Archive for April, 2004

Blaðamannaverðlaun

Thursday, April 22nd, 2004

Jæja, þá er búið að úthluta fyrstu íslensku blaðamannaverðlaununum. Dregur raunar verulega úr gildi þeirra að RÚV hafi ekki verið með. Ekki er nú fjölmiðlaheimurinn á Íslandi það stór að hann hafi verið mikið til skiptanna - en látum það gott heita.

En finnst engum öðrum það skringilegt en mér að Brynhildur Ólafsdóttir geti fengið verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku - út á að tala við mann á blaðamannafundi?

Nú er ég enginn fréttahaukur, en einhvern veginn hélt ég alltaf að rannsóknarblaðamennska fælist í að grafa upp upplýsingar. Þegar fréttirnar bárust frá Bandaríkjunum á sínum tíma, sá hver maður að um var að ræða skipulagðan leka frá bandarískum embættismönnum. Upplýsingarnar um vopnin um borð í þotunum voru útspil til að koma umræðunni á Íslandi í annan farveg.

Hefði ekki verið nær að gefa bandaríska embættismanninum “rannsóknarblaðamennskuverðlaunin”? - Nei, ég segi nú bara svona…

Endurminningar múmínpabba

Wednesday, April 21st, 2004

Lestur norsku kvöldsögunnar um ævintýri múmínpabba gengur vel.

Bókin, sem illu heilli hefur ekki komið út á íslensku, byggist að mestu upp á endurminningum múmínpabba, en eins og lesendur bókaflokksins þekkja er æði oft vísað til ritunar þeirra í hinum bókunum. Loksins virðist losna um ritstífluna og múmínpabbi er sannfærður um að bókin muni gera hann að milljónamæringi.

Sú mynd sem flestir Íslendingar hafa af múmínálfabókunum er villandi, þar sem lengi vel höfðu einungis fimm af bókunum átta komið út (nokkrar mynda- og teiknimyndabækur til viðbótar tilheyra þó sögunni). Þær sem upp á vantaði voru Minningar múmínpabba, Seint í nóvember og Ósýnilega barnið - sem raunar kom út fyrir nokkrum árum á íslensku en vakti ekki mikla athygli.

Seint í nóvember og Ósýnilega barnið eiga það sameiginlegt að fjalla nánast ekkert um múmínfjölskylduna. Þær beina athyglinni að öðrum persónum, s.s. Fílifjonkum og Hemúlum.

Af þessum fimm bókum sem fyrstar komu út hérlendis, eru allar með múmínsnáðann í aðalhlutverki - þótt segja megi að múmínpabbi sé hin eiginlega aðalpersóna í Eyjunni hans múmínpabba. Það er raunar svalasta bókin í seríunni. Vitavörðurinn og Hattífattarnir rokka!

Í Minningum múmínpabba er kastljósinu beint að honum og aðrar persónur eru í algjörum aukahlutverkum. Munaðarleysinginn múmínpabbi fer út í heiminn og eignast tvo vini - sem raunar reynast vera feður Snúðs og Snabba, sem síðar verða vinir múmínsnáðans.

Múmínpabbi er dramblátur og kemst upp með það. Tove Jansson prédikar aldrei yfir lesendum sínum. Persónur í bókum hennar eru margar hverjar nískar, eigingjarnar, frekar, tillitslausar og svo mætti lengi telja - engin krafa kemur hins vegar fram um makleg málagjöld. Þeim hegnist ekki fyrir bresti sína, þvert á móti í sumum tilvikum.

Og ekkert er verra en vandlætingar og siðapostular. Fílifjonkan/hemúllinn sem skammar Snúð fyrir að reykja og drekka kaffi fær á baukinn - og múmínmamma útskýrir fyrir Snabba að það sé allt í lagi þótt múmínpabbi reyki vindla og blæs á áróður reykingarandstæðinga.

Myndi einhver barnabókahöfundur gera þetta í dag?

Pínlegt

Wednesday, April 21st, 2004

Spurning dagsins: Hversu pínlegt er það að vera að kenna krakkahópi um rafmagnið í Rafheimum, þegar bilunn verður í háspennukerfi og rafmagnið fer af húsinu í 20 mínútur?

Svar: Mjög pínlegt.

Jamm

Öppdeit um baðherbergismál

Tuesday, April 20th, 2004

Fyrir áhugafólk um framvindu mála í baðherbergisframkvæmdunum stóru er rétt að upplýsa að búið er að festa kaup á einfaldri baðinnréttingu og klósetti frá Baðheimum.

Stefnir í að Byko nái ekki að selja okkur nema eitt baðkar eftir allt saman.

Baðheimar og Álfaborg reyndust síst dýrari kostir en Byko og starfsfólkið vissi meira í sinn haus.

…og ekki spillir fyrir að geta verslað í heimabyggð!

Jamm.

Enn eitt Byko-klúðrið

Tuesday, April 20th, 2004

Það heldur áfram að síga á ógæfuhliðina í skiptum mínum við Byko.

