Archive for August, 2003

Dagar Össurar taldir

Sunday, August 10th, 2003

Jæja, þá er þetta búið hjá Össuri. Hafi einhver efast um að honum yrði slátrað á næsta landsfundi tekur Fréttablaðið af allan vafa með því að birta viðtal við Margréti Frímannsdóttur um að hann muni sitja áfram.

Allir vita að þegar einhver fer í viðtal og segir: “Ég er ekki á leiðinni í framboð/landsliðið/nýtt starf, þótt fullt af fólk hvetji mig til þess” – merkir það í raun: “mig dauðlangar. Hvers vegna stingur enginn upp á mér?”

Viðtalið: “Er hundleiður á kjaftasögunum” – merkir í raun: “Hey, eru allir búnir að gleyma mér? HALLÓ – sýna mér athygli!”

Fréttin: “Hr. X nýtur ótvíræðs stuðnings. Enginn vill bola honum í burt” – merkir: “rýtingarnir eru á leiðinni úr brýningu…”

Aumingja Össur!

* * *

Við Steinunn tróðum okkur undir alltof litla regnhlíf í gær og fórum á Dillon. Þar voru ansi margir Gay pride-göngugarpar sem höfðu blotnað of mikið að utan um daginn og að innan upp frá því. Andrea er samt langbesti plötusnúðurinn á nokkrum bar í bænum.

* * *

Úgg. Fótboltaleikur á Akranesi á eftir. Útlit fyrir úrhellisrigningu og völlurinn örugglega þungur og blautur. Mikið væri gaman að ná jafntefli, en ekki er ég tiltakanlega bjartsýnn.

Helv. Grindvíkingarnir virðast meira að segja ætla að bregðast mér í Eyjum. Þessi fallbarátta lítur verr út með hverjum deginum.

* * *

Í gær hjálpaði Óli mér að semja lögfræðilegt hótunarbréf. Það er nánast skuggalegt hvað drengnum er náttúrulegt að semja svona texta…

Ágætis byrjun

Saturday, August 9th, 2003

3:1 sigur á heimavelli gegn Rushden & Diamons. Tony Thorpe með tvö; Matthew Spring með eitt. (Fyrirsjáanlegir markaskorarar.) – Hver veit nema að það rætist úr þessu tímabili hjá Luton eftir allt saman.

Nafna mínum Hagalín er óskað til hamingju með 5:0 sigur QPR í fyrstu umferð og Björgvin Ingi og hinn Sheff. Wed. stuðningsmaðurinn mega vera sáttir við sína menn. Grimsby gerði jafntefli á útivelli, sem Bryndís getur varla kvartað yfir. – Núna gerum við alvöru úr því að stofna smáliðaklúbbinn.

Í Skotlandi unnu Hearts 2:0 sigur á Aberdeen. Marc de Vries, gamli Luton-maðurinn og Andy Kirk með mörkin. Hearts hefur styrkt sig frá því að þier lentu í þriðja sæti í fyrra, en eins og bent hefur verið á hafa öll lið sem hafnað hafa í þriðja sæti á eftir Rangers og Celtic floppað illilega árið eftir síðastliðin tíu ár. Sjáum samt hvað gerist…

ÍBV-Grindavíkur-leiknum frestað vegna veðurs. Treysti á Grindvíkinga að klára þetta í hádeginu á morgun. Einu sinni höfðu menn fyrir satt að Eyjamenn töpuðu alltaf fyrsta leik eftir Þjóðhátíð…

Félagsmálajarlinn

Saturday, August 9th, 2003

Einhverju sinni ákvað ég að taka saman lista yfir öll þau félög sem ég er skráður í, þó ekki væri nema til að fá það á hreint hversu mörg þau eru. Þennan lista samdi ég beint inn á bloggið og svo fraus tölvan. Rats! – Man ekki hvort ég reyndi að klambra saman listanum upp á nýtt, en ef ég gerði það var hann í það minnsta ekki minnisstæðari en svo að ég ætla að prufa aftur. Hefst þá lestur (ath. félögin eru ekki talin upp í neinni sérstakri röð):

1. Samtök herstöðvaandstæðinga. – Þessi urðu nú að fá að vera fyrst úr því að ég er formaður. Kæmi mér heldur ekki á óvart þótt þetta sé það félag sem ég hef lengst verið skráður í.

