Bank Holiday

Í Bretlandi er til fyrirbæri nokkuð sem nefnist Bank Holiday. Það lýsir sér í því að nokkrum sinnum á ári (þrisvar minnir mig) taka þeir sér frídag á mánudegi. Þetta kemur væntanlega í staðinn fyrir ýmis í-miðri-viku-frí okkar Íslendingar, eins og öskudag, sumardaginn fyrsta o.s.frv.

Þegar ég bjó í Edinborg komu þessir frídagar mér alltaf í opna skjöldu. Maður mætti út í verslun og skyndilega var helgaropnunartími á mánudegi… Það bætti heldur ekki úr skák að Bank Holiday í Skotlandi go Englandi voru á mismunandi dögum, þannig að dagblöðin gátu ekki varað mann við.

Í dag er Bank Holiday í Englandi. Á slíkum dögum eru fótboltaleikir alltaf leiknir og það um miðjan dag. Núna er Luton t.d. að spila í Brighton og er strax komið undir eins og búast mátti við. Rats!

Væri sniðugt að taka svona frídaga upp hérna í skiptum við öll fimmtudagsfríin? Tja, held ekki. Við verkalýðurinn fáum miklu meira út úr fimmtudagsfríunum því við þær kringumstæður er aldrei unnið nema af hálfum krafti á föstudögum. Auk þess vilja Samtök atvinnulífsins taka upp mánudagsfrí og það er agætt að nota þá sem kompás – alltaf vera á öðru máli er Ari Edwald…

3 Responses to “Bank Holiday”

  1. lipitor Says:

    If people see that you mean them no harm, they’ll never hurt you, nine
    times out of ten!
    lipitor