Archive for June, 2002

Kveðjustund í námd Jæja, þá

Sunday, June 30th, 2002

Kveðjustund í námd

Jæja, þá er undirbúningur fyrir Færeyjaferðina að komast á lokastig. Við leggjum af stað austur á þriðjudagsmorgun en lagt verður úr höfn á fimmtudag. Fram að því þarf ég að klára 101 verkefni í vinnunni, auk annarra verkefna. Það er hræðileg tilfinning að yfirgefa vinnustaðinn í tólf daga. Ef frá er talin dvölin í Skotlandi, þá held ég að ég hafi mest verið viku frá safninu frá því að ég varð fastráðinn þar 1998. - Ég ætla að reyna að stilla mig um að hringja í Sverri á klukkutíma fresti til að tékka á því hvort allt gangi að óskum.

Svo er líka leiðinlegt að fara núna á sama tíma og við Óli Guðmunds og Sverrir erum komnir í svona góðan gír í að stokka upp sýningarsalinn. Ég er að spá í að láta smiðina Knold og Tott smíða millivegg á meðan ég er í burtu, til að hægt verði að byrja að vinna í loftlínubásnum þegar ég kem aftur.

Annars verð ég að hætta að barma mér svona yfir þessu. Steinunn gæti farið að fá það á tilfinninguna að ég nennti ekki með henni, en ekkert er fjær sanni. Það verður frábært að fara til Færeyja, sérstaklega ef við komumst út í Mykjunes. Ég ætla að lesa Glataða snillinga í Norrænu og dusta jafnvel rykið af sögu SEV-Elfjelags Vestmanna, sem er afbragðsgóð bók um raforkusögu Færeyja eftir Jógvan Arge. (Ætli hann sé skyldur Uni Arge fótboltakappa?) - Til að setja okkur enn betur í gírinn ætluðum við að leigja kvikmyndina Barböru á föstudagskvöldið, en hún var ekki til á leigunni. Í staðinn tókum við Woddy Allen-myndina What´s up Tiger Lilly? - Hún var vonbrigði. Djókurinn á bak við það að taka japanska hasarmynd og döbba hana yfir á ensku var bara ekki að standa undir heilli kvikmynd.

Veit ekki hvort ég nenni að blogga frá Færeyjum eða hvort ég hef tíma á morgun til þess. Ef ekki, þá kveð ég bara að sinni!

Dýraheiti Um daginn sýndi sjónvarpið

Friday, June 28th, 2002

Merkilegustu menn skólans? Svenni Guðmars

Thursday, June 27th, 2002

Stjörnuveisla Stebba Jess! Í gær,

Thursday, June 27th, 2002

Ó, þú fagra veröld! Hvílík

Tuesday, June 25th, 2002

Enn af stjörnuspám Höldum nú

Monday, June 24th, 2002

Kaldhæðni Á laugardag bloggaði Palli:

Monday, June 24th, 2002

Dýrt kveðið Rafveitustarfsmenn hafa löngum

Friday, June 21st, 2002

Stjörnuspá dagsins Enn held ég

Friday, June 21st, 2002

Leiðrétting Sófakomminn Valur Norðri Gunnlaugsson

Thursday, June 20th, 2002