Archive for March, 2002

Bloggað til að plögga! Jæja,

Friday, March 29th, 2002

Bloggað til að plögga!

Jæja, þá sit ég á skrifstofu Palla Hilmars á föstudeginum langa og blogga. Hér er ég staddur undir því yfirskyni að við Palli séum að vinna saman að undirbúningi friðarráðstefnunnar sem við erum að efna til í vor. Það er rangt.

Palli er að snattast í heimasíðu UVG og dunda sér við að setja upp netmyndavél sem smellir mynd af honum á mínútu fresti þar sem hann situr fyrir framan tölvuna sína - slíkt á auðsjáanlega erindi við heimsbyggðina. Sjálfur læt ég mig hafa það að hanga hérna, vegna þess að þannig kem ég mér undan því að hjálpa til við kvöldverðarboðið á eftir, þar sem Steinunn er að gera flóknar tilraunir með að elda mexíkóskan kjúkling.

Í raun hef ég ekki frá miklu að segja sem réttlætt gæti það að blogga á þessum mikla helgidegi. Þó læt ég mig hafa það til að plögga samkomuna sem við herstöðvaandstæðingar ætlum að halda annað kvöld (laugardaginn 30. mars) að Hallveigarstöðum, á horni Túngötu og Garðastrætis.

Samkoma þessi verður með allra léttasta móti. Einhver tónlist verður spiluð og svo seldur bjór á vægu verði. Ég fékk að stýra áfengiskaupunum og lét því kaupa 3-4 sinnum meiri bjór en seldist á þessari samkomu í fyrra. Engu að síður er ég sannfærður um að búsið muni renna út á mettíma. Þeir sem vilja ná fínu partýi áður en haldið er í bæinn á laugardagskvöldið gætu því gert margt vitlausara en að droppa við að Hallveigarstöðum - (þó ekki væri til annars en að sjá allt þetta fólk sem ég nefni svo oft í bloggunum mínum.)

Jamm.

* * *

e.s. Steini Múrverji hefur sérstaklega farið þess á leit að ekki verði bloggað um hann á þessum vettvangi. Að sjálfsögðu mun ég ekki verða við þessari beiðni - öðru nær. Þannig er tilvalið að benda lesendum þessa bloggs á að Steinþór skrifaði grein í TMM á dögunum. Ekki hef ég lesið þá grein en hún er eflaust góð.

Bersöglisvísur Í Mjólkursamlagi Neskaupstaðar ganga

Wednesday, March 27th, 2002

Draugar og hart viðbit Félagi

Tuesday, March 26th, 2002

Ferðahugur Enn einu sinni fellur

Monday, March 25th, 2002

Spurningakeppni fjölmiðlanna Á áðan hlustaði

Tuesday, March 19th, 2002

Sitt lítið af hverju… Jæja,

Sunday, March 17th, 2002

Gaman – gaman – gaman!!!

Friday, March 15th, 2002

Það er munur að vera

Thursday, March 14th, 2002

One down, four to go…

Tuesday, March 12th, 2002

Ég blogga til að gleyma!

Monday, March 11th, 2002