2. Knattspyrnufélagið Fram. – Lenti á skrá hjá Frömurum fyrir margt löngu og byrjaði skyndilega að fá gíróseðla frá þeim fyrir félagsgjöldum þegar ég var svona fimmtán eða sextán ára. Borga þá þegar þeir berast.

3. Framherjar. – Stuðningsmannafélag Fram. Á að heita að ég sé þar í stjórn, en hef verið hyskinn og latur.

4. Félag safna og safnmanna. Fagfélag fólks í safnageiranum. Mætti á nokkurra daga námskeið á Höfn í Hornafirði síðasta haust. Það var gaman og fræðandi.

5-7. Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Stjórnmálaflokkurinn minn. Með aðild að honum fylgja tvö önnur félög: Reykjavíkurfélag VG og Ung Vinstri-græn. Hef aldrei gegnt embættum innan VG, ef frá eru taldar tvær uppstillingarnefndir.

8. Félagið Ísland-Palestína. Eitt af eftirlætisfélögunum mínum, þrátt fyrir að ég taki aldrei neinn þátt í starfinu. Það er alltaf fínt að fá sent fréttabréfið og vita að eitthvað sé í gangi. Hef líklega verið félagi frá sextán ára aldri.

9. Íslenska vitafélagið. Gerðist stofnfélagi í vitafélaginu. Bind miklar vonir við starfsemi þess í framtíðinni.

10-11. Stéttarfélög. Er í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og þar með einnig í BSRB. Aldrei mætt á fund eða tekið þátt í kosningum, en fékk einu sinni vænan námsstyrk frá endurmenntunarsjóði félagsins.

12. STOR – starfsmannafélag Orkuveitunnar. Þetta félag tryggir mér rétt til að leigja sumarhús og veislusali. Það kæmi sér vel ef ég færi t.d. að taka upp á því að fermast á gamals aldri.

13. Ásatrúarfélagið. Hvað gera tengdasynir ekki fyrir tengdamæður sínar?

14. Sögufélag. Gekk í Sögufélagið um leið og ég hóf nám í sagnfræði í HÍ. Félagsgjaldið samsvarar kaupverði á Sögu, tímariti félagsins sem er skyldueign.

15. Sagnfræðingafélag Íslands. Gekk í þetta strax eftir útskrift. Fæ fréttabréfið og mæti stundum á fundi.

16. Reykjavíkurakademían. Gerðist félagi til að geta leigt skrifstofuaðstöðu um nokkurra mánaða skeið. Hef ekki kunnað við að segja mig úr félaginu, enda ágætt að fá fréttir af starfinu öðru hvoru.

17. Hollvinasamtök Edinborgarháskóla. Var skráður í þetta óumbeðinn. Mun líklega hætta að fá póst eftir nokkur ár þegar þeir fatta að ég borga aldrei neitt.

18. Húsfélagið Hringbraut 119. Við fasteignaeigendurnir þurfum að vernda hagsmuni okkar.

19. MS-félagið. Gefur út prýðilegt tímarit.

20. Society for the history of Technology. Svölustu samtökin af þeim öllum. Gefa úr Technology & Culture sem er uppáhaldstímaritið mitt. Fór á ársþing í München einu sinni. Það var frábært.

21. Luton Town F.C. Á pílagrímsferð minni á Kenilworth Road komst ég að því að einungis félagsmenn í Luton megi kaupa miða í stúkuna fyrir aftan markið – og auðvitað sló ég til.

22. Luton Town Supporters Club of Scandinavia. Eini Íslendingurinn í félaginu sem einkum er skipað Norðmönnum. Hef ekki borgað félagsgjöld lengi og er hættur að fá fréttabréfið, en virðist þó enn vera á skrá.