Við Steinunn töldum okkur stálheppin að geta fengið heildarlausn á einum stað og létum gera okkur tilboð í allt draslið í baðherbergið.

Flísahugmyndin var fljótlega skotin niður, eins og lesendur þessarar síðu hafa væntanlega fylgst með - þannig að ekki kaupum við gólf- og veggefnið frá Byko.

Þessu næst kom í ljós að starfsmaður Byko hafði skrifað upp vitlaus vörunúmer, þannig að tilboðið var gallað. Sem betur fer uppgötvuðum við það þó í tíma fyrir hreina tilviljun.

Þá var upplýst að afhendingarfresturinn á innréttingunni er lengri en rætt hafði verið um. Spurning hvort við reddum henni ekki annars staðar þess í stað.

Og nú síðast kom í ljós að klósettið sem starfsmaður Byko reyndi að selja okkur gengur engan veginn nema með stórframkvæmdum. Þetta er farið að vera pínulítið pirrandi.

Frægi kallinn

Tuesday, April 20th, 2004

Í gær báðu tveir guttar úr Melaskóla, sem voru í heimsókn í Rafheimum, mig um eiginhandaráritun. Annar lét þess getið að hann ætti líka eiginhandaráritun Illuga Jökulssonar. Þetta fannst mér krúttlegt.

Í gær ákvað spaugsamur afgreiðslumaður í verslun að svara spurningum mínum með því að segja “pass”. Það fannst mér ekkert krúttlegt, bara pirrandi.

* * *

Iðnaðarmaðurinn kom í gær. Lætur líklega með að byrja á mánudag. Hann bölvaði Byko og Húsasmiðjunni hressilega - einkum ráðgjöfunum á þeim bænum.

Mósaíkflísarnar viku fyrir viðvörunarorðum góðs fólks. Þess í stað keyptum við stórar og vænar flísar í Álfaborg. - Djöfull er leiðinlegt að standa í þessu helvíti. Og ekki skánar það um helgina þegar byrja þarf að rífa niður innréttinguna á baðinu.

* * *

Barmmerkjagerðin fyrir Femínistadrengina gengur vel. Þúsund merki tilbúin og þá eigum við Palli bara eftir að þrykkja út fimmhundruð í viðbót. Nú væri gaman að vera með Sýn. Þá hefði maður getað horft á Evrópuleikinn í kvöld og skorið til nokkur merki á sama tíma…

Annars er Luton líka að spila í kvöld. Með sigri gætum við farið langt með að tryggja okkur sjöunda sætið í deildinni, en það er ekki nóg - það er því miður sjötta sætið sem allt snýst um.

* * *

Síðustu daga hef ég verið að spila New Order öllum stundum. Skrítið þegar maður dettur skyndilega oní diska úr plötusafninu sem hafa nánast aldrei verið hreyfðir.

New Order var skemmtilegt band og þeir spöruðu svo sannarlega ekki svuntuþeysinn.

Nafngiftir

Monday, April 19th, 2004

Einhverju sinni heyrði ég auglýsinga- og kynningarmálagúrúið Gunnar Stein Pálsson lýsa því hversu erfitt það hafi verið að koma til fundar með forsvarsmönnum Mjólkursamsölunnar og kynna þeim tillögu sína að nýju slagorði. - “Mjólk er góð! - við borguðum þér milljónir og þetta er slagorðið sem þú kemur með! Þrjú orð, er það allt og sumt?”

Mórallinn í sögu Gunnars Steins var sá að snilldin gæti legið í einfaldleikanum. Nöfnin þyrftu ekki að vera fansí. Gott og vel - ég skal kaupa þessi rök. Samt er ég ekki alveg að ná snilldinni í nýju nafngiftunum í höfuðstöðvum Orkuveitunnar.

Á dögunum var efnt til nafnasamkeppni í fyrirtækinu. Þar lá fyrir að velja nöfn á báðar álmur aðalbyggingarinnar: vesturálmuna (sem lítur út eins og farartæki litlu kvikindanna í munkakuflunum í Star Wars); austurálmuna; sýningarsal; ráðstefnusal & véla- og vinnuflokkahús sem stendur norðan við höfuðstöðvarnar.

Nú er niðurstaðan fengin. Sýningarsalurinn fékk nafnið “100°”, sem er reyndar sama heiti og skipuleggjandi samkeppninnar hafði stungið upp á “til að gefa tóninn um hvaða nöfnum verið væri að fiska eftir”. En hin nöfnin - eru þau jafn hipp og kúl?

Tja, fyrirlestrarsalurinn fékk nafnið “Fyrirlestrarsalur OR”. Vesturálman fékk heitið “Vesturhús”; austurálman heitir nú “Austurhús” og vélahúsið nefnist “Norðurhús”.

Öhh…

Með fyllstu virðingu fyrir hugmyndaríkum vinnufélögum mínum (sem skíra eflaust börnin sín Dreng og Stúlku), þá held ég að það hefði ekki verið úr vegi að blæða í auglýsingastofu varðandi þessar nafngiftir.

