Archive for December, 2003

Stormur

Monday, December 29th, 2003

Neinei… engar áhyggjur - ég ætla ekki að fara að blogga um veðrið (þótt vissulega sé skítaveður úti). Ég ætla að blogga um Storm, skáldsögu Einars Kárasonar.

Einar hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Hef lesið allar skáldsögurnar hans nema þá fyrstu. Skilst að fátt annað sé gott við hana en titillinn. Hitt hef ég allt eignast og lesið að heita má. Meira að segja smásagnasöfnin, Söng villiandarinnar og Þætti af einkennilegum mönnum. Djöflaeyjan er vitaskuld toppurinn. Hana las ég fyrst sem krakki og hló af bröndurunum. Síðar las ég hana á alveg nýjan hátt. Gaman að þroskast upp í bækur með þessum hætti.

Stormurinn olli mér ekki vonbrigðum. Held að hún muni fara á spjöld sögunnar sem töffaralegasta “hefnd” seinni tíma. Aðalpersónan er sem sagt letihaugur, leiðindagaur, skúnkur og kjaftaskúmur - sem lesandinn kemst þó ekki hjá því að hafa nokkra samúð með, a.m.k. framan af. Auðvitað er þarna Aggi sjálfur lifandi kominn - maðurinn sem minnti endilega að hann hefði sjálfur skrifað Djöflaeyjuna og að hvaða fífl sem er hefði getað komið sögunum frá kaffibollastiginu og á prent. 1-0 fyrir Einar.

* * *

Lenti á fundi í vinnunni kl. 9. Allir vansvefta. Svona fer þetta yfir hátíðarnar. Maður sefur eins og svín - leggur sig helst ekki fyrir minna en 12 tíma. Svo liggur maður andvaka alla nóttina áður en vinnuvikan hefst. Annars er nánast óskammfeilið að kalla tvo vinnudaga í röð “vinnuviku”.

* * *

Luton endaði árið vel. Sigur heima gegn Notts County og við erum í sjöunda sæti - einu sæti frá umspili - og bara stigi á eftir tveimur næstu liðum.

Bikarslagur á laugardaginn. Útileikur gegn Bradford sem er fyrstudeildarlið - raunar í fallsæti. Það væri nú ekki amalegt að komast áfram um eina umferð og fá stórlið upp úr hattinum. Þá gæti gjaldkerinn í það minnsta borgað leikmönnum launin áður en Visa-reikningarnir frá jólunum berast.

Tréhesturinn

Wednesday, December 24th, 2003

Er ég fordómafullur?

Tuesday, December 23rd, 2003

Sagan af manninum sem hélt að hann hefði týnt lyklunum sínum…

Monday, December 22nd, 2003

Falleg útför

Wednesday, December 17th, 2003

Jólagjafakörfur

Wednesday, December 17th, 2003

Spurt um götuheiti

Tuesday, December 16th, 2003

Crystal Palace

Monday, December 15th, 2003

Á austurleið

Monday, December 15th, 2003

Fín Vera

Thursday, December 11th, 2003