Harðfiskur
Wednesday, June 30th, 2004Þvert á betri vitund keypti ég mér harðfisksbréf à 11-11 à gær. Þessir næfurþunnu pakkar innihalda sjaldnast góðan harðfisk. Hvers vegna drullast ég ekki oftar à Kolaportið til að kaupa almennilegan harðfisk - eða það sem betra væri, hvers vegna heimsækir konan sem selur pabba reglulega harðfisk ekki Norðurmýrina lÃka? Hver segir að bara Vesturbæingar kunni gott að meta?
* * *
Fituhjassinn ég mætti à gymið à fyrsta sinn à alltof langan tÃma à gær. Litlu mátti muna að nærri færi fyrir mér eins og skipshundinum Jóni à texta Olgu Guðrúnar.
* * *
Þjálfari FRAM sagði upp. Hvað à ósköpunum erum við eiginlega búnir að hafa marga þjálfara á sÃðustu 6-7 árum? Það er þó óskandi að þetta verði til að rÃfa liðið upp.
* * *
Óli leit à heimsókn à gær. Prufuðum Jura Superstition-mÃneatúr, en það er ný framleiðsla frá Júru - móreykt bygg notað við framleiðsluna til að skapa Islay frekar en Highland-keim. Ekki galið. Virðing mÃn fyrir Júru-viskýi hefur stóraukist á liðnum vikum og mánuðum.
* * *
EM à kvöld. Stefnan tekin á höfuðstöðvar VG þar sem sett hefur verið upp sjónvarp vegna keppninnar. Portúgal eða Holland à úrslitin gegn Grikkjum - tja, eiginlega stendur mér á sama. Vona samt að Holland vinni ekki à vÃtakeppni. Ef sú yrði niðurstaðan væri Holland nefnilega komið à úrslitaleikinn út á EINN sigurleik og það gegn Lettum.