23. Mannvernd. Lenti á félagaskrá hjá þeim fyrir tilstilli Skúla Sigurðssonar sem hefur mikið beitt sér í gagnagrunnsmálinu. Held að ég myndi ganga í félag djöfladýrkenda ef Skúli bæði mig um það.

24. Átthagafélag Framarar í Vesturbæ. Útgefandi blaðsins “Fram Vest” sem fjallar á fordómalausan hátt um Fram og vinnur að útbreiðslu Fram-hugsjónarinnar í Vesturbæ.

25. Málfundafélag úngra róttæklínga. Útgefandi Múrsins.

26. Félag sagnfræðinema – félag sagnfræðinema. Félag sem stofnað var til höfuðs nafnbreytingu Félags sagnfræðinema sem tók upp heitið “Fróði – félag sagnfræðinema”. Félaginu hefur ekki verið slitið og ég er því líklega ennþá ritari eða gjaldkeri – man ekki hvort…

27. Félag Palestínuvina við Edinborgarháskóla. Mætti á ein mótmæli og eina ráðstefnu á þeirra vegum og er enn að fá tölvupóst. Það var mjög fróðlegt að sjá muninn á mótmælakúltúrnum í Skotlandi og á Íslandi.

28. Blóðgjafafélag Íslands. Veit reyndar ekki hvort ég er í þessu félagi. Fæ stundum einhvern póst um blóðgjafar hitt og þetta, en það er svo sem rétt mögulegt að það sé frá Blóðbankanum og að maður þurfi að ganga sérstaklega í Blóðgjafafélagið.

Kylfan, Krikketklúbbur Reykjavíkur. Eins og gefur að skilja er nafn þessa félags skammstafað KKKR og einhverju sinni var prentaður bolur með þeirri áletrun. Þann bol tók ég með mér til Edinborgar á sínum tíma og fékk hvarvetna illt auga. Það þykir ekki fínt í enskumælandi löndum að ganga um í fötum þar sem stafirnir “KKK” koma fyrir, jafnvel þótt “R” fylgi á eftir.

30-31. Knattspyrnufélög úr bernsku. Knattspyrnufélag Litla-Skerjafjarðar (KLS) og Skörungur (sem starfaði á Hjarðarhaganum) voru formlega stofnuð og hefur ekki verið slitið mér vitanlega. Sjálfur á ég sögubrot af sögu Skörungs í fórum mínum – rituð eigin hendi. Þar er reyndar ekki getið um eina opinbera knattspyrnuleik Skörungs, gegn Knattspyrnuliði Tómasarhaga. Hann tapaðist.
KLS lék eitthvað fleiri opinbera leiki en Skörungur. Stærsti leikurinn var gegn úrvalsliði skólagarðanna úr Mörkinni. Held að hann hafi tapast líka.

Þrjátíu og eitt félag. Það er nú ekki svo galið!

Fasteign á hjólum

Saturday, August 9th, 2003

Skrifaði undir kaupsamning á Bláa draumnum, Volvo 240 árg. 1987. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessum bíl. Bíldruslubissnesinn er happdrætti. Rauða Mazdan sem ég átti hvað lengst var fín, þar til hún byrjaði að bila. Þá var kostnaðurinn fljótur að rjúka upp. Nissaninn olli nokkrum vonbrigðum. Hann entist í ár, en ég hafði verið að stóla á að hann dygði í a.m.k. tvö.

Vonandi mun nýji bíllinn rúlla bilanalítið næsta árið. Þá væri ég í góðum málum. Þrátt fyrir úrtöluraddir vina og kunningja stend ég fastur á þeirri stefnu að eiga aldrei bíl sem kostar meira en ein mánaðarlaun.

* * *

Fullt af fótboltaleikjum til að fylgjast með í dag. Guradian er með grein um Luton. Úff hvað það er allt í steik hjá félaginu. Það er heldur ekki gott að mæta nýliðum í fyrstu umferð. Krosslegg fingur!

