Mál Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur hefur flækst fyrir mér í nokkurn tíma. Það togast á í mér að mér þótti lögregluaðgerðin þar sem börnin voru flutt nauðug frá móðurinni ógeðfelld og skelfileg og síðan að mér hefur ekki fundist ég ekki hafa haft nægilegar upplýsingar í höndunum til að geta tjáð mig. Ég þorði ekki að segja upphátt: „þessi maður er ofbeldismaður,“ og tjá mig svo um annað í málinu út frá þeirri forsendu.
Vera má að það hafi verið rétt metið hjá mér að fara varlega í fullyrðingarnar en eftir að hafa horft á viðtalið við Hjördísi og systur hennar þarf ég ekki að hugsa mig um meir. Þetta er ofboðslegt ranglæti sem virðist eiginlega frekar vera kerfislægt en einhver mannleg mistök. En þarna er auðvitað hellingur af mannlegum mistökum líka og svívirðilegt að þeir sem hafa völd hafi ekki stöðvað þetta.
Þetta er skelfileg, skelfileg saga sem þarf að heyrast sem víðast. Hjördís kemur þessu svo vel frá sér að það er hreint ótrúlegt.
Viðtal við Hjördísi Svan – Fyrri hluti from Pressan on Vimeo.
Viðtal við Hjördísi Svan – Seinni hluti from Pressan on Vimeo.












Tuesday, July 17th, 2012, 9:15 am | 



17/07/2012 at 10:21 am
Skrítið að sömu yfirvöld (dönsk) og hjálpuðu Hjördísi að finna íbúð með leynilegu heimilisfangi til að hún og börnin fengju frið fyrir ofbeldismanninum – skyldu í leiðinni sjá til þess að hann fengi á sama tíma sífellt lengri umgengnisrétt við börnin.
Eitt af mörgu skrítnu í þessu máli.
17/07/2012 at 10:34 am
Þetta er sorglegt en um leið virðingarvert við móðurina að stíga fram í mynd og segja sína sögu. Öðruvísi fáum við aldrei neinu breytt varðandi svona mál. Ég vona að sem flestir kynni sér þessa sögu þessarrar konu og móður sem vill til að er svipuð svo mörgum öðrum sögum svo margra annarra kvenna sem reynt hafa að flýja ofbeldisfulla barnsfeður sína.
Mér hefur sýnst að þeir siðleysingjar sem beyta fjölskyldu sína ofbeldi komist upp með það í flestum tilvikum og fái sínu framgengt þegar kemur að forsjármálum og öðrum málum tengdum skilnaði aðila, því miður. Það vill til að siðleysingjar eru snillingar í blekkingum og ná að slá ryki í augu fólks hvar sem þeir fara og oft á tíðum eru barnsmæður þeirra sem að eru að reyna að flýja þá og bjarga börnunum frá ömurlegum örlögum, svo brotnar og tættar eftir ofbeldið sem oft hefur varað í mörg ár, að þær hafa ekkert í þessa siðleysingja sem engu hlífa til að komast upp með enn eitt brotið á konunni og börnunum.
Hjá þessum mönnum snýst svona aðför ekki um ást á börnunum eða virðingu fyrir tilfinningum móður barnanna, heldur í huga siðleysingjans þá snýst þetta um einhverskonar sigur yfir konunni og börnunum, að ná af henni því sem henni er kærast með það að leiðarljósi að brjóta hana endanlega og hafa þannig yfir henni fulla stjórn, eins og þeir sjá það, og beyga börnin alfarið undir sinn vilja, sitt yfirráð.
Þessir siðlausu menn þeir virka þannig að þeir verða að hafa fulla og algjöra stjórn á öllu og öllum, þess vegna eru konur oft áfram í ofbeldissambandinu í stað þess að reyna að flýja því þeim hefur verið gert grein fyrir því að ef að þær fari þá skuli þær hljóta verra af og ofbeldismaðurinn hafa af þeim það sem þeim er kærast, börnin. Konurnar taka þessum hótunum alvarlega því þær þekka jú það sem að ofbeldismaðurinn er fær um frá fyrstu hendi.
Ég segi eins og Hildur, ég þekki ekki þessa sögu nema af þessum orðum hér og viðtallinu við móðurina og systur hennar.. en ég þarf ekki meira.
Ég hef mikið heyrt rætt um brotalöm í kerfinu þegar kemur að barnaverndarmálum hér á Íslandi og er þetta málið sem fyllir þann mæli!
Að beyta ofbeldi er rangt og bannað með lögum. Hvers vegna eru þessi blessuð börn rifin úr örmum elskandi móður sinnar og send nauðug til annars lands í hendur ofbeldisfulls föður ?
Þetta er hrópandi óréttlæti gagnvart börnunum svo ég tali ekki um það sem verið er að gera móðurinni.
Ég sendi Hjördísi Svan Aðalheiðardóttur mínar hlýjustu hugsanir og sterkustu strauma.
Með vinsemd og virðingu.
Íris Björk Hlöðversdóttir.
17/07/2012 at 11:01 am
Ég er eiginlega orðlaus eftir að hafa hlustað á móðurina hér/Hjördísi og móðursystur hennar (?).
Hjördís segir mjög vel frá, hún virðist ótrúlega sterk miðað við allar aðstæður og heil í sinni frásögn. Þetta er ótrúlegt ferli allt saman og það sem ég skil engan veginn, hvaða “reglugerðir” segja til um að svona eigi að koma fram við börn. Það er talað um “mannleg mistök”, það gæti verið aum ástæða í eitt skipti en ekki í öllum tilvikum ??? Barnaverndayfirvöld í Vejle, Hornafirði, Kópavogi og velferðarráðherra og Bragi Guðbrandsson, ber enginn einn aðili/stofnun ábyrgð hér, geta allir þvegið hendur sínar og bent á að ábyrgðin liggi “hjá öðrum” ??
Hér er það heil fjölskylda sem blæðir, 4 börn og móðir þeirra, í guðanna bænum hjálpið !!
Ég sem þekki ekki persónulega til barnanna eða móður þeirra, mér er illt í hjarta mínu, bara við að lesa/hlusta á málið, því get ég varla hugsað til þess hvernig þeim líður.
Með von um að málin fari að leysast, þetta þolir enga bið