei tekist að selja mér Lottómiða með vinningi (frekar en öðrum sjoppum).

    Hvolsvöllur/Vík: Víkurskáli hefur vinninginn hér fyrir ótal pissustopp í gegnum tíðina auk þess að vera sérstaklega þjóðleg sjoppa sem selur dýrt bensín (sem maður þarf samt að dæla sjálfur) og vondan mat (versti borgari sem ég hef smakkað fékkst þar, reikna með að hann hafi verið sjórekinn).

    Blönduós/Borgarnes: Borgarnes er auðvitað þjóðarsjoppan enda virðist öll þjóðin safnast þar saman á föstudags og sunnudagskvöldum.

    Commit;

  18. Jolli Says:

    BSÍ

    pass

    Hvolsvöllur

    Borgarnes, (samt ósanngjarnt að láta eina sjoppu keppa við heilt sveitarfélag)

  19. Stefán Bogi Says:

    1. BSÍ, engin spurning. Snilldarbúlla sem selur svið og er alltaf opin en auk þess þá er kaffistofan ekki sjoppa, útrætt mál.

    2. Þekki hvoruga, skila auðu. (Sem er afstaða!)

    3. Hlíðarendi, fær mitt atkvæði. Flottur þjóðvegastaður, flott nafn og í alla staði betri þó að Víkurskálinn sé ágætur.

    4. Ég hefði kosið Hyrnuna, en í ljósi þess að það er fráleitt að skilgreina heilan þéttbýliskjarna með þremur þjóðvegasjoppum sem eina sjoppu, sérstaklega þegar Blönduós fær ekki sömu meðferð fær Essó Blönduósi mit atkvæði.

    Að lokum legg ég svo til að Söluskálinn í Varmahlíð verði lagður í eyði….

  20. Arnór Says:

    BSÍ-Árnagarður: Árnagarður fær atkvæðið, þrátt fyrir að vera vart skugginn af sjálfum sér eftir nútímavæðinguna. BSÍ þekki ég af slæmu einu.

    London-Draumurinn: Draumurinn rúlar.

    Hlíðarendi-Víkurskáli: Hlíðarendi tekur þessa, enda skyldustopp á leið í Mörkina.

    Essóskálinn-Borgarnes: Borgarnes tekur þessa, man ekki eftir neinni ljótri kirkju á Borgarnesi sem dr. Maggi teiknaði.

  21. bens Says:

    1. Árnagarður

    2. Draumurinn

    3. Hlíðarendi

    4. Auður og ógildur (Borgarnes???)

  22. Kata Says:

    Ég kýs að sjálfsögðu með Árnagarði. Þar er sjoppa með sál.

  23. Óli Gneisti Says:

    Ég verð eiginlega að segja pass við öllu nema að ég kýs Borgarnes fyrir gamla tíma.

  24. Jón Says:

    BSÍ að sjálfsögðu - aldrei skilið þessa undarlegu nostalgíu um kaffistofuhörmungina í Árnagarði. Pass að öðru leyti.

  25. Heiða Says:

    BSÍ/Árnagarður - Erfitt hérna :S Árnagarður hefur reynst ágætlega sem kaffistofa, þótt fjárstreymi mitt hafi vegna námsvals legið frekar í kaffistofur Odda, Lögbergs og Háskólabíós (sem er úrvalskaffistofa!) BSÍ hefur aftur á móti bjargað mér oft frá því að verða hungurmorða og sígarettulaus um miðjar nætur. BSÍ selur líka ýmislegt fleira sem hefur komið sér vel. Segi BSÍ.

    London/Draumurinn - Tvímælalaust Draumurinn. Vann í nágrenninu í nokkur ár og hann Júlli reyndist mér undantekningarlaust vel ef ég gleymdi veskinu. Kerlingarnar í London hafa stundum verið dónalegar við mig og leyft “myndarlegum karlmönnum” (lesist frekum karlpungum) að troða sér framfyrir. (Já! Haha þær sjá sko ÖRUGGLEGA eftir því núna, sko….)

    Hlíðarendi/Víkurskáli - Víkurskáli. Pælið í útsýni úr einum hamborgarabúlluglugga (suðurglugginn á veitingasalnum eins og hann var á 9. áratugnum).

