Pælið í firringu. (Takk, Tanja.) Kona segir (og já, ég veit að þetta er niðrandi og andstyggileg athugasemd): giftir íslenskir karlmenn eru lausgirtir. Karl stekkur félögum sínum til varnar, hann er raunverulega með skýringu á framhjáhaldinu á einhverjum algjörlega óskilgreindum hópi (fyrir utan íslenskir, giftir, karlkyns) fullkomlega á reiðum höndum. Þetta er crazy.
Uppfært: Gleymdi upprunanum.













Friday, August 17th, 2012, 12:17 pm | 



17/08/2012 at 12:47 pm
Sæl. Hef engan áhuga á að tala illa um þínar kynsystur. Finnst furðulegt ef ekki meira sagt hvað viðhorf þitt til karlmanna er neikvætt og reynir að draga það versta fram í karlkyninu. Allt til að sýna yfirburði ykkar kvenkynsskrifara. Skín því miður líka gegnum ykkar skrif. Dettur ekki samt í hug að taka hanskann upp fyrir fámennan hóp karlmanna sem eru varla ritfærir á íslenska tungu og sumir ekki konuhæfir. Batnandi körlum og konum(konum og körlum) er best að lifa. Kveðja.
17/08/2012 at 12:50 pm
Sæll Bjarni. Hvað finnst þér ég hafa gert sem sýnir neikvætt viðhorf mitt til karlmanna? Ég bý með þremur karlmönnum sem eru besta fólk sem ég þekki. Ég á fleiri strákavini en stelpuvini og er bara yfirleitt alltaf umkringd algjörlega frábærum körlum. Hvað nákvæmlega ertu að tala um? Hvar birtist þetta neikvæða viðhorf mitt?