Ég afturkalla nokkrar klukkustundir

by Hildur

Einsog Þórdís hefur ítrekað bent okkur á undanfarna daga og vikur tíðkaðist það eitt sinn að menn bæðu aðra menn afsökunar í dagblöðum eftir að hafa svívirt þá í ölæði. Þá skrifuðu menn einfaldlega lítinn bút þar sem þeir afturkölluðu téðar svívirðingar og/eða barsmíðar, dæmdu eigin gjörð dauða og ómerka og gátu framvegis borið höfuðið hátt. Kannski eru það títtnefnd gömul gildi. Allavega finnst mér þetta falleg hefð og ég hef hér með ákveðið að biðja alla sem ég hitti síðastliðinn föstudag afsökunar á öllu sem ég kann að hafa gert eða ekki gert frá því að ég fór úr vinnunni og þangað til ég sofnaði. Ég dæmi þetta kvöld dautt og ómerkt.

Myndirnar koma frá Þórdísi.


One Comment to “Ég afturkalla nokkrar klukkustundir”

  1. Þetta er snilldin ein. Ég ætla að taka þetta upp.

    xoxo
    L

Leave a Reply