Archive for February, 2003

Kaffi Stígur er málið Ég

Thursday, February 27th, 2003

Kaffi Stígur er málið

Ég hef áður lýst aðdáun minni á knæpunni vafasömu, Kaffi Stíg, á þessum vettvangi. Hún er langflottust.

Í gær skelltum við Steinunn okkur þangað ásamt nafna mínum Þorgrímssyni og Mellanum - landsins efnilegasta syni. Þar var mikið rætt um litlar róttæklingagrúppur og skipst á bráðfyndnum sögum af villta vinstrinu. Það er næstum svekkjandi að hafa aldrei náð að vera í fótgönguliði Gylfa Páls & co.

Stígurinn var með rólegasta móti. Reyndar var einhverri ungri stelpu hent út um það leyti sem við komum þangað. Þetta var myndarleg stelpa en virtist á verulegum glapstigum greyið. Þá var eitt hávaðarifrildi á næsta borði sem hefði getað endað í stympingum ef stemningin hefði ekki verið svona afslöppuð á svæðinu að öðru leyti. Annars sátum við bara í makindum og löptum okkar Budwar úr flösku. 500 kall er fínt fyrir stóran tékkneskan.

Mellinn lýsti þeim áformum sínum að bera eld að McDonaldsstað á Nörrebro. Við hin vorum fremur á því að styðja hann í anda. Stebbi frændi vegna þess að hann er orðinn svo friðsamur eftir að hann gerðist grænmetisæta. Ég af því að ég er gunga. Og Steinunn vegna þess að hún gæti aldrei hlaupið undan löggunni.

Við reyndum að bjóða þeim inn á Mánagötuna eftir að búið var að loka staðnum, en sem betur fer afþökkuðu þeir það. Annars hefðum við líklega klárað þann litla vísi sem kominn er að viskýskáp heimilisins. Nógu var erfitt að vakna samt…

Jamm.

Proppé í uppsveiflu Í gærkvöld

Wednesday, February 26th, 2003

Merkisdagurinn 24. febrúar Fýlupokinn Guðmundur

Tuesday, February 25th, 2003

Dónakrakkar Í morgun komu ellefu

Monday, February 24th, 2003

Elgur Núna er ég þunnur

Sunday, February 23rd, 2003

Kaupæði og handlagni safnvörðurinn Jæja,

Thursday, February 20th, 2003

Tilvitnun dagsins I hope to

Tuesday, February 18th, 2003

Besserwisser Ójá, ég er svo

Tuesday, February 18th, 2003

Frelsi, gleði og hamingja Hóhóhó…

Monday, February 17th, 2003

Réttarmorð Fór ásamt Ragga Kristins

Thursday, February 13th, 2003