    Esso Blönduósi/Borgarnes - Borgarnes ef Hyrnan telst með :)

  26. Nanna G Says:

    Árnagarður

    London

    Víkurskálinn

    Essó-skálinn Blönduósi

  27. Hófí Says:

    1. BSÍ fyrir að bjóða upp á svið og rófustöppu…

    2. London af því þar eyddi ég alltaf Dagblaðssölulaununum

    3. Hlíðarendi, fer svo sjaldan alla leið austur á Vík

    4. Hmmm… erfitt… en segi Borgarnes, enda eru þeir meira að segja komnir með Hlöllabáta og Bónus, fyrir utan að þar er veitingastaður sem heitir Veitingastaður.

  28. Svenni Says:

    BSÍ vs. Árnagarður - Í Árnagarð hef ég nær eingöngu komið til að taka próf og mér leiðast þau ansi mikið svo BSÍ fær mitt atkvæði.

    London vs. Draumurinn - aldrei komið í drauminn og kann illa við London, pass hér

    Hlíðarendi vs. víkurskáli - Hef oft og mörgu sinnum keyrt framhjá hlíðarenda án þess að stoppa en man ekki til þess að hafa gert það sama við víkurskála svo hann hlýtur að hafa vinninginn.

    Essó á Blönduósi vs. Borgarnes - Borgarnes hefur vinninginn eingöngu vegna þess að leið mín liggur mun oftar vestur á snæfellsnes en norður í land og það er bara alltaf stoppað í Borgarnesi. Annars verð ég nú að segja að það er algjör skandall að láta heilt bæjarfélag keppa við eina vesæla sjoppu. Ég mæli með því að það verði haldin aukakeppni milli hyrnunnar og skeljungsstöðvarinnar og sigurvegarinn þar látinn halda áfram, þ.e.a.s. ef borgarnes vinnur blönduós.

  29. Strumpurinn Says:

    1: Kaffistofan í Árnagarði. Borðaði þar nokkrum sinnum í gömlu innréttingunum og verður að viðurkenna að félagsskapurinn er skemmtilegri í Árnagarðinum en í einhverjum fyllerísborgara á BSÍ.

    2. London augljóslega.

    3. Víkurskáli. Nær Kirkjubæjarklaustri og því að sjálfsögðu betri staður.

    4. Borgarnes. Þó ekki væri nema fyrir Borgarnesdýrið.

    Strumpakveðjur :)

  30. Olla Says:

    1) BSÍ!…Er ekki enn kominn í Háskólann svo ég verð að segja bé-ess-í..mmmmmm kjammar!

    2) Þessi er erfið..London held ég bara!

    3) Hlíðarendi! deffinettlí! Pabbi á sitt borð þar! Einu sinni sat fólk við það og hann vafraði í kringum það þangað til fólkið flúði!

    4) Borgarnes! Flatbökur á Skógarbökunni klikka aldrei..Nema þegar þær brenna..Gerist reyndar yfirleitt….

  31. farfuglinn Says:

    BSÍ vs. Árnagarður. Hef ekki í Árnagarð komið þar sem ég fór í skóla erlendis, svo að BSÍ hefur vinninginn.

    London vs. Draumurinn. London, ekki spurning. Þau lánuðu mér einu sinni þegar ég gleymdi veskinu, bara út á það hvað ég leit heiðarlega út.

    Hlíðarendi vs. Víkurskála. Víkurskáli er ekta vegasjoppa og svo spillir umhverfið ekki fyrir.

    Essó Blönduósi vs. Borgarnes. Borgarnes er ágætt pleis en Blönduós sigrar með yfirburðum. Af því bara. Svo vann frænka mín einu sinni þar.

  32. Eygló Says:

    BSÍ

    Draumurinn

    Víkurskáli

    Borgarnes

  33. Nonni Says:

    1. BSI.

    2. Draumurinn

    3. Vikurskali

    4. Blonduos

  34. Steinunn Þóra Says:

    Árnagarður

    Draumurinn - Enda versla ég í minni heimabyggð

    Víkurskáli

    Borgarnes

  35. Steini Says:

    Bsí

    Draumurinn

    Hlíðarendi (samt MJÖG vondir hamborgarar þar)

    Blönduós

    Það er ósanngjarnt að vera með Essó Skálann á Blönduósi á móti Borganesi sem sveitafélagi. Ætti frekar að vera Essóskálinn vs Hyrnan.

