Archive for August, 2003

Hvað verður um týndu bloggin?

Sunday, August 17th, 2003

Þegar ég var að harka í að þjálfa MorfÍs-ræðulið síðasta árið mitt í menntó og meðan ég var í Háskólanum (og fékk ágætis vasapening fyrir) var eitt helsta vandamálið að berjast við þá áráttu ræðumanna að tíma ekki að sleppa bestu undirbúnu svörunum.

Eins og þeir vita sem þekkja til MorfÍs-keppna, eru liðin yfirleitt búin að semja fjölda svara og mótraka áður en til keppni kemur. Þessi svör taka á öllum þeim rökpunktum sem líklegt má telja að andstæðingarnir muni velta upp og þannig má skjóta þeim inn í ræðurnar eftir því sem þurfa þykir á keppninni. Sum liðin eru jafnvel búin að æfa flutningin á svörunum sínum og kunna þau bestu utanbókar.

Vandamálið er að sum svörin eru snjallari og fyndnari en önnur. Þess vegna vilja ræðumennirnir ólmir nota þau – jafnvel þótt þau endurspegli ekki endilega þá rökpunkta sem andstæðingarnir hamra helst á. Það getur því tekið á að banna ræðuliðunum að velja undirbúnu svörin eftir gæðum þeirra fremur en á grundvelli málflutnings andstæðinganna. Það er nefnilega svo fúlt þegar gott svar fær ekki að njóta sín í keppni.

Einhverju sinni þegar FB-liðið mitt var að barma sér yfir öllum fyndnu bröndurunum sem dottið höfðu dauðir af þessum sökum, útskýrði ég fyrir þeim að til væri land – langt, langt í burtu – þar sem ónotuðu svörin byggju. Þetta land væri himnaríki hinna ósögðu brandara, þar sem gamansögurnar og hnyttnu tilsvörin sem ekki fengju að njóta sín hjá okkur lifðu góðu lífi og fengju þann hlátur og viðurkenningu sem þau ættu skilið. Þessi vitneskja róaði ræðumennina mína talsvert.

Skyldi ekki vera til svipað himnaríki fyrir bloggin sem aldrei birtust? Hversu oft hefur maður ekki lent í því að semja snilldarbloggfærslur – jafnvel færslurnar sem munu breyta bloggheiminum eins og við þekkjum hann – til þess eins að sjá þau týnast, engum til gagns?

Ég vil trúa því að slíkur staður sé til. Þar munu síðustu tvær bloggfærslur mínar (sem báðar gufuðu upp) lifa góðu lífi…

* * *

Framararnir unnu í gær. Luton líka. – Sumarið er timinn…

Menningarsíðdegi

Saturday, August 16th, 2003

Muniði eftir fyrstu menningarnóttinni? Hún var talsvert frábrugðin þeim sem síðar hafa verið haldnar, einkum vegna þess að hún fór í raun og veru fram að næturlagi. Uppákomurnar voru um miðnæturbil en ekki milli kl. 16 og 17 um daginn. Afturför? Tja, hef ekki skoðun á málinu.

En nú er sem sagt Menningarsíðdegi gengið í garð. Orkuveitan er með labbitúr skipulagðan um Elliðaárdal. Lagt upp frá Minjasafninu (þess vegna er ég við tölvu kl. 9:30 á laugardagsmorgni…) Að þessu loknu geri ég ráð fyrir að líta á róttæklingatjald Stebba frænda & co. við Tjörnina. Skemmtilegt framtak hjá strákunum.

Upp úr kl. 14 verður litið við á Hlemmi, sem að sögn verður breytt í listamiðstöð. Trúi því þegar ég sé það. Því næst verður haldið á Laugardalsvöll að sjá Framara berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Allt annað en sigur gegn ÍBV þýðir að fall er óumflýjanlegt.

Sjónvarpsgláp í kvöld. Steinunn á að hvíla sig þessa helgi og það að spanast niður í bæ innan um mýgrút af fólki er ekki sterkur leikur í stöðunni.

* * *

Luton er með útileik gegn Stockport. Nú fyrst reynir á liðið.

