Erfitt
Ái, ég er lurkum laminn eftir sprikl föstudagsins og ekkert útlit fyrir að strengirnir hverfi í bráð. Fótboltinn áðan var ekki að bæta neitt úr skák.
Eins og þetta væri ekki nóg, var partýstand á Mánagötuhjónunum bæði föstudags og laugardagskvöld. Þorrablót Ásatrúarmanna var frábært á föstudagskvöldið. Vona að ég hafi ekki lofað mér í of mörg verkefni. Drógum góða vini með okkur (alltaf í trúboðinu…) - Kolbeinn Proppé mætti og var í banastuði og Guðrún og Elvar komu líka. Allir skemmtu sér vel, en það var ekki auðvelt að vakna daginn eftir til að drösla sér á fund uppi í Framheimili.
Í gær hélt svo Erna sem telja má hætta að blogga, þessa fínu afmælisveislu. Þar var fullt af góðu fólki, en aumingja þeir sem ekki hafa gaman af umræðuefninu Gettu betur - því eftir að Logi og Svanhildur mættu á svæðið þá var um fátt annað talað í lengri tíma. Ekki að það hafi verið neinn hörgull á GB-fólki fyrir. Kata, Ármann og Jón Yngvi hafa náttúrlega öll komið að henni sem stigavörður/dómari/keppandi.
Og talandi um GB. Keppnirnar á föstudaginn voru fínar. MH og Borgarholt eru með fantagóð lið. Verslingarnir eiga að geta betur og MK átti sinn sigur skilið. Dregið var í aðra umferðina. Þar mætast:
* MK - Suðurnes
* MH - Versló
* FG - MS
* Akranes - Ísafjörður
* Húsavík - Hraðbraut
* MR - Flensborg
* Borgarholt - Egilsstaðir
(Sjö sigurlið og stigahæsta taplið komast í 3ju umferð)
Þessi dráttur tryggir að í það minnsta einn landsbyggðarskóli kemst í Sjónvarpið (Akranes/MÍ) vitaskuld geta svo fleiri bæst í hópinn. Þar sem ljóst má vera að ein keppni verður tekin upp úti á landi, hlýtur gjaldkeri Sjónvarpsins að bíða í spenntur eftir að sjá hvort hann sleppur með að senda hópinn upp á Skaga eða suður með sjó - eða hvort Ísafjörður, Húsavík eða Egilsstaðir verði áfangastaðirnir…
* * *
Luton tapaði gegn Tranmere. Ég er foxillur. Sem betur fer voru þokkaleg úrslit í 2. deildinni á sama tíma. Staðan þar er annars þessi (leikir/stig):
1. Plymouth 28 59
2. Q.P.R. 28 54
———————–
3. Bristol C. 27 49
4. Swindon 28 44
5. Wrexham 28 43
6. Brighton 27 42
———————–
7. Port Vale 26 42
8. Barnsley 27 42
9. Hartlepool 27 39
10. Luton 26 39
11. Bourn.mth 28 39
Markmiðið er að ná sjötta sætinu. Það á alveg að geta gengið.
Jamm.

January 25th, 2004 at 17:51
Hvenær byrja sjónvarpskeppnirnar, klukkan hvað verða þær og á hvaða dögum?
January 25th, 2004 at 23:50
Og verða þær nokkuð aftur í Smáralindinni?
January 26th, 2004 at 08:30
Keppnirnar í sjónvarpinu byrja upp úr miðjum febrúar. Þær verða á fimmtudögum, væntanlega strax að loknu Kastljósi. Úrslitaleikurinn á föstudegi þó.
Og já, þær verða í Smáralind - nema a.m.k. ein keppni sem fer annað.
January 29th, 2004 at 10:02
Við hér í Gettu Betur liði FAS vildum bara benda þér á það, þó þú sért eflaust ágætis maður, að okkur hafi fundist þú vera hliðhollur MK í keppninni á föstudaginn var. Þar spurðir þú til dæmis um leikverkið Meistarann og Margarítu, en svo skemmtilega vill einmitt til að einn í liði þeirra tekur nefnilega þátt í þeirri uppsetningu. Þar spilar hann á eitthvað blásturshljóðfæri, að ég held.
Annars þakka ég bara fyrir góða og skemmtilega keppni, og gangi þér allt í haginn í framtíðinni.
Kveðja
FAS
January 29th, 2004 at 10:25
Hmmm… kæru Hornfirðingar.
Ekki vil ég neitt um það segja hvort ég sé ágætis maður eða ekki. Undarlegur þykir mér hins vegar skilningur ykkar á orðinu “hliðhollur”. Ef þessi frásögn ykkar er rétt, myndi ég frekar kalla MK-inga heppna.
Höfum eftirfarandi í huga:
i) Keppnisskólarnir í Gettu betur skila ekki inn nöfnum liðsmanna fyrir fyrstu umferð. Það hverjir eru í liðunum upplýsist því ekki fyrr en þau mæta á svæðið.
ii) Hvernig í fjáranum á nokkur maður að vita hver leikur á “eitthvað blásturshljóðfæri” í sýningu út í bæ? Hvað ætli það séu margir sem komi að stórri leiksýningu af þessu tagi? Fimmtíu manns?
Ef einhver MK-ingurinn tengdist uppsetningunni á þessu leikverki, þá er það hans heppni - á sama hátt og keppandi Kvennaskólans var heppinn þegar í ljós kom að ég spurði um afa hennar, að mér skilst.
Í spurningakeppni þar sem spurt er út í margvísleg málefni, hlýtur það alltaf að gerast að einhver liðin detti í lukkupottinn. Stundum fá menn spurningar um sveitabæinn þar sem þeir dvelja öllum sumrum; atburðarásina í leikriti sem var sett upp í skólanum þeirra árið áður eða málverkið sem hangir upp á vegg heima hjá þeim í eftirprentun.
*
Ef þetta eru virkilega einu rökin fyrir að telja mig hafa verið “hlutdrægan” í keppninni - þá stendur þessi málflutningur nú harla tæpt. En ef það eru fleiri atriði, s.s. úrskurður á vafaatriðum og annað slíkt, þá látið endilega komið því á framfæri.
Að öðru leyti óska ég ykkur alls hins besta í framtíðinni og vona að FAS komi sterkur til leiks í GB að ári. Eins og ég hef áður sagt, þá þykir mér vænt um FAS eftir að hafa sjálfur keppt á móti þeim í undanúrslitum 1995.
January 29th, 2004 at 22:47
Ég vil, fyrir hönd míns liðs, þakka kærlega fyrir mjög góða og greinargóða útskýringu.
Gangi þér allt í haginn í því sem þú tekur þér fyrir hendur.
Fyrir hönd Gettu Betur liðs FAS
Sigurður Óskar Jónsson
E.S. ég vildi reyndar koma svolitlu að sem ætlunin var að segja í útsendingunni, en það var að við vorum allir íklæddir Watford búningum.
January 30th, 2004 at 09:07
Hahaha… það hefði nú ekki orðið ykkur til framdráttar að hampa þeirri staðreynd!