Að upphefja sjálfan sig…

by Hildur

Þegar maður er rétt skriðinn á fætur, sér fram á 12 tíma vinnudag og ætlar sér á djammið eftir hann, getur verið gott að líta við hér fyrir hressandi upplyftingu:

Er einhver hér sem kann útskriftarsönginn? byrjar Galelio de amadus… Vantar textann bæði af latínusöngnum og svo á íslensku líka.

No Comments to “Að upphefja sjálfan sig…”

  1. Málefni ótengt:
    Að sjálfsögðu heldur Framsókn áfram í stjórn! Þeir eru bara að reyna að bjarga andliti með þessu umhugsunarsjónarspili sínu. Geir hefur örugglega stungið uppá því.
    En að tengdu:
    Hví í hinni heilögu flötu veröld óskið þér eftir latínskum texta við útskriftarsöng???????
    Ertu nokkuð lasin tös?
    Ég skal senda þér góðann Lou Reed texta strax! Tjekkaðu mailið þitt.

  2. Ömm, ég kann Gaudeamus reyndar ágætlega. Ætlunin var að upphefja sjálfa mig með því að gera miskunarlaust grín að ókunnugum sakleysingja á netinu sem vildi hefja sönginn á Galelio de amadus.

  3. Ó, hvernig í ósköpunum átti ég að vita það? Ekki dettur mér í hug að smella á link sem vísar á umræðurnar á Barnalandi. Sé það reyndar núna að þetta er skáletrað. Pffft, aldrei aftur skal ég vísa þér á texta.

Leave a Reply