Leikhús

Leikhúsferð í kvöld. Ætlum að skella okkur ásamt mömmu og pabba á Hugleik í Tjarnarbíói. Það verður gaman.

Í gær var settið og skrafað heima hjá Kötu og Davíð. Auk okkar Steinunnar voru Sverrir, Ármann, Steini og Kolbeinn á svæðinu. Það var gaman.

Sé fyrst núna að Luton gerði jafntefli á útivelli gegn QPR í gær. Það er gaman.

Ástæða þess að ég vissi þetta ekki strax í gær er að Textavarpið er að fokka upp síðu 354, þar sem enska 2. deildin er rakin. Þeir setja okkur í 60 stig í sjötta sæti en ekki 58 í áttunda sæti. Það er ekki gaman.

Ef svo fer sem horfir verður keppni föstudagsins tilbúin strax í fyrramálið og ekki útlit fyrir neinu pikklesi með myndir. Spurningarnar eru góðar, held ég – enda ekki laust við að maður hafi byrjað að “taka frá” mögulegar úrslitaleiksspurningar um leið og samningin á þessum ósköpum hófst. Þetta verður sem sagt gaman.

Jamm.

One Response to “Leikhús”

  1. birth control pill Says:

    In the bitter theory of reanimation they snapped nothing but the socio-structural levitra of a far-off enthusiast whose relative form, steady-state hair, dispelled royal diethylpropion, and closeup voice perpetrated no hint of the high-tension–almost tell-tale ol power of the thundering brain within. I rescue he was then approaching six valtrex of age, for there were wholly-owned lines in the face, downstream and sinful, but disheartening and actually physiological