Er ég fordómafullur?
Meðal þeirra sem rötuðu á lista tíu efstu í valinu á íþróttamanni ársins er einn dansari. Það finnst mér skrítið. - Ekki vegna þess að ég dragi í efa að viðkomandi dansari sé flinkur á ballskónum, heldur vegna þess að mér finnst dans varla flokkast undir að vera íþrótt.
Fordómar? Kannski.
Skák og bridds falla að mínu viti ekki undir skilgreininguna “íþróttir” og um það virðist Íþróttasambandið vera sammála mér. Ég er sömuleiðis sammála því að vaxtarækt eigi ekki að teljast til íþrótta. Kraftraunir (draga vörubíla, lyfta hveitisekkjum o.þ.h.) eru heldur ekki tækar í þann flokk, þótt þær eigi samt meira skylt við raunverulegar íþróttir en sumt það annað sem fellur undir þann flokk.
Hestamennska finnst mér heldur ekki að eigi að flokkast undir íþróttir. Þegar Sigurbjörn Bárðarson var valinn íþróttamaður ársins botnaði ég ekkert í því hvers vegna gengið var framhjá hestinum hans.
Á sama hátt finnst mér hæpið að fella “tækjagreinar” á borð við siglingar, kappakstur og jafnvel bobsleðabrun í sama flokk og frjálsar, sund og fótbolta. Ég veit að núna verður hrossalobbýið og allir Formúluaðdáendurnir æfir, en svona er það nú bara.
Snóker er að mínu viti heldur ekki íþrótt. Sport sem hægt er að iðka á jólabuxunum gengur ekki upp í kollinum á mér.
Almenningsíþróttir eru heldur ekki alvöru íþróttir. Kvennahlaupið, skokk á Ægisíðunni og Ólafur Ragnar að gera hnélyftur í einhverjum tækjum á víðavangi - það eflaust voða holt og gott, en ekki íþróttir…
Jamm.
* * *
Þar til rétt í þessu hafði ég sloppið í gegnum desembermánuð án þess að heyra Jólahjól. Nú er sú sæla á enda.

December 23rd, 2003 at 13:30
hvaða íþróttir skilur það eftir?
December 23rd, 2003 at 13:34
Alveg er ég sammála þér varðandi hvað eru íþróttir og hvað ekki. Hins vegar finnst mér alveg óskiljanlegir fordómar þínir út í hið prýðilega lag Jólahjól.
December 23rd, 2003 at 13:46
Hestur Sigurbjarnar gat að sjálfsögðu ekki orðið íþróttamaður ársins. Íþróttahestur hugsanlega, en ekki íþróttamaður.
December 23rd, 2003 at 13:47
Jólahjólið er alveg frábært lag!
Útnefning íþróttamanns ársins er asnaleg, Kristín Rós Hákonardóttir setti að vanda 100 heimsmet á árinu og samt er hún ekki á topp tíu enda eru sæti þar frátekinn fyrir fólk sem einu sinni gerði góða hluti en getur ekki skít í dag s.s. Jón Arnar og Þórey Eddu. Og plís vill einhver segja mér hvað þessi golfari er að gera á listanum!!!
December 23rd, 2003 at 14:55
Hvað eru íþróttir eiginlega í þínum huga? Í mínum huga er íþrótt leikur með reglum sem krefst líkamlegs erfiðis, svo sem styrks, úthalds, hraða eða snerpu. Dans krefst líkamlegs erfiðis, kraftaíþróttir sömuleiðis, sumar tækjagreinar og hestaíþróttir eru vissulega íþróttir… fyrir hesta þ.e.a.s. Kannski ekkert voðalega mikil íþrótt að sitja klofvega á dýri. En golf, er rétt eins og skák, bridge og snóker ekkert annað en hobbý. Fólk í asnalegum fötum gengur um með prik og regnhlíf. Taka golfarann út og setja Kristínu Rós inn. Hvað þarf hún að gera meira? Setja fleiri heimsmet?
December 23rd, 2003 at 15:02
Vandinn við dans sem íþrótt er að mínu mati meðal annars fólginn í því að fyrir hann er dæmt eftir ýmsum huglægum mælikvörðum, s.s. fyrir þokka. Ef t.d. keppt væri í því hver gæti dansað hraðast, lengst eða dansað með sem mestu afli á vegg - þá gæti það gengið upp, en einkunnagjöfin klúðrar þessu að mínu mati.