Í Skotlandi mætast Hearts og Hibs. Einn stærsti leikur ársins í Edinborg!

Ármann á menningarnótt

Friday, August 15th, 2003

Ógn og skelfing! Menningarnótt á morgun og alls óvíst að ég komist á neinar uppákomur! Þarf aðeins að skjótast í vinnuna um morguninn, á fótboltaleik síðdegis og stjana við sjúklinginn um kvöldið.

Þetta þýðir að ég kemst líklega ekki á vísindavefs-uppákomuna í Top Shop-húsinu þar sem Ármann mun sitja fyrir svörum og leysa úr spurningum almúgans.

Ég var meira að segja búinn að semja spurningu, þannig að kannski getur einhver lesandi þessarar síðu borið hana upp fyrir mína hönd. Hún yrði eitthvað á þessa leið:

Ármann – nú spyr ég þig sem bókmenntafræðing og snilling. Fyrir lýðveldisstofnunina 1944, varpaði skáldkonan Hulda fram einfaldri spurningu sem enn hefur ekki fengist svarað með fullnægjandi hætti. Því spyr ég – “hver á sér fegra föðurland?” Ef um fleiri en einn aðila er að ræða, gætirðu þá talið þá upp í stafrófsröð og helst líka reynt að raða þeim niður eftir því hver á sér fegursta föðurlandið og hver það ljótasta?

Ég er viss um að þetta yrði mjög fróðlegt.

Leifturlýður

Thursday, August 14th, 2003

Hvenær munu Íslendingar fá að upplifa leifturlýð af eigin raun. (Tilraun mín til að íslenska hugtakið Flash Mob.)

Samkomur leifturlýðsins eru nýjasta tíska á netinu, en þá er hópi fólks stefnt á tiltekinn stað til að fremja þar gjörning. Þannig mætti hugsa sér að kl. 17 á föstudegi dúkki 20-30 manns upp í Kringlunni, dragi þar upp fiskistangir og þykist dorga í gegnum gólfið. Það væri klassísk leifturlýðs-uppákoma.

Hægt er að fræðast meira um þetta magnaða fyrirbæri á þessari síðu. Snjallt!

* * *

Bjarna er óskað til hamingju með að hafa náð að bæta skaðann eftir að molarnir sprungu. Hvað ætli séu eiginlega margir bloggarar á molunum þegar allt er talið?

* * *

Um helgina kemur nýjasta Ian Rankin bókin út. Skyldu erlendu bókadeildirnar í bókaverslununum hafa vit á að panta eintök í tíma? Get varla beðið eftir nýrri Rebus-bók…

Smákvikindi

Thursday, August 14th, 2003

Ármann bloggar um geitunga og þá sérstæðu áráttu íslenskra fjölmiðla að birta endalausar fréttir af geitungabúum á hverju ári. Þetta er undarlegt helvíti, enda eru geitungar orðnir hluti á dýraríkinu hérlendis og því jafnfráleitt að taka viðtal við svekktan garðeiganda með geitunga á lóðinni sinni og sumarbústaðaeiganda sem kljáist við músagang.

Geitungar trufla mig ekki, enda hef ég sárasjaldan verið stunginn af þeim. Milli mín og geitunga virðist ríkja gagnkvæmur skilningur. Þeir ráðast ekki á mig og ég ræðst ekki á þá. Þeir borða ekki matinn minn og ég leyfi þeim að éta skítinn á gólfinu hjá mér. Ekki mjög flókið.

Illu heilli virðist annað fólk ekki hafa góðan skilning á þessari tilhögun. Oftar en ekki bregst það við geitungum með því að stökkva upp til handa og fóta, ráðast gegn þessum meinlitlu flugum og raska ró þeirra. Þetta er mér fullkomlega óskiljanlegt athæfi.

Steinunn (sem er pínulítið sár yfir að enginn tjái sig í kommentakerfinu hennar) er mikill smákvikindadrápari. Hún drepur húsaflugur, sem að mínu mati er hreinn skepnuskapur og á meira að segja til að flæma burtu köngulær. Þóra systir er þó hálfu verri með þetta, því hún fæst varla til að vera í sama herbergi og hrossaflugur – sem alltaf hafa verið í miklu uppáhaldi hjá mér.

