sjálf kvíslast ég

by Hildur

í öðrum og ánægjulegri fréttum er það helst að smábókin mín er komin í hendur mínar. hún er ógnarfalleg og lítil, klúðurslega prentuð og yndisleg. telur heilar sextán síður og kostar fjögurhundruð krónur. ég tek við pöntunum sjálf en hún mun einnig fást í búðum síðar meir.

aukinheldur vantar mig hresst fólk sem kann að teikna til að skreyta bækurnar. upplagið er 150 eintök og pælingin er að engin tvö verði eins, en hver skreytari má alveg fá tíu eintök eða tuttugu eða eitthvað. skoðum það bara. laun fyrir skreytingar eru annað hvort eintak af bókinni eða fjögurhundruð krónur, íslenskar. netfangið er að vanda hildur.lilliendahl hjá gmail og símar 869 1884 og 411 4706.

5 Comments to “sjálf kvíslast ég”

  1. Geta þessir tveir menn sem gáfu þér svona mikið magn af kynsjúkdómum ekki skreytt fyrir þig bækur?

  2. Til hamingju með bókina Hildur! Löngu kominn tími til að mínu mati.

    Er samt því miður með einhverja skinkuflensu þannig að ég kemst ekki í kvöld en góða skemmtun

  3. Til hamingju með bókina. Ég vil gjarnan kaupa eintak, verð í tölvupóstsambandi upp á að fá hana bara senda beint til Frakklands. Nenni ekki að standa í reddingum þar sem ég er á leið upp í sveit.

  4. Tvær takk, á þetta heimili. Jóhann Georg mun sjá um að myndskreyta þær.

  5. Panta tvær.

Leave a Reply