  36. beggi dot com Says:

    BSÍ

    London

    Víkurskáli, þótt það sé ekki góð sjoppa, nostalgíuelementið.

    Kýs ekki í síðasta liðnum þar sem hann sýnir vanþekkingu og fyrirlitningu á viðfangsefninu.

  37. Sverrir Says:

    1. BSÍ.

    Nýja hörmulega innréttingin kemur í veg fyrir að ég get valið Árnagarð. Nema auðvitað að verið sé að kjósa um BSÍ- og gömlu innréttinguna í Árnagarði. Þá vinnur Árnagarður. Ég vel því BFB (Besta og frægasta bloggaranum að skilgreina mitt atkvæði).

    2. Pass.

    3. Man ekki eftir skálanum á Hvolsvelli þannig að hann hlýtur að vinna. Ég man eftir Víkurskála sem fær ekki mitt atkvæði.

    4. Borgarnes.

    Mér finnst ósanngjarn að höfuðborg söluskálanna fái ekki að senda nema einn fulltrúa. Þetta minnir á gömlu dagana þegar Spánn mátti bara senda eitt lið í meistaradeildina. En Borgarnes fær amk. mitt atkvæði og vonandi brautargengi í úrslit.

    Ég vil ennþá berjast fyrir nostalgíukeppni sem Botnsskáli myndi rúlla upp!

  38. Halla Says:

    Draumurinn auðvitað.

    BSÍ, Hlíðarendi og Borgarnes.

  39. Örn Úlfar Says:

    Ég kýs Árnagarð og neita að trúa því að þar hafi nokkuð breyst og þar helli Gógó ennþá rjúkandi í kaffi í bolla snillinga.

    Draumurinn rúlar í Norðurmýrinni. Kýs hann.

    Hlíðarendi fær mitt atkvæði

    Borgarnes hlýtur að teljast hafa smá yfirburði sem þríhöfða þjóðvegasjoppa. Ég kýs þríhöfða.

  40. Kötturinn Says:

    1. Ekki kaupa neitt á BSÍ sem ekki hefur komið þangað í loftþéttum pakkningum, og fer þaðan þannig einnig. Hér er talað af reynslu. EKKI kaupa pizzusneiðar í lúgunni! Árnagarður nýtur þess að hann hef ég ekki séð eftir breytingar, og hann fær mitt atkvæði.

    2. London er öllu geðslegri staður.

    3. Hlíðarendi selur fyrirtaks dreifaraborgara, og fær mitt atkvæði.

    4. Borgarnes. Þetta er engin keppni.

  41. hildigunnur Says:

    Árnagarður, enda stúderaði ég þar í hálft ár, áður en ég tók tónlistarskólann endanlega fram yfir (telst ég Árngerðingur, þá?)

    Draumurinn, bara vegna þess að vinur minn býr í íbúð þar fyrir ofan og vill helst ekki að neinn viti af því

    Hlíðarendi. þokkalegasta sjoppa

    Borgarnes, vegasjoppupleis des Todes

  42. Le Gaston Says:

    BSÍ - Glóðvolgur kjammi, maður!!

    Draumurinn, hiklaust. London orðin sjarmalaus með öllu.

    Víkurskálinn. Ég var í sveit þaddna, og svo hefur hann áfasta Höskuldarbúð.

    Borgarnes. Shell-sjoppan þó besti parturinn.

  43. Þorbjörn Says:

    BSÍ

    Draumurinn

    Víkurskáli (þar er líka ríki)

    Blönduós

    Takk fyrir.

  44. Borgnesingur Says:

    Ég verð nú að segja að ég er mjög móðgaður þar sem margt fleira er hægt að gera í Borgarnesi en að stoppa í sjoppu. Þetta er leiðinleg ímynd á bænum. Einhver sagði að slagorð Borgnesinga ætti að vera “lang besta sjoppa sem ég hef komið í”. Sjoppurnar í Borgarnesi eru auðvitað frábærar og nóg að gera á þeim öllum. Endilega skoðið aðeins bæinn næst þegar þið komið við. Í framtíðinni verður Borgarnes vonandi kennt við söguna og allir þekkja sögubæinn Borgarnes.