Flugur og köngulær eru sem sagt skemmtileg kvikindi. Því miður er ekki nóg af maurum á Íslandi. Spurning hvort við förum ekki að fá almennilega maurastofna ef sumrin halda áfram að vera svona góð? Ég myndi í það minnsta fóðra maurana í garðinum mínum á sykri – það er áreiðanlegt!

* * *

Sheff. Wed. féll út úr deildarbikarnum í gær. Votta stuðningsmönnum samúð mína. Þetta tímabil gæti orðið erfiðara en vonast var til…

Að bera nafn með rentu

Wednesday, August 13th, 2003

Árið 1912 fékk franskur maður leyfi til jarðefnavinnslu hérlendis, nánar tiltekið til brennisteinsnáms. Það væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hann hét Hart Berg. Tilviljun? Ég held ekki…

* * *

Luton vann Yeovil 4:1 í fyrstu umferð deildarbikarsins í gær. Mjög er um það deilt á spjallsvæði stuðningsmannaklúbbsins hvaða andstæðinga menn vilja sjá í næstu umferð. Fólk skiptist í þrjá hópa:

i) Þá sem vilja West Ham, Sunderland eða eitthvað af hinum stóru liðunum sem verða í pottinum í næstu umferð. Hugsunin er sú að græða pening og komast jafnvel í sjónvarpið.

ii) Þá sem vilja heimaleik gegn smáliði, til að komast lengra í keppninni fá fleiri leiki og jafnvel möguleika á að mæta stóru úrvalsdeildarliði seinna meir.

iii) Þá sem vilja Watford, erkifjendur Luton-manna. Í fyrra slógum við þá út úr sömu keppni með glæsimarki frá Matthew Spring.

Þriðji hópurinn virðist stærstur, en þetta kemur allt saman í ljós á laugardaginn þegar dregið verður.

Jamm.

6-0 sigur

Tuesday, August 12th, 2003

Ónei, hér er ekki ætlunin að rifja upp 6-0 leikinn alræmda, þar sem Íslendingar voru kjöldregnir af Austur-Þjóðverjum. Í gær skellti ég mér á fótboltaleik sem lyktaði einmitt á þennan hátt.

Það var sem sagt 3. flokkur HK sem kjöldró Eyjamenn í blíðskaparveðri í Kópavoginum. HK er í öðru sæti í B-deildinni, með leik til góða á Blikana. Trúi ekki öðru en HK vinni deildina, þeir eru nefnilega með hörkulið.

Og hvers vegna var besti og frægasti bloggarinn að skella sér á þennan leik? Er hann að hlaupast undan merkjum og svíkja Safamýrarstórveldið á ögurstundu? Nei – mig langaði bara að sjá Guðmund mág minn í bakverðinum. Hann hafði lítið að gera eins og sjá má af lokatölunum, en lagði vel upp annað markið í leiknum. Aldrei að vita nema maður skelli sér á fleiri HK-leiki áður en tímabilið er úti. Eins væri gaman að sjá Framarana spila í 2. og 3. flokki.

Vinnuvika

Tuesday, August 12th, 2003

Jæja, nú er ljóst að það verður tekið á því í vinnunni þessa vikuna. Fyrir dyrum er uppsetning á Írafossvirkjunartengdri sýningu sem helst þyrfti að vera tilbúin um miðja næstu viku. Það verða allmörg handtök hjá okkur Sverri vegna þessa.

Það einfaldar nokkuð skipulagninguna að fyrirhugaðri skreppferð á Suðurlandið hefur verið skotið á frest. Steinunn fékk hringingu áðan frá Sankti Jó. Henni bauðst að leggjast þar inn á morgun og vera í þrjá daga, sem er fínt þar sem smásteraskammtur ætti að hressa hana við. – Ferðalagið bíður þá bara betri tíma.

* * *

Er hálft í hvoru að spá í að skella mér í bíó í kvöld. Á hvaða mynd ætti maður að fara? (Endilega komið með uppástungur hér fyrir neðan.)

