Opið bréf til lögreglunnar á Hvolsvelli

by Hildur

Reykjavík, 7. júlí 2012

Kæra lögregla.

DV greinir frá því að samkvæmt tilkynningu frá ykkur (sjá hér að neðan) hafi síðastliðin nótt á „Bestu útihátíðinni“ á Gaddastaðaflötum gengið að mestu vel. Þar hafi komið upp tuttugu og fimm fíkniefnamál, ein nauðgun, ein líkamsárás og eitt alvarlegt slys og þó nokkur ölvun hafi verið á svæðinu. Mig langar að koma því á framfæri að í mínum huga heitir þetta að ganga ömurlega. Ekki að mestu leyti vel. Þetta heitir að hátíð sé fullkomlega misheppnuð og skammarleg.

Í tilkynningunni eru tveir menn sagðir vistaðir í fangageymslum. Annar þeirra hefur verið ásakaður um nauðgun og hinn um líkamsárás. Ég fer fram á að embættið svari því til opinberlega hvers vegna maðurinn sem hefur verið sakaður um að hafa nauðgað og er vistaður í fangageymslu er kallaður „meintur gerandi“ og hvers vegna maðurinn sem hefur verið sakaður um líkamsárás og er vistaður í fangageymslu er kallaður „gerandi.“ Er það afstaða embættisins að ekki þurfi að sanna brot til þess að menn teljist sekir? Er grundvallarmunur á réttarstöðu grunaðra manna í kynferðisbrotum og í líkamsárásum? Hverju sætir sá greinarmunur sem þið gerið á þessum tveimur mönnum?

Virðingarfyllst,

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir.

„Um 4000 manns á svæðinu í nótt, nóttin að mestu gekk vel. Tveir gista fangageymslur á Selfossi.

Engin ungmenni flutt í athvarf á Hellu.

Vinnuslys varð hjá starfsmanni Paintball á svæðinu í nótt, en hann var að setja þrýstiloft á leiktæki er sprenging varð og fékk maðurinn alvarleg brunasár. Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.

Ein nauðgun var kærð til lögreglunnar á svæðinu. Kærandi var fluttur á Neyðarmóttöku fórnarlamba fyrir kynferðisbrot í Reykjavík, meintur gerandi var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglunnar. Málið er í rannsókn.

Ein líkamsárás tilkynnt og er gerandi í fangageymslum. Um 25 fíkniefnamál komu upp s.l. sólarhring.

Að öðru leyti hefur hátíðin gengið vel, en þó nokkur ölvun var á svæðinu.“

24 Comments to “Opið bréf til lögreglunnar á Hvolsvelli”

  1. Getur til dæmis ekki verið að vitni hafi orðið að líkamsárásinni en ekki að nauðguninni og því sé hættulausara að fullyrða um geranda í því máli?

  2. En þó hefur dómari ekki enn dæmt sekt. Eru ekki allir sekir þar til sekt er sönnuð? Er það ekki reglan?

  3. Það er eitt sem er jafnvel áhugaverðara í þessu samhengi. Mér þætti forvitnilegt að bera saman tölur um nauðganir og líkamsárásir á íslenskum útihátíðum samanborið við erlendar útihátíðir. Mig grunar að hlutfallslega séu tölurnar mun hærri hér heima en erlendis.

    Ef svo væri raunin þarf fólk að spyrja sig að því hvað veldur. Er eitthvað í karakternum hérna heima sem gúterar nauðganir og líkamsárásir fremur en erlendis? Eða er þetta einungis spurning um betri og fagmannlegri öryggisgæslu?

    • Fannst þér ekki vera tekið á því í færslunni? Ég varði einmitt fyrri hlutanum í að benda á að þetta væri skelfilegt.

      • Jú, það er í sjálfu sér tekið á því í færslunni. Mér datt bara í hug að prófa að fara aðeins dýpra út í þá sálma.

        Aðalfréttin finnst mér vera, og ég er nokkuð viss um að þú sért sammála mér, ekki endilega að lögreglan reyni í einhverri nauðvörn fyrir sig að búa til jákvæðan spuna á þessa útihátíð heldur sú að tuttugu og fimm fíkniefnamál, ein nauðgun, ein líkamsárás og eitt alvarlegt slys sé eðlilegt. Þetta ætti að hafa sjokkerandi áhrif á fólk en ég óttast að svo sé ekki.

