Crystal Palace
Crystal Palace er kúnstugt fótboltalið. Ég er pínkulítið skotinn í þeim og það skot hefur heldur verið að ágerast. Aston Villa er að sumu leyti í sama flokki hjá mér. Ég tékka á úrslitunum hjá Villa og gleðst frekar en hitt ef liðið vinnur. Svona daður breytir þó vitaskuld engu um að stóra ástin mín í enska boltanum er Luton Town, eins og varla ætti að hafa farið framhjá nokkrum lesanda þessarar síðu.
Nú er hins vegar komið upp skemmtilegt mál í Bretlandi. Í leik Crystal Palace og Aston Villa í deildarbikarnum um daginn, sagði gestaþulur BBC í útvarpslýsingu að um væri að ræða skítaleik tveggja skítaliða.
Þessi ummæli kölluðu á viðbrögð stuðningsmanna Crystal Palace, en þau raunar nokkuð sérstæð. Stuðningsmennirnir skiptast nefnilega í tvö horn í afstöðu sinni. Annars vegar þá sem sjá ekkert athugavert við þau, enda sé Crystal Palace skítalið. Hins vegar þá sem viðurkenna fúslega að Crystal Palace sé skítalið, en þulurinn hafi ekki átt neitt með að segja það í útvarpið. Með þessum umræðum má fylgjast hér.
Aðdáun mín á Crystal Palace fer ört vaxandi.

December 16th, 2003 at 05:26
Hefur ást þín á smáliðum enska boltans eitthvað að gera með ást þína á lítilmagnanum í hinu pólitíska umhverfi?
Svolítið gaman að vera í VG og styðja Luton Town. Þetta er svona fullkomleg andstæða við Sigurð Kára sem er í XD og heldur með Man.Utd (og fer ekkert í grafgötur mað ást sína á þeim.)
Annars skemmtileg síða, les hana oft, þó ég sé ekki sammála þér í pólitík. Alltaf gaman þegar liprir pennar gefa sér tíma til að blogga.
(ég skrifa undir dulnefni af því ég er raggeit).