* * *

Luton vann Bristol City um helgina. Of seint - alltof seint. Tímabilið má heita búið og við missum nokkuð örugglega af sæti í umspili. Sigurinn á Bristol bætir hins vegar stöðu QPR. Það ætti að gleðja Stebba Hagalín.

* * *

Góður sigur á Þrótti í gær. Þá þurfum við bara að taka Valsara í lokaleiknum til að komast í fjórðungsúrslitin. Lékum með þriggja manna vörn í fyrsta sinn. Hef trú á að það geti komið vel út. - Færeyingarnir skoruðu báðir. Dómarinn dæmdi á okkur ruglvíti en hafði af okkur tvö frekar en eitt. Þegar við svo loksins fengum vítaspyrnu var hún varin.

Úr því að Ágúst Gylfason er ekki lengur til að taka vítin myndi ég veðja á Þorvald Makan.

Jamm.

28 dagar

Sunday, April 18th, 2004

Það eru 28 dagar í fyrsta leik Íslandsmótsins, þar sem Fram tekur á móti Víkingum. Vonandi á þjóðarleikvanginum, en annars á þeim fúla Valbjarnarvelli.

Er þetta árið? Munum við rísa í hæstu hæðir? Erum við að tala um Inter-toto; bikarúrslit og Drago-styttuna - eða fer allt á versta veg?

Framherjar eru hvergi deigir. Í gær hittumst við í Framheimilinu til að undirbúa verkefni sumarsins. Að því loknu var haldið á Players í Kópavogi að horfa á fótbolta. Með í för var rúmensku þjálfarinn, Jón G. Þetta er greinilega alvörumaður sem ég bind miklar vonir við.

Skelli mér á Fram - Þrótt í deildarbikarnum á eftir.

* * *

Gestagangur á Mánagötunni um helgina. Þórey, vinkona Steinunnar gisti ásamt börnum. Þau glömruðu á píanóið í stofunni - það ætti að lækka rostann í nágrönnunum. Jafnframt fundu þau góð not fyrir litla boltann sem Steinunn notar til að nudda á sér iljarnar. Hann er sannarlega harður en dugar vel til knattspyrnuiðkunar á ganginum. Ekki hafði ég áttað mig á því fyrr að svona góður sparkvöllur leyndist í íbúðinni miðri.

* * *

Barmmerkjagerð í kvöld. Við Palli tókum að okkur heljarmikið verkefni fyrir karlahóp Feministafélagsins. 1.500 merki, hvorki meira né minna. - Þetta mun leiða til bakverkja og vöðvabólgu, en hvað gerir maður ekki fyrir strákana…

* * *

Og rétt að lokum - fyrir innréttinganördana sem lesa þessa síðu:

Nú er Steinunn eitthvað að fá í magann yfir því að mósaíkflísar á baðherbergisgólfið muni þýða endalaus vandræði við þrif. Sjálfur hef ég ekki stóráhyggjur af þessu, enda varla nema um tveggja fermetra flöt að ræða - en hvað segja lesendur?

Eru mósaíkflísar á gólfi til vandræða?
Þekkja menn dæmi um að þetta hafi verið gert og þá með hvaða árangri?

(Ekki að ég búist við miklum svörum. Ég fæ helst aldrei neinar athugasemdir á þessa síðu nema um fánýta hluti.)

Peningar í póstinum

Friday, April 16th, 2004

Það er gleðilegt að mæta til vinnu á föstudagsmorgni og fá tilkynningu um að maður eigi að fá greitt fyrir viðvik sem aldrei hafði verið talað um öðruvísi en sem sjálfboðavinnu. - Ekki það að svona smásporslur verði ekki fljótar að hverfa í sparsl, flísar og blöndunartæki þegar stóra baðviðgerðin hefst síðar í mánuðinum.

* * *

Í gær byrjaði ég á óskaplega skemmtilegri bók. Segi meira frá henni síðar.

* * *

Framararnir unnu KA-menn í handboltanum. Ekki gat maður fagnað því að neinu ráði eftir fréttirnar um að Fylkismenn hefðu krækt í Þorbjörn Atla. Bjössi hefur verið uppáhaldsleikmaður minn hjá Fram í mörg ár - reyndar ásamt fleiri leikmönnum, s.s. Frey Karlssyni.

Jæja, Bjössi snýr bara aftur heim í Safamýri þegar Árbæingar verða búnir að tjasla honum saman.

Spurningaleikir

Thursday, April 15th, 2004

Hahaha… og ég hélt að gamlar Gettu betur-klippur væru hallærislegar: Blockbusters-þátturinn slær öllu við.

Nú er spurt - hvaða aukapersóna í The Office keppti í Blockbuster á sínum yngri árum?

En talandi um GB - hér er einmitt fjallað um bresku fyrirmyndina “University Challenge”. - Er það kannski málið að taka upp fjögurra manna lið?

Svo væri líka gaman að sjá íslenska útgáfu af Bullseye. Er Hálfdán ekki á lausu?