* * *

Hvers vegna ákveður RÚV að ergja mig svona á föstudagskvöldum? Guðni Ágústsson í Kastljósinu er ekki það sem maður þarf að sjá beint á eftir dýrindismáltíð. Og hvern er verið að blekkja með þjóðremburæðunum um að íslenskir hestar/fiskar/sauðalitir/grænmeti/lambakjöt sé það besta í heimi og allt annað sé bara frat? Ljótt, ljótt sagði fuglinn!

Sviptingar í bílamálum

Friday, August 8th, 2003

Besti og frægasti bloggari landsins og hugsanlega Norðurlandanna (en þó ekki besti bloggari eins og sumum virðist ætla að reynast erfitt að skilja) er væntanlega að fara að skipta um bíl í lok dagsins.

Neisti nýrrar aldar mun eignast athvarf á nýjum stað, en þess í stað mun ég festa kaup á gömlum bláum Volvo. Þessu fagna allir góðir menn.

Þessi kaup hafa verið í deiglunni frá því í gærmorgun og nú þegar hef ég velt því fyrir mér hvaða gælunafn nýji bíllinn gæti fengið. Neisti nýrrar aldar var vissulega gott og tilkomumikið nafn, en að þessu sinni ætla ég að halda mig við eitthvað hefðbundnara og yfirlætisminna. Með vísun í bláa litinn fer vel á því að kalla vagninn: Bláa drauminn.

Ójá!

Glettingur er fjall

Friday, August 8th, 2003

…nánar tiltekið upp af Glettisnesi milli Hvalvíkur og Kjólsvíkur í námunda við Borgarfjörð eystri.

Hahaha… þar með tókst mér að eyðileggja fyrir Ármanni. Hver veit nema að ég spilli sakleysi hans enn frekar á næstunni með því að fletta ofan af merkingu skemmtilegra orða.

Er ég vondur maður? Tja, Ármann tíðkar það sjálfur að segja börnum að jólasveinninn sé plat. Það er bitamunur ekki fjár.

* * *

Ekkert heyrst frá bifvélavirkjanum ennþá. Á ég að fara að stressast?

Kaldhæðni

Friday, August 8th, 2003

Get ekki hætt að skemmta mér yfir vandræðum þess góða pilts Hrafnkells Brynjarssonar, eða Mella eins og hann er betur þekktur.

Hrafnkell er á leiðinni til meginlandsins og hyggst setjast að í anarkistakommúnu. Hins vegar hefur það mál ekki gengið í gegn vegna þess að umsóknin hans er enn að þvælast í kerfinu þarna úti. Hann sótti seint og illa um og allt er í uppnámi.

Hversu fyndið er það að lenda í skrifræðis-anarkistum? Maður hefur heyrt ýmislegt um þýsku reglusemina og nákvæmnina, en bjúkratísk kommúna er bara alltof fyndið…

Eðlisfræði fyrir kynvísa

Friday, August 8th, 2003

Klúður! Fyrir lifandis löngu var ákveðið að auglýsa opið hús í Rafheimum laugardaginn 6. ágúst, þar sem foreldrar gætu komið og kennt gríslingunum sínum allt um rafmagnið. Þetta hljómaði eins og ágætis hugmynd á sínum tíma, enda var enginn búinn að líta á dagatalið.

Á laugardaginn kemur verður sem sagt Gay Pride í miðborginni og milljón, skrilljón manns. Í Elliðaárdalnum verður hins vegar væntanlega ekki kjaftur. Bömmer!