        En af hverju að benda á útihátíðir eingöngu? Svipað ástand er niðri í miðbæ Reykjavíkur um helgar svo gott sem hverja einustu helgi. Það er afar neikvæð og fjandsamleg orka sem ég verð var við þar, mjög mikil áfengisneysla og opin fíkniefnaneysla færist í aukana. Allir samskiptamátar eru mjög ofsa- og ruddafengnir og myndi ég sérstaklega halda að konum stafaði ógn af þessu enda samskipti kynjanna á Íslandi á svo miklu steinaldarplani að það nær ekki nokkurri átt.

        Ýmislegt má skýra með ónógu eftirliti lögreglu og annarra aðila en það er bara ein hliðin á málinu. Einhvers konar almenn vanlíðan og sálsýki finnst mér einkenna mannleg samskipti á Íslandi sem versna að sjálfsögðu til muna með allri þeirri gengdarlausu áfengisneyslu sem tíðkast hér.

        Þetta er eitthvað sem er mjög þarft að benda á og vil ég hrósa þér og öðrum fyrir að gera það. Satt best að segja held ég að þetta sé eitthvað sem heilbrigðisyfirvöld ættu að líta mjög alvarlegum augum.

  4. Gæti líka verið að sá sem er í haldi vegna líkamsárásarinnar hafi játað á sig brotið. Annars finnst mér orðalag lögreglurnar ekki eins mikilvægt og að þessi stúlka hafi kært nauðgun og að maður sé í haldi vegna þess.

    • Hver sagði stúlka?

      • Núna ert þú bara að snúa út úr. Ég gaf mér að þetta væri stúlka því oftast er það þeim sem er nauðgað. Það má vel vera að þetta hafi verið karlmaður en það er algjört aukaatriði. Það mikilvæga er að þetta fólk þarf að svara til saka fyrir glæpina sem þau frömdu. Ég ráðlegg þér í framtíiðinni að svara ekki svona út í bláinn ef þú vilt láta taka þig alvarlega í þinni baráttu gegn kynjamisrétti. Annars er hættan að þitt annars ágæta starf missi marks.

        • Vá, takk æðislega fyrir ráðlegginguna. Það er búið að svara þessum varnarháttum hér að ofan, Kári Emil gerði það í athugasemd tvö. Það skiptir engu máli hvort eitthvað hefur verið játað eða hvort einhver var staðinn að verki, hvorugur hefur verið dæmdur.

  5. Að ein nauðgun sé kærð, þykir mér næg ástæða til þess að taka algjörlega fyrir svona samkomur. Fólk kann greinilega ekki að haga sér og löggæsla virðist aldrei vera næg.

  6. http://visir.is/naudgunarmal-a-bestu-utihatidinni/article/2012120709244

    Vísir virðist búin að aðlagast aðeins þó að lögreglan sé söm við sig :)

  7. Fjöldi fíkniefnamála bendir til að löggæsla sé yfir meðallagi góð, vinnuslys er eithvað sem kemur viðkomandi verktaka mest við, yfirgnæfandi líkur eru á því að vitni hafi verið að líkamsárásinni þó ekki komi fram hversu alvarleg hún var, engin vitni hafa væntanlega verið að nauðguninni svo þar er væntanlega þörf á viðameiri rannsókn heldur en í hinum tilvikunum. Því miður er ástandið þarna ekkert verra en um venjulega helgi í miðbæ Reykjavíkur þar sem löggæsla er þó lítil sem engin.

  8. Það kemur fram í frétt sunnlenska af hátíðinni að árásarmaðurinn í líkamsárásinni var handtekinn á staðnum þannig að það er enginn vafi um að þar hafa menn rétta manninn í haldi og því finnst mér ekkert athugavert við orðalag lögreglunnar í þessu tilviki þó auðvitað væri réttara að tala um meintan geranda i báðum tilfellum. Menn eru jú saklausir þar til sekt er sönnuð samkvæmt íslenskum lögum.
    Annars verð ég að segja að í mínum huga er nauðgun likamsárás af verstu sort

    • Handtekinn á staðnum? Sama stað og árásin fór fram? Var lögreglan sjálf vitni að árásinni?

