Posts tagged ‘tölvur’

February 16th, 2012

Mig vantar sárlega Chrome-aðstoð

by Hildur

Í vinnunni í gær syncaði ég chromeið mitt. Ég er með vinnutölvu, vinnufartölvu og mína eigin fartölvu, sem er sú eina sem er makki. Vinnufartölvuna nota ég sjaldan en sonur minn notar hana þeim mun meira og hefur sjálfsagt sett ýmiskonar drasl í Chrome sem ég myndi aldrei nota. Nema hvað. Við syncið gerðist eitt í þessari vél sem ég veit ekki hvort gerðist í PC-lappanum en gerðist allavega ekki í makkanum. Sumt letur er vangefið. Það er að segja að það lítur út fyrir að vera með lélegri upplausn. Þetta gerist bara með texta, ekki myndir eða nokkuð annað. Ég hef verið að reyna að finna út úr því hvað einkennir letrið sem breytist en það gengur ekki mjög vel. Hér eru dæmi:

Þarna er allt letur eðlilegt (ég er reyndar búin að stara svo mikið á þetta að ég er ekki lengur viss með “til mín”) nema netfang eiginmanns. Það lítur út eins og það sé í lélegri upplausn. Fleiri dæmi:

Þetta er bara ljótara og feitara og asnalegra letur en venjulega. Eða: eins og upplausnin sé vond.

Þarna eru nöfnin okkar skrítin og allt annað eðlilegt. Nöfnin okkar eiga það sameiginlegt með tilkynningunni um Þórdísi að vera í bláu letri. Fyrst hélt ég að þetta hefði eitthvað með það að gera. En netfangið hans Palla á fyrstu myndinni er svart og er samt fökkd, fyrir utan að like comment unfollow dótið á neðstu myndinni er líka blátt og það er ekki fökkd.

Áðan fékk ég póst sem var í tveimur línum. Í fyrri línunni var netfang sem var svona skrítið (og öll netföng koma svona út á skjánum hjá mér). Seinni línan var svo ekki með neinu nema venjulegum texta en hún kom samt svona furðulega út. Svo prófaði ég að senda sjálfri mér samskonar póst og þar var seinni línan í góðu lagi. Sjá (og ath. það þarf að opna þessa mynd svo munurinn sjáist):

Ég er auðvitað með allskonar viðbætur og drastl í vafranum mínum og man/veit ekkert hvað af því var í hinum tölvunum og ekki í þessari fram að þessu synci í gær. En þetta fer ógurlega í taugarnar á mér. Dettur einhverjum eitthvað í hug?

Tags: