Tréhesturinn

Jæja, þá heldur kristna fólkið upp á jólin - sem þau stálu frá okkur heiðingjunum. Við látum ekki á neinu bera og tökum þátt í hátíðarhöldunum, þótt við vitum sem er að vegna vondrar rímfræði séu jólin aðeins of seint á ferðinni.

Á hinum eiginlegu jólum héldum við ásatrúarfólk í Nauthólsvíkina og brenndum tréhest. Reyndar væri synd að segja að skíðlogað hafi í hrossinu (vel að merkja - hér nota ég hugtakið “synd” í óeiginlegri merkingu, enda fellst ég ekki á það kristna þrælasiðferði). Hélt að tærnar myndu frjósa af mér, en betur fór en á horfðist.

* * *

Friðargangan í gær gekk mjög vel þrátt fyrir skítaveður. Fullt af fólki, þótt löggan hafi flippað gjörsamlega út í sínum ásgiskunum og skutu á alltof háa tölu.

Steinunn lenti í viðtali bæði á Rás 1 og í fréttum Sjónvarpsins. Stóð sig vel, sem vænta mátti.

* * *

Óli kom í heimsókn. Hann er í fínu formi og allur spengilegri en þegar hann fór fyrst út til Bretlands. Það er þá eitthvað annað en hjá mér. Ég bætti á mig tíu kílóum á einu ári í Skotlandi. Spurning hvort belgíska konfektið sé heilsusamlegra en margir héldu eftir allt saman.

Jamm, gleðileg jól fólk.

6 Responses to “Tréhesturinn”

  1. Jens Sigurðsson Says:

    Brjóstsviði

    Jess. Mér tóskt það. Kominn með brjóstsviða 25. jólin í röð. Ég hugsa að óhófleg neysla á nammi og reyktum…