* * *

Bráðum verður látið sverfa til stáls í viðskiptum mínum við tiltekna aðila. Mikið óskaplega er ömurlegt að þurfa að standa í leiðindum og stappi gagnvart öðru fólki. Af hverju geta ekki bara allir verið vinir, staðið við orð sín og látið af krónískri lygaáráttu?

Með stjörnur í skónum

Monday, August 11th, 2003

Stjörnublaðamaðurinn í heilsuræktarátakinu tekur í síðustu færslu sinni vel í þá hugmynd mína að hann gerist stjörnuspárhöfundur Fréttablaðsins. Hann setur sig meira að segja í gírinn og hristir fram eina stórsmellna spá. (Reyndar óþarflega langa ef haft er í huga að spárnar þurfa helst að vera tólf á degi hverjum.)

Að þessu tilefni skulum við rifja upp klassíkera úr stjörnuspá Tímans:

Sporðdrekinn – 24.okt.-24.nóv.

Þú reykir sígarettu í hádeginu en leysir um leið óvart vind. Það kallast taðreyking.

Ljónið – 23.júlí-22.ágúst

Vinkona þín er ekki öll þar sem hún er séð. Hún er miklu feitari.

Vogin – 24.sept.-23.okt.

Þú verður frekar misheppnaður í dag ræfillinn og ættir að hafa sem hljóðast um þig. Þú gerir strax mistök í morgunsárið þegar þú tannburstar þig með rakvélinni. Annars fer það þér ágætlega.

Meyjan – 23. ágúst-23.sept.

Nú er lag. Í útvarpinu.

Fiskarnir – 19.febr.-20.mars

Þú ferð með tauið þitt í þvottahús í dag en verður argur yfir viðtökunum. Þú færð það óþvegið.

Fiskarnir – 19.febr.-20.mars

Dagurinn er heppilegur fyrir barneignir. Sterkurleikur að fæða eitt upp úr kvöldmat.

Nautið – 20.apríl-20.maí

Þú ert með sjálfan þig á heilanum. Skárra en æxli.

Tvíburarnir- 21maí-21.júní

Þú ferð niður á Mokka í dag og rífur hárið af nokkrum skáldum sem eðlilega verða nokkuð fúl og hugsi yfir. Athæfi þitt skýrist í kvöld þegar þú blæst til bókarheita og leikur Laxness-bókina “Af skáldum”.

- Skyldi Tóti bensínkall – afsakið… öryggisvörður (heita þeir það ekki núna?) geta leikið þetta eftir?

Mánudagsblogg

Monday, August 11th, 2003

Mætti seint til vinnu í dag. Fannst ég eiga það skilið eftir að hafa verið í vinnunni bæði laugardag og sunnudag. – Vald millistjórnandans er mikið!

Notaði tækifærið og hélt á fund bankans míns. Fékk þar greiðlega hækkun á yfirdráttarheimildinni og er því orðinn ríkur á nýjan leik!

Fór því næst og skilaði eignaskiptatilkynningunni vegna bílsins til bifreiðaskoðunarinnar. Er orðinn formlegur eigandi að Bláa draumnum, sem Kristbjörn var svo vænn að birta mynd af. Bíllinn reyndist bara vel á leiðinni upp á Skaga (um þá ferð verður ekki bloggað hér), en það mun greinilega taka smá tíma að vera aftur kominn á bíl með handvirku innsogi.

Jafnframt skaust ég upp í útvarpshús og tók þar þátt í umræðum um stöðu Blair og ríkisstjórnar hans vegna Kelly-málsins. Með mér í þættinum voru Birgir Ármannsson og Björgvin G. Sigurðsson. Þessu verður útvarpað á Rás 2 kl. 17. Hlustendur geta átt von á þurrum langhundum frá öllum þátttakendum.

* * *

Gleðifréttir frá Luton. Sky mun sjónvarpa leiknum gegn Tranmere 6. okt. Það er nú ekki á hverjum degi sem maður nær Luton-leikjum á klakanum…

Kjaftasögurnar segja að Matthew Spring sé á liðinni til Wigan. Spurning hvort deildarbikarleikurinn gegn Yeovil á morgun verði kveðjuleikurinn hans?