  9. Við skulum ekki gleyma því að þarna eru 5000 manns saman komin, flestir með áfengi. Fjöldi fíkniefnamála er að sumu leiti gott, því það þýðir að lögreglan er að sinna starfi sínu. Varðandi líkamsárásir og nauðganir er einn einum of mikið, en þeir hlutir gerast samt sem áður þó hátíðin væri ekki. Ég tel því fulldjúpt í árinni tekið að segja að þetta sé fullkomnlega mishepnuð og skammarleg hátíð, það varla hægt að skella sökinni á hátíðina?

    • Ef Íslendingar geta ekki komið saman á útihátíðum án þess að nauðga hver öðrum, þá á að banna útihátíðir.

      • Ef Íslendingar geta ekki keyrt bíla án þess að keyra viljandi á hvern annan, þá á að banna bíla.

        Nauðgun er nauðgun, sama hvar hún fer fram. Í heimahúsi, partý-i, skemmtistöðum, útihátíðum eða á öðrum stöðum.

    • Hvað kemur áfengi nauðgunum við?

  10. Hef aldrei heyrt af útihátíðum þar sem ekkert hefur farið úrskeiðis, en ef banna á útihátíðir vegna einnar nauðgunar þá hlýtur að blasa við að þörf er á algeru útgöngubanni á höfuðborgarsvæðinu um helgar miðað við allt sem þar gengur á. Held að forsjárhyggjan sé aðeins að teygja sig of langt hjá henni Hildi.

    • Af hverju viltu banna útihátíðir? Væri ekki eðlilegra að taka á vandanum á aðeins diplómatískari hátt?

  11. Þakka þér fyrir þessar ábendingar Hildur, verðugt umhugsunarefni.

  12. Æj Hildur. Verður þér ekki að fara að linna? Ummæli þín hér að ofan (“Ef Íslendingar geta ekki komið saman á útihátíðum án þess að nauðga hver öðrum, þá á að banna útihátíðir.”) eru fáránleg.

    “Ef Íslendingar geta ekki ekið bíl án þess að keyra hver á annan, þá á að banna bíla.”
    “Ef Íslendingar geta ekki farið á banka án þess að ræna hann, þá á að banna banka.”
    “Ef Íslendingar geta ekki farið í sund án þess að drukkna, þá á að banna sund.”
    “Ef Íslendingar geta ekki farið að sofa án þess að hrjóta, þá á að banna svefn.”

    Jafnvel þú hlýtur að sjá hve fáránleg þessi dæmi eru. Þau falla í sama flokk og þitt eigið, svokallaðan ruslflokk.

    Hvers eigum ég, þú og aðrir Íslendingar að gjalda fyrir fávisku og bjánalæti annara? Eigum við að neita okkur um allar lífsins nautnir af því einu sinni lenti einhver annar í vandræðum við að gera það? Á ég að neita mér um að fara á útihátíð af því að einu sinni var manneskju nauðgað á útihátíð? Á ég ekki að setjast upp í bíl og keyra á milli staða af því að einu sinni dó einhver í bílslysi? Á ég að lifa í hræðslu og loka mig af vegna þess að heimurinn er ömurlegur og hættulegur staður? Það væri fáránlegt. Þú hlýtur að sjá það.

  13. comment 6, [url=http://buycefiximeonline.bligoo.com]purchase cefixime online[/url]. comment 9, cheap cefixime http://buycefiximeonline.bligoo.com cefixime purchase
    comment 3, [url=http://buyalendronateonline.bligoo.com]buy alendronate sodium online[/url]. comment 4, buy alendronate sodium 70 mg http://buyalendronateonline.bligoo.com online alendronate
    comment 1, [url=http://buyalbendazoleonline.bligoo.com]albendazole online[/url]. comment 8, online albendazole http://buyalbendazoleonline.bligoo.com buy albendazole online no prescription

Leave a Reply