Spurt um götuheiti

Þriðjudagsþraut - að þessu sinni tengd götuheitum:

Aragata og Oddagata eru samsíða götur í grennd við Háskólann. Aragata er að sjálfsögðu kennd við Ara fróða, en hvernig stendur á Oddagötunafninu?

Svör óskast í athugasemdakerfið.

15 Responses to “Spurt um götuheiti”

  1. Þorbjörn Says:

    Oddagata ætti frekar að heita Sléttagata því húsnúmerin við götuna eru eingöngu slétt.

  2. Ágúst Says:

    Odda á Rangárvöllum?

  3. Stefán Says:

    Haha… það halda nefnilega margir, en sú er ekki raunin!

  4. dr. Igito Says:

    Líklegt þykir að gatan sé kennd við Odd Jónsson, fyrrverandi frjálsíþróttakappa úr Grindavík.

    Annars gatan gengur beint í suður útfrá Odda.

  5. Stefán Says:

    Uhh… það halda öllu færri, en sú er heldur ekki raunin.

  6. BD Says:

    Stjörnu-Oddi.

  7. Stefán Says:

    Og það var hárrétt! En sú staðreynd að gatan heitir eftir Stjörnu-Odda en ekki Odda á Rangárvöllum gerir það að verkum að heitið “Oddi” á húsi Félagsvísindadeildar er alveg út í hött - eða hatt eins og Böðvar Guðmundsson hefði orðað það…

  8. Gussi Says:

    Odd Benediktsson, prófessor við tölvunarfræðiskor.

  9. Tóró Says:

    Ekki það að ég hafi neinu við þetta að bæta, en árvökul augu mín taka þó eftir því að frá því að spurningin er birt og þar til svarhala lýkur líða skv. tímastimplum 18 mínútur (og berast 8 komment). Þetta þykir mér benda til þess að:

    A) Þessi vefur sé með fjölsóttari vefjum landsins.

    B) (Sumir) gestir og vefstjóri sjálfur hafa ekkert betra að gera í vinnunni en að endurhlaða í sífellu og sjá hvort eitthvað nýtt hafi bæst við.

    (Sjálfur er ég brjálæðislega bissí í minni vinnu…)

  10. Stefán Says:

    Vefstjóri getur ekkert sagt um það hvort lesendur hans séu liðleskjur og aumingjar sem endurhlaði í sífellu.

    Sjálfur fær hann tölvupóst með tilkynningu um nýja athugasemd jafnóðum og þær berast. Það skýrir hin skjótu svör vefstjóra, en það er satt að viðbragðsflýtir almennra lesenda er skuggalegur…

  11. ~ritarinn Says:

    bjó ekki sæmundur fróði í odda?