Dýfingar, fimleikar og meira að segja skíðastökk eiga öll við þetta vandamál að stríða - þar er verið að gefa einkunnir sem þrátt fyrir ítarlegar reglur hljóta að byggjast á geðþótta, a.m.k. að nokkru leyti. Það er ekki gott.
Að því leyti eru pílukast og snóker skárri íþróttir en dans og dýfingar.
December 23rd, 2003 at 15:12
Jólahjól ER æði. Það er bara staðreynd.
Hins vegar er mér nákvæmlega sama um þessar íþróttir.
December 23rd, 2003 at 15:25
Jólahjól var ömurlegt þegar þeir endurgerðu það með hinum hryllilega Stebba Himm. Gamla útgáfan sem Skúli söng var miklu skemmtilegri. Annars er náttúrulega allt sem Stebbi Himm syngur leiðinlegt samkvæmt skilgreiningu.
December 23rd, 2003 at 18:30
Knattspyrna er eina íþróttagreinin! Allt hitt er drasl.
December 23rd, 2003 at 20:05
Þó mér finnist F1 mikil skemmtun skil ég viðhorfið.
Michael Schumacher er nú samt einn ‘fittasti’ íþróttamaður heims, keyrslan er þokkaleg þolraun.
Og ég skil ekki afhverju Kristín Rós er ekki búin að fá titilinn enn. Annars þætti mér gaman að sjá smá samanburð þarna í flokkum fatlaðra, hvort það eru margir aðrir sem eru að dóminera svona sinn flokk.
December 23rd, 2003 at 23:36
Hvað með krikkett? Það er vissulega stundað í jólabuxunum?
Mér sýnist eiginlega að samkvæmt þínum standard séu það einungis þær greinar sem stundaðar eru á stuttbuxum sem teljist til íþrótta. Ég veit ekki hvor það gerir þig frekar fordómafullann eða þröngsýnan…
Ég get tekið undir það sjónarmið að skák, bridds og aðrar huglægar “íþróttir” ætti að kalla einhverjum öðrum nöfnum. Í mínum huga þarf íþrótt að vera líkamleg, í einhverjum abstract skilning þess orðs.
Ég skil einnig vissulega þinn þankagang varðandi íþróttir sem byggja á huglægu mati. Það er alltaf frekar loðið þegar þannig fyrirkomulag er viðhaft. Við skyldum þó ekki gleyma því að fótbolti og handknattleikur eru líka ákaflega háð huglægu mati, eða hvenær er rangstaða rangstaða og víti víti? Ég held að það sé fremur stigsmunur en eðlismunur á fimleikum og fótbolta.
Hins vegar get ég ómögulega skilið á hvaða forsendum þú myndir vilja dæma úr leik greinar eins og kappakstur, siglingar, eða bobsleða keppni. Ég held að þessar greinar uppfylli nánast alla hugsanlega standarda sem við getum lagt á íþróttir. Þær krefjast góðrar líkamlegrar þjálfunar, tækni, þrotlausra æfinga og gefa nokkurn veginn eins augljós úrslit og hægt er að fara fram á.
Ég fæ heldur ekki alveg séð hvar þú vilt draga strik á milli bobsleðakeppni og venjulegrar skíðagöngu?
E.t.v. erum við aftur komnir að stuttbuxnamælistikunni, og þar með knúnir til að þurrka út vetrarólympíuleikanna á einu bretti…
December 24th, 2003 at 02:20
“fyrir hann er dæmt eftir ýmsum huglægum mælikvörðum, s.s. fyrir þokka”
Eins og t.d. í fimleikum eða karate?
Er ekki málið bara að “íþrótt” þýðir í dag ekki “afl- eða þrekraunir” heldur meira “atferli sem reynir á fimi” (e. Dexterity). Þess vegna er keppt í skot og bogfimi, dýfingum, krullu og þessháttar á ólympíuleikunum.
Það er stundum mun erfiðara að hreyfa sig nákvæmt en fast. Stundum er það nú samt eftirsóknarverðara…
December 24th, 2003 at 11:57
Krikket í jólabuxum? Engin maður með sjálfsvirðingu myndi mæta í krikketbuxunum í jólaboð, og sennilega enginn í jólabuxunum í krikketleik.
Og talandi um krikket þá tilnefni ég Ragnar Kristinsson, kaptein og konferensráð Kylfunnar, til þessara eftirsóttu verðlauna.
December 25th, 2003 at 01:30
Já, konferenzráðið átti náttúrulega stórleik gegn Tjöllunum í sumar.
October 3rd, 2004 at 09:44
Payday Loans - Cash Advance