Stöngin inn

Einu sinni áttum við Framarar stuðningsmannalag sem nefndist “Stöngin inn!” – það var rangnefni á leiknum í dag. “Stöngin út!” hefði verið nær lagi. Ekki hef ég hugmynd um hversu oft Framararnir negldu í stöngina eða slánna á KA-markinu.

Ekki þar fyrir að úrslitin voru sanngjörn. Akureyringarnir voru einfaldlega betri í dag. Fúlt.

* * *

DV birtir í dag frétt um spurningakeppnina á fimmtudaginn og annar ritstjórinn skrifar grein mér til stuðnings. Fyndið hvað hægt er að æsa sig út af svona keppni.

Sjálfur er ég frekar rólegur yfir þessu öllu. Að dæma í spurningakeppni er nákvæmlega eins og að dæma í handbolta eða fótbolta. Stuðningsmenn þeirra sem tapa kalla dómarann iðulega fífl eða svindlara og þjálfarar og liðsmenn missa stundum út úr sér hluti sem þeir hefðu líklega sleppt að betur hugsuðu máli. (Auk þess sem blaðamenn eiga það til að velja út safaríkustu ummælin.)

Þar sem ég hef verið íþróttaáhugamaður í öll þessi ár og margoft sent dómurum eitruð hugskeyti eða sagt eitthvað miður fallegt, væri það hræsni ef ég færi að pirra mig yfir einhverjum spekúlasjónum og pillum í minn garð á spjallsíðum og víðar.

Það sem eftir stendur er þetta:

Dómarar geta gert mistök. Sem betur fer gerðist það þó ekki í þessum þætti. Reyndar mátti litlu muna, vegna þess að hljóðið í Smáralindinni er ömurlegt hjá dómara og stigaverði, þannig að við heyrum með höppum og glöppum svör sem ekki eru skýrt borin fram. Það kostaði Hraðbraut stig í fyrsta þættinum og hefði getað kostað MH stig núna, ef fólkið í tækjabíl Sjónvarpsins hefði ekki náð að koma til mín leiðréttingu.

Um önnur atriði í þættinum þarf sem betur fer ekki að þrátta og allra síst lokaspurninguna. Þar var fiskað eftir svarinu “Nýja Sjáland” og að sjálfsögðu hefði verið gefið rétt fyrir “Nýja Sjáland & Ástralía”. Fæðingarstaðurinn varð hins vegar að koma fram, annað hefði verið út í hött. Viðurkennd uppflettirit eins og Britannica tiltaka öll að Russell Crowe sé fæddur á Nýja Sjálandi og eftir því var auðvitað verið að fiska.

Því miður fyrir lið MH vissu þau það einfaldlega ekki og þess vegna töpuðu þau. Enginn sem tengdur er MH-liðinu hefur reynt að halda því fram að lið þeirra hafi vitað um fæðingarstað leikarans, en ákveðið að nefna samt sem áður annað upprunaland – enda hefðu þau þá einfaldlega getað svarað þannig að hann væri fæddur á Nýja Sjálandi en hefði búið stóran hluta ævi sinnar í Ástralíu og fengið rétt fyrir.

Þannig er það nú bara.

6 Responses to “Stöngin inn”

  1. Arnar Strandamaður Says:

    Er einhver möguleiki að nálgast þetta frábæra lag “Stöngin inn” einhver staðar?

    Það er mér sérstaklega minnisstætt að æðstiprestur KRinga, Bjarni Fel, las lýsingu inn á lagið þar sem Framarar skoruðu sennilega hvert markið á fætur öðru.

    Eða er það bara vitleysa sem hefur tekið sér bólfestu í þröngum huga mínum á þeim fjölmörgu árum sem liðin eru síðan ég heyrði blessað lagið síðast?

  2. drekinn Says:

    Mér sýndist reyndar Hafþór vera meira fyrir ykkur en markstangirnar.

  3. Þorkell Says:

    Stönginn inn í flutningu hins ástsæla Þorgeirs Ástvaldssonar var síðast þegar ég vissi ásamt fleiri góðum FRAM slögurum á heimasíðu FRAM.

  4. hildigunnur Says:

    neinei, mr unnu, fair and square. bara fúlt ;-)

  5. bjossi Says:

    Malid er nu bara ad thessi sidasta spurning var mjog illa ordud og ekki hægt ad gefa rangt fyrir Astraliu. Hann er fæddur i Nyja-Sjalandi og flytur thadan 4 ara gamall, byr sidan i 2-3 ar i nyja Sjalandi thegar hann er i menntaskola. I empire vidtali vid Crowe lysir hann ser sem Astrala. Thetta væri jafn faranlegt og spurt væri hvadan Viera væri og gefa rangt fyrir Frakkland (hann er fæddur i Senegal og flutti til Frakklands 7 ara gamall)

  6. Stefán Says:

    Nei, það er ekki hægt að gefa rétt fyrir Ástralíu. Þegar spurt er um uppruna mannsins – verður vitaskuld að gefa upp landið sem hann er ríkisborgari í og þar sem hann fæddist – Nýja Sjáland. Það var ákveðið fyrir keppnina að lið myndu fá rétt fyrir að nefna Nýja Sjáland eða Nýja Sjáland OG Ástralíu. Þetta var ekki hraðaspurning, þannig að lið sem þekkti sögu mannsins hefði hæglega getað rakið hana og fengið rétt fyrir.

    Þessi tiltekna spurning gaf þrjú stig, á meðan flestar aðrar spurningar í keppninni gáfu bara eitt. Fyrir vikið varð að vera eitthvað þungt í spurningunni og í þessu tilviki var það að átta sig á því að Russell Crowe væri frá Nýja Sjálandi þrátt fyrir að flestir teldu hann vera Ástrala – það var einfaldlega þungamiðjan í spurningunni.

    Halda menn kannski að ég hafi ekki vitað að Russell Crowe hefur stærstan hluta ævi sinnar búið í Ástralíu? Það vita allir, ekki satt?

    Í ljósi þessa á ég bágt með að skilja hvernig fólk getur komist að þeirri niðurstöðu að að spurningin sé illa orðuð. Auðvitað átti ég allt eins von á að svarið Ástralía kæmi fram – um það snerist jú spurningin!

    Þetta skildu MH-ingar. Þegar ég ræddi við þau eftir keppnina, þá voru þau svekkt yfir að hafa tapað og pirruð út í sjálf sig fyrir að hafa klikkað á þessari tilteknu spurningu. Þau reyndu hins vegar aldrei að halda því fram að þau hafi í raun vitað svarið en ekki komið því frá sér vegna orðalagsins á spurningunni – sú hugmynd er tilbúningur fólks sem ekki tengist MH-liðinu á neinn hátt.