Heimskir miðaldra karlmenn
Bögg og leiðindi. Var að taka á móti skólahópi, eftir nokkurt hlé - því það komu engir krakkar í gær.
Ég taldi kennslusalinn vera í fínu lagi, enda tekinn í gegn í lok vinnudags á föstudag. Nema hvað, um kvöldmatarleytið á föstudaginn kom hingað hópur frímúrara í móttöku og kynningu. Þeir fengu að fara í salinn.
Eins og venjulega reynast mestu skemmdirnar á tilraunabásunum í Rafheimum vera eftir þessar heimsóknir. Þegar miðaldra karlmenn fara að fikta - þá verða skemmdirnar.
Karlarnir snara sér í tilraunirnar - að sjálfsögðu án þess að lesa fyrirmælin á verkefnablöðunum vegna þess að þeir eru svo klárir. Því næst, þegar ekkert gengur upp hjá þeim hugsa þeir að það hljóti að vera vegna þess að það eigi að beita ofbeldi og þvinga hlutina í tilraunabásunum til hlýðni - og auðvitað hugsa þeir ekkert út í að tilraunirnar eru hannaðar með tíu ára börn í huga og því varla líklegt að fullorðinn karl eigi að þurfa að beita öllu afli.
Þetta er ástæðan fyrir því að við verðum að hafa Rafheima lokaða almenningi - fullorðnu karlarnir sem rífa allt og slíta. Krakkagrísirnir eyðileggja nær aldrei neitt. 300 börn valda að jafnaði minna tjóni en 10 fullorðnir - ótrúlegt en satt!

January 20th, 2004 at 14:28
Þetta sannar það, frímúrarnir eru á bak við allt sem aflaga fer.
January 20th, 2004 at 15:11
Frímúrarar eru ásamt norðmönnum og skegglausum karlmönnum niðjar hins níflótta
January 23rd, 2004 at 17:45
“300 börn valda að jafnaði minna tjóni en 10 fullorðnir”. Hefði ekki verið betra að segja að þrjátíu börn valdi að jafnaði minna tjóni en einn fullorðinn ?
K.