Jess - Luton í FYRSTU DEILD!!!

Gleðifréttir! LUTON ER KOMIÐ Í FYRSTU DEILD!

Slæmu fréttirnar. - Skýringin er sú að nú hefur breska knattspyrnusambandið ákveðið að breyta nafni fyrstu deildar (sem í raun er önnur deild) í “The Championship” og gamla önnur deildin (sem í raun er þriðja deild) mun þá heita fyrsta deild og gamla þriðja deildin (sem í raun er fjórða deild) mun nefnast önnur deild hér eftir.

Þetta kallar augljóslega á fyllerí - ekki satt?

11 Responses to “Jess - Luton í FYRSTU DEILD!!!”

  1. Óli Gneisti Says:

    Þannig að þú ert að fagna því að liðið þitt er ennþá í því sem er í raun veru þriðja deild…

  2. Sv1 Says:

    Þetta hljómar nú eins og frekar léleg afsökun fyrir að detta í það… en ég hef nú heyrt margar lélegri afsakanir og sjálfur notað aðrar verri þannig að ég segi bara: “Skál”

  3. JBJ Says:

    Uglurnar í fyrstu deild!!!

  4. jedúddi Says:

    hæhæ, ég var að spá….er enn verið að selja old-school FRAM búningana? ef svo er, hvert ætti ég að snúa mér til að næla mér í eitt stykki?

  5. Fellibylur Says:

    Man að Kúldbræður í Stykkishólmi duttu einu sinni í það til að halda upp á að ár var liðið frá því að skipt var um hurðarhún á útidyrunum.

  6. Stefán Says:

    Við munum líklega selja búninga fyrir leik Fram og FH eftir viku…

  7. S. Wonder Says:

    Mjög svalt. QPR er þá loksins komið í The Championship…

    -s

  8. Sverrir Says:

    Jamm. Af hverju datt engum í hug fyrr þessi einfalda leið til að færa öll skítaliðin upp um deild?

  9. S. Wonder Says:

    Skítalið? Ái.

    -s

  10. Payday Loans Says:

    Payday Loans - Cash Advance