Iss
Hah! Það er ekki fyrr búið að reka mig úr einni hljómsveit, en mér hefur verið boðið sæti í tveimur öðrum sveitum.
Annars vegar er Steinunn búin að bjóða mér að stofna hljómsveit sem við værum bara tvö í. Hún myndi spila á flautu, píanó og bassa, en ég myndi syngja. Þessi hljómsveit gæti t.d. heitið “Hjóna-bandið” - sem væri sniðugt.
Hins vegar er um að ræða sveit sem hefur allar græjur: trymbil, hljómborðsleikara, vanan bassamann og gítarista. Félagar mínir í gamla bandinu voru ekki með neinn á hljómborð.
Ég sé fram á að vera komin á forsíður tónlistarblaðanna áður er Tony Blair verður skriðinn út úr æfingarhúsnæðinu…
Samt gæti líka farið svo að ég leggi bara hljóðnemann á hilluna.

March 30th, 2004 at 15:29
Hljómborð eru fyrir lúða. Hjónabönd líka.
March 30th, 2004 at 15:39
Hjóna-bandið held ég að Drgunni og hans frú hafið stofnað og meirasegja tekið upp eikkvað efni.. minnir mig
March 30th, 2004 at 15:40
Þannig að við yrðum að kalla þetta - “Seinna hjónabandið”?
March 30th, 2004 at 16:33
Hjónabandið sniðugt nafn?? Ég er farin að efast um húmorskyn þitt
March 30th, 2004 at 16:34
Það er líka til Hjónaband þar sem kallinn spilar á skemmtara og konan syngur, þau spila oft á þorrablótum útá landi.
Þau taka m.a. Undir bláhimni, María María, Jósep Jósep og fleiri slagara.
Ykkar hjónaband er örugglega betra en þeirra.
March 30th, 2004 at 16:56
Held að Hjónabandið sé starfandi tveggja manna hljómsveit á Flateyri. Var það alla vega.
March 30th, 2004 at 22:44
Hjónabandið er skipað hjónunum Árna Brynjólfssyni og frú, sem búsett eru að Vöðlum í Önundarfirði. Hann spilar á skemmtara og midi-tengda harmoníku, en hún syngur. Þau byrja öll sín böll á Spanish eyes.
March 31st, 2004 at 09:11
En hvað með hljómsveitarnafnið “Sam-bandið” - kannski of framsóknarlegt….
March 31st, 2004 at 11:14
Ekki má gleyma límbandinu sem var lúðrasveit í denn.