  45. Valur Says:

    1: Árnagarður, því ég hef komið á BSÍ

    2: London, því þar finnst mér ég erlendis

    3: Víkurskáli, aððíbara

    4: Borgarnes, því það er langt á Blönduós

  46. árni Says:

    1. úff hef aldrei komið í árnagarð en… miðað mið fyrrum svör vel ég bsí einungis vegna opnunartímans…

    2. no comment

    3. bjó á hvolsvelli í nokkra mán og líkaði aldrei við hlíðarenda (enda björkin mikklu betri staður) en víkurskála men ég eftir úr minningunni sem virkilega slæmum stað þannig að hlíðarendi fær mitt atkvæði.

    4. þarna hlítur borgarnes að fá mitt atkvæði einungis vegna helv.. blöndóslöggunar……. stoppa helst aldrei þarna einungis vegna löggunar á staðnum flýti mér (hægt) vegna hennar í burtu

  47. Gunnar A. Says:

    1. Árnagarður

    2. Autt

    3. Víkurskáli…(furðuleg sjoppa vægast sagt :S)

    4. Borgarnes…Og annað svo er líka hörku gaman að spila gólf þarna á vellinum :D

  48. hsj Says:

    Bensínstöðin/kaupfélagið/sjoppan/grillið á Búðardal, ágætis vegaborgarar þar, aðeins meiri metnaður lagður í það en hinn týpíska kál/80gr/sósuborgara. Snyrtilega settur saman, laukur og tómatsneið með (bónus!) og ekki of mikið af sósu þannig að síðasti bitinn er ekki sósublautt hamborgarabrauð.

  49. Jón B Says:

    1. BSÍ hefur vinningin þar, þó ekki væri nema bara fyrir allar stórhátíðarsígaretturna og morgun blandið

    2. London, enda draumurinn sóðabúlla

    3. Hlíðarendi, sjoppa og ríki - er þetta einhver spurning

    4. Blönduós hefur vinningin þar, enda Borgarnes og þá aðallega Hyrnan einhver mesta tálsýn dreifbýlisins, ég vil fá að hitta þann mann sem getur sagt með góðri samvisku að hann hafi fengið góðan mat þar

  50. ZiC Says:

    BSÍ

    Draumurinn

    Víkurskáli

    Borgarnes

  51. Gulli Says:

    1. BSÍ

    2. Draumurinn

    3. Víkurskáli

    4. Blöndós

    Hvernig dettur manninum í hug að etja saman Vík og Hvolsvelli. Þetta er nánast sitt hvor landshlutinn. Betra hefði verið að kjósa um Hlíðarenda á Hvolsvelli og Olís á Hellu enda keppa þeir staðir um ferðamenn.

  52. Hermann Hrafn Bridde Says:

    Staðarskáli fyrir Borgarana og Hyrnan fyrir gellurnar!

  53. Tinna Says:

    1. Bsí… þó það sé viðbjóður

    2. Draumurinn

    3. Hlíðarendi

    4. Borgarnes.. en þarna er ég doldið hlutdræg þar sem ég er frá borgarnesi. En ég skil samt ekki af hverju fólk verslar í Hyrnunni þegar Shell er svona miklu betri.. betri ís OG betri matur og allt.. (reyndar líka smá hlutdræg hér, ég vann þarna.. en þetta er satt!)

  54. konni Says:

    london,….. nahh essex NAHH LONDON,,, NAH ESSEX!!!!

  55. Eggert Says:

    1. BSÍ

    2. London

    3. Víkurskálinn

    4. Borgarnes

  56. Anna Says:

    Þekki bara Borgarnes og Blönduós og ég verð að seigja Blönduós. Engöngu vegna þess að Blönduós er bara það allra besta pissustopp sem gerist á landinu:)

  57. Bjarni Waage Says:

    Hyrnan, og aftur Hyrnan.

    Eg held ad Borgarnes se best sjoppa Landsins.

  58. 1 Says:

    Það er líka Ríki í Víkurskála hálfvitar!

  59. Blósarinn Says:

    Blönduós auðvitað…ég bý á Blönduósi ekki fer ég alla leið til Borgarness til að fá mér að éta…