Sjálfboðaliðar óskast!
Í ljósi þeirrar staðreyndar að allir lesendur þessarar síðu eru gallharðir herstöðvaandstæðingar, er þetta líklega besti vettvangurinn til að lýsa eftir sjálfboðaliðum.
Um helgina verður Dagfari, fréttabréf SHA, búin til útsendingar. Við ætlum að ganga í málið kl. 15 á sunnudeginum.
Reynslan sýnir að með góðum hópi tekur þetta varla nema svona rétt rúma tvo klukkutíma. - Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að fá innsýn í launhelgar herstöðvaandstöðunnar á Íslandi!
Jamm.

April 23rd, 2004 at 16:33
Ætli Björn komi?
April 23rd, 2004 at 17:37
Það er aldrei að vita, fyrst hann er farinn að skrifa á Múrinn…
April 25th, 2004 at 14:32
Og fyrst minnst er á herstöðvarandstæðinga!
Hefur “Ísland úr Nató” einhvern tíman komið út á diski? Langar að finna þann disk og koma laginu á mp3. Finnst ekki á DC++. Þetta er eitt það besta lag sem samið hefur verið hér á Íslandi. Er ekki aðeins að tala um boðskapinn, heldur einnig bara taktinn og allt það.
Kannski ég stytti mér bara leið hérna: á einhver lagið á mp3 eða wma formati sem hann gæti sent mér?
April 26th, 2004 at 23:17
Þetta ágæta lag kom einhvern tímann út á diski sem ber hið þjóðlega nafn “Baráttusöngvar fyrir friði og þjóðfrelsi”. Stefán getur sjálfsagt selt þér eintak. Svo er hin leiðin að sækja það á slóðinni http://www.bjossi.net/Islandurnato.mp3
Kg