Kannski ætti safnið að koma með krók á móti bragði og leggja sérstaka áherslu á að höfða til hómófóbískra? Engir hommar í Rafheimum! Vertu ekki hýr – komdu til okkar! Veit ekki hvort slíkar auglýsingar samrýmist alveg stefnu Orkuveitunnar um vera góður þjóðfélagsþegn og berjast gegn fordómum…

Blikur á lofti

Thursday, August 7th, 2003

Ótíðindi, ógn og skelfing! Í gær hringdi bifvélavirkinn minn í mig og tilkynnti að Neisti nýrrar aldar væri í verra standi en ætlað var. Hann lekur víst olíu eins og hann fái borgað fyrir það og allskonar flókin tækniorð (spindilkúlur o.þ.h.) eru víst í steik. Hann sagði nánast berum orðum að best væri að keyra bílnum á haugana og kaupa sér bland í poka fyrir tíuþúsundkallinn.

Þetta eru ekki skemmtilegar fréttir. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska.

Það þýðir að næstu daga eða vikur ætla ég að þjösnast áfram á vesalings bílnum mínum, en fer jafnframt að leita mér að nýrri druslu sem uppfyllir þetta eina skilyrði mitt að kosta slikk.

Að öðru leyti er ekki ástæða til annars en að gleðjast. Kertafleytingin í gær tókst roknavel. Mogginn setti mynd á forsíðu (öðru vísi mér áður brá) og nafngreindi Steinunni sem heimildamann um framkvæmdina og fjölda gesta. Gott mál.

Á morgun, föstudag, liggur leiðin upp á Skaga. Þar verða ásatrúarmenn með blót, en það er orðið nokkuð langt síðan við skelltum okkur síðast á slíka samkomu. Til hvaða áss á ég að drekka? Síðast drakk ég til Heimdallar. Lýsi eftir góðum uppástungum. (Sleppið samt brandaranum um Helga Áss.)

* * *

Ég gæti ekki verið meira sammála bloggi Þórdísar um fjölgreindarkanann. Maðurinn hefði kannski mátt prufa kenningar sínar á forsvarsfólki Íslensku menntasamtakanna, sem eru að bjóða honum upp á skerið. – Þótt fólk hafi “viðtalagreind” og geti blaðrað í fjölmiðlum og þótt það hafi “samningagreind” og geti kjaftað sig inn á bæjarfélög til að stofna og reka skóla – þá er ekki þar með sagt að það hafi “mannlegra samskiptagreind” og geti rekið sjoppuna í ár án þess að út brjótist lítil borgarastyrjöld… – Ekki?

Í býtið

Wednesday, August 6th, 2003

Lenti í sjónvarpinu í morgun ásamt ritstjóra Frétta að ræða kjarnorkuárásina á Hírósíma, stöðu í hermálinu og annað í svipuðum dúr. Þetta er í annað sinn sem ég mæti í Ísland í býtið á innan við hálfum mánuði. Sminkan hélt að ég væri innanhúsmaður, fannst ég vera svo heimilislegur þar sem ég rauk beint í kaffikrúsir starfsmanna.

Við Steingrímur vorum nokkuð brattir, en það lækkaði nokkuð í okkur rostinn þegar við komumst að næsta viðtal á eftir okkur var við kálf. Það er nú margt hetjuegra en að hita upp fyrir kálf í spjallþætti.

Á undan okkur voru hins vegar dr. Gunni og Sigurjón Kjartansson, en þeir eru að fara að stofna enn eina útvarpsstöðina. Þeir voru að fiska eftir nýju nafni og sjónvarpsáhorfendur kepptust við að hringja inn.

Uppástungurnar voru allar afleitar. “Smellur”, “Rokkstöðin” eða eitthvað álíka vont. Ef menn velta þessu aðeins fyrir sér ætti svarið hins vegar að liggja ljóst fyrir. Hver er frægasta evrópska útvarpsstöðin í sögunni? Að sjálfsögðu Radíó Lúxembúrg, sem rekin var á einhverjum pramma í Norðursjó.

Af þessu má sjá að besta útvarpsstöðvarnafnið væri að taka upp heiti einhvers smáríkis. T.d.: Útvarp Andorra; Liecthensteinstöðin eða Radíó Mónakó. – Þetta eru allt nöfn sem myndu svínvirka.

Þá er búið að leysa það vandamál…