Archive for April, 2004

Af götum

Friday, April 30th, 2004

Eiríkur Rögnvaldsson bendir réttilega á það í athugasemd við færslu gærdagsins að það er ekki til neitt sem heitir Smyrilsgata heldur SmyrlisVEGUR. Þetta leiðir mig þó til vangaveltna um götunöfn í póstnúmeri 107 sunnanverðu.

Sá sem skipaði niður götuheitum í þessum hluta Vesturbæjarins hefur verið með skæðan athyglisbrest. Í það minnst hélst viðkomandi illa á þemum.

* Á miðju Grímstaðaholtinu er Grímshagi, sem heitir svo eftir holtinu. Látum það gott heita.

* Norðan Grímshaga tekur svo við fuglaþema. Þar má finna: fálka, smyril, örn og þröst (spot the odd bird out). - Ekki eru þarna fleiri fuglar. Hvaða sauður getur ekki talið upp fleiri fugla?

* Sunnan Grímshaga eru Lynghagi og Starhagi. Ókey, lyng og starir er svo sem allt í lagi og kallast á við Kvisthaga. Allt svona “garðræktar-eitthvað” og hefur líka vísun í alla trjá-melina norðar í hverfinu. (Birki, víðir, reynir, einir, greni, fura, ösp og birki.) Miðað við mel hljómar þetta reyndar helvíti ´skógivaxið…

* Milli viðardeildarinnar og fuglaríkisins dúkka hins vegar upp stórskrítin götuheiti. Kvisthagi, Fornhagi, Dunhagi og Hjarðarhagi heita allir eftir sveitabæjum á Norðurlandi. (Af hverju í andsk…?)

* Og til að kóróna vitleysuna er Tómasarhaga plantað niður á miðju svæðinu og það í höfuðið á einhverjum grasbala við rætur Hofsjökuls!!!

En nú mætti einhver góður maður svara áleitinni spurningu minni. Hvers vegna í fjandanum heitir Eggertsgata þessu nafni?

Biðröðin

Friday, April 30th, 2004

Blaðburður

Thursday, April 29th, 2004

Vesturbæjarlaugin

Wednesday, April 28th, 2004

Þröstur Helgason

Wednesday, April 28th, 2004

Tíu gíra spítthjólarúm

Tuesday, April 27th, 2004

Umhugsunarefni

Monday, April 26th, 2004

Einn, tveir, Selfoss!

Sunday, April 25th, 2004

Sjálfboðaliðar óskast!

Friday, April 23rd, 2004

Dýrasta lyftan

Friday, April 23rd, 2004