Bús

Fór í ríkið til að kaupa hvítvín fyrir kvöldið (Skúli og Elvira koma í kvöldmat). Alltaf hálfskringileg stemning að mæta í ríkið á mánudegi. Ekki köttur á kreiki - hinn viðskiptavinurinn í búðinni var Valur húsfélagsformaður, Framari og snillingur.

Notaði tækifærið til að fylla á viskýskápinn. Klikkaði ekki á því að kaupa líka dólgaviský. Þó ég elski Steinunni meira en allt annað í heiminum, þá er samt óþarfi að hleypa henni í Islay-flöskurnar til að malla Irish-coffee…

Keypti líka vænan slatta af bjór. Það var meira eða minna breskur ale. Það þarf að æfa sig fyrir ferðina í vor!

4 Responses to “Bús”

  1. Húsfélagsformaðurinn Says:

    Húsfélagsformaðurinn telur rétt að hér komi fram að hann var aðeins að skila áfengi sem tengist félagsstarfi (þó ekki húsfélagsins) - enda er húsfélagsformaðurinn langt frá því að vera nógu forhertur til að versla sér áfengi á mánudögum.

  2. Ágúst Says:

    Hvernig öl var það? Væntanlega Newcastle brúnöl. Ekki beint úrval í ríkinu.

    Um daginn keypti ég tékkneskt öl sem mér þótti smakkast vel. Krusovice Cerné hét það og var keypt í Kringlunni. Fékkst þá bæði í dós og gleri. Ætlaði að kaupa hann síðast en þar sem ég fór í “Quelle-ríkið” í Kópavogi varð ég að sætta mig við kjarnann. Endaði því með Beamish sem var einungis gert af ökónómískum ástæðum, Guinnessinn er svo helv. dýr. Eftir vikulangt þamb af Leffe Brüne og Guinness dagana á undan fannst mér Beamishinn frekar óspennandi, þannig ég held maður sætti sig við okrið á Guinnessnum hér eftirleiðis, eða skipti yfir í þann tékkneska þangað til fjárstreymið verður stöðugra.

    Og fyrst þú minnist á öl: hvað finnst ölglöðum mönnum um Egils páskabjórinn?

  3. Stefán Says:

    Þetta tékkneska öl er afbragðsgott. Ríkið er líka farið að selja Primus, sem er góður tékkneskur bjór.

    Beamish er fínn bjór. Hann er með sætasta móti fyrir stout, en það má alveg venja sig á hann. Illa helltur Beamish á bar er þó vart drekkandi. Það er jafnvel mikilvægara að gefa sér góðan tíma í að